Morgunblaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 Þingmennirnir Helga Vala Helga- dóttir og Arndís Anna Krist- ínardóttir Gunnarsdóttir, úr Sam- fylkingu og Pírötum, eru nýkomnar úr ferð allsherjarnefndar Alþingis til Danmerkur og Noregs að kynna sér innflytjendamál. Þær virðast ekki hafa áhyggjur af stöðunni hér í þess- um málaflokki, en Björn Bjarnason, fyrrverandi dóms- málaráðherra, víkur að sjónarmiðum þeirra í pistli og bendir til dæmis á að þær virðist hneyksl- aðar á því að „í Dan- mörku skoði yfirvöld farsíma hælisleitenda til að sannreyna frá- sagnir þeirra. Reynslan sýnir að hælisleitendur fara oft vísvitandi með rangt mál þegar þeir segja eigin sögu eða upplýsa um aldur sinn. Upplýs- ingar í farsíma kunna að auðvelda yfirvöldum að komast að hinu sanna. Þeir sem telja það hælisleitendum til framdráttar að blekkja yfirvöld landsins, þar sem þeir sækja um hæli, vilja að sjálfsögðu auðvelda þeim blekkingariðjuna. - - - Við rannsóknir af þessu tagi kem- ur einnig oft í ljós hvernig staðið er að för fólksins. Evrópulögreglan, Europol, hefur upplýst að í miklum meirihluta tilvika sé um skipulagða glæpastarfsemi að ræða, hún gefi jafnvel meira í aðra hönd en smygl á fíkniefnum. - - - Hér voru opnaðar dyr fyrir hæl- isleitendum frá Venesúela sem þeim eru ekki opnar annars staðar og nú er látið eins og ekki sé unnt að loka þeim. Helga Vala stendur í þeirri trú að fólk frá Venesúela komi hingað beint „að vestan“ og „af því að millilend- ingin er í Keflavík og þá fer fólk út úr vélinni og sækir um hæli,“ segir hún. Staðreynd er að fólkið kemur hingað um Spán.“ Helga Vala Helgadóttir Á að trúa öllu? STAKSTEINAR Arndís Anna K. Gunnarsdóttir Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Við vinnum að sölu á eftirtöldum félögum • Vinsæll veitingastaður á Laugavegi. Veitingastaðurinn er staðsettur neðarlega á Laugaveginum þ.e. á besta stað. Gríðarlegir möguleikar fyrir öfluga veitingamenn. • Eigendur Glit www.glit.is hafa beðið okkur að annast sölu á fyrirtækinu. Glit er gamalgróið og þjóðþekkt fyrirtæki sem flytur inn allt til leirgerðar auk fleiri vara. Félagið þjónar leirgerðarfólki, listafólki, skólum og stofnunum. Góður rekstur og gott tækifæri. • Fyrirtæki á sviði heilsumeðferðar fyrir íþróttafólk. • Veitingahúsakeðja með um 600 milljón króna veltu. Afkoma er góð og stöðugur vöxtur í veltu og afkomu. Góður fjárfestingakostur. • Við leitum að fjárfestum áhugasömum um ferðaþjónustu, við vinnum að sölu á ferðabílaleigu, bílaleigu, hestatengdri ferðaþjónustu, allt eru þetta fyrirtæki í góðum rekstri. • Lítinn rekstur sem býður upp á nýja og spennandi valkosti þegar kemur að því að bjóða upp á lausnir sem auðvelda fólki sem hefur í hug að fara í nám að taka þátt í alþjóðasamfélaginu. • Öflug heildverslun, b2b. velta um 600 milljónir. Góð afkoma. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Fjöldi flóttafólks á Íslandi hefur margfaldast á síðustu mánuðum. Það hefur kallað á skjót viðbrögð við útvegun húsnæðis, að sögn stjórn- valda. Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) hefur undanfarna mánuði útvegað um 1.600 manns á flótta hús- næði. Flestir hafa komið frá Úkra- ínu. Búið er að afla tuttugu staða fyr- ir flóttafólkið og hefur það m.a. fengið inni í gistiheimilum og íbúð- um. Til staðar eru gistirými fyrir 1.200 manns í svokölluðu fyrsta úr- ræði. Gert er ráð fyrir að fólk dvelji þar að hámarki í átta vikur. Alls hafa 450 flóttamenn komið til landsins frá 9. september. Það er mikil fjölgun frá sumarmánuðunum. Einungis 67 hafa flutt úr fyrsta úr- ræði á sama tíma. Stjórnvöld óskuðu eftir því fyrr í vikunni að Rauði krossinn myndi opna fjöldahjálpar- stöð. FSRE brást hratt við því. Hús- næði í eigu ríkisins í Borgartúni var breytt á einum sólarhring þannig að þar væri hægt að taka á móti fólki til skammtímadvalar. FSRE leitar að húsnæði sem hentar sem fyrsta úrræði. Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni: https://www.fsre.is/ukraina/skamm- timahusnaedi-fyrir-flottafolk. gudni@mbl.is Útvega húsnæði fyrir fólk á flótta - Húsnæði fyrir 1.600 manns undan- farna mánuði - Vantar meira húsnæði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjöldahjálparstöð Þar bíður fólk eftir varanlegra húsnæðisúrræði. Umhverfisstofnun telur að langvar- andi efnistaka í Litla-Sandfelli í Ölf- usi, ásamt mikilli umferð vörubíla um Þrengslaveg, muni hafa umtals- verð umhverfisáhrif, bæði sjónrænt sem og vegna aukins álags á innviði í þrjá áratugi. Kemur þetta fram í áliti stofnunarinnar vegna umhverfismats á efnistöku úr Litla- Sandfelli vegna vinnslu móbergs í Þorlákshöfn og útflutnings. Umhverfisstofnun telur að í um- hverfismatsskýrslu hefði þurft að líta til samlegðaráhrifa vegna stór- felldrar efnistöku sem fara mun fram í Lambafelli, í nágrenni Litla- Sandfells, um ókomna framtíð. Tveir valkostir eru tilgreindir í umhverfismatsskýrslunni. Val- kostur A hefur þau áhrif að nánast allt fellið verði fjarlægt á 30 árum. Kostur að fækka ferðum Í skýrslunni er valkostur B nefnd- ur. Þar verði efnistakan ekki eins mikil og í nokkru hvarfi frá Þrengslavegi. Fyrirtækið, sem stendur fyrir efnistökunni, telur kost B ekki fýsilegan þar sem þá þurfi að ráðast í efnistöku á öðrum svæðum til að uppfylla lágmarks- þörf. Umhverfisstofnun telur val- kost B skárri en valkost A og þá sér- staklega ef unnt verði að fækka ferðum frá námunni með lengri vinnslutíma og minni sjónrænum áhrifum efnistökunnar í Litla- Sandfelli. Umhverfisstofnun ítrekar það álit sitt, sem fram kom í áliti á umhverf- ismati vegna efnistöku og útflutn- ings á gjalli af Mýrdalssandi, að loftslagsávinningur sem ætlað er að komi fram í öðru landi geti ekki tal- ist rökstuðningur fyrir umtals- verðum umhverfisáhrifum á Íslandi nema fyrir liggi alþjóðlegir samn- ingar þar um. helgi@mbl.is Umtalsverð áhrif af efnistöku - Talinn verri kostur að nánast fjarlægja allt Litla-Sandfell Ljósmynd/Umhverfisstofnun Litla-Sandfell Skiptar skoðanir eru á lofti um hversu bratt skuli farið í efnistöku í Litla-Sandfelli í Ölfusi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.