Morgunblaðið - 08.10.2022, Side 51
alheimurinn sjálfur undir, takk
fyrir, og á Vulnicura og Utopia
var verið að vinna úr erfiðum
skilnaði. Fossora er „léttari“ en
þessar plötur hvað konseptþyngsli
varðar en tónlistarlega er þetta
hreinasta ævintýri náttúrlega.
Venju samkvæmt gapir maður
reglubundið yfir hugmyndaauðg-
inni og hugrekkinu sem felst í ein-
staka lögum og lagabútum.
Björk er líka hinn mikli sam-
þættir. Dregur upp minni og áhrif
úr klassík, djass og heimstónlist,
nýjustu straumum og stefnum í
raf- og tilraunatónlist og raðar svo
öllu saman með sínu ótrúlega og
afar næma útsetningarnefi
(útsetningareyrum?).
Hún er samþættir og
sameinari. (Afsakið
þessi furðuorð. Ég
kann líka að skapa!)
Hún velur samstarfs-
fólk úr öllum áttum,
hefur alltaf gert, og
þessi plata er ansi til-
komumikil hvað það
varðar. Hér er Brook-
lynhipsterinn Serpentwithfeet,
börnin hennar tvö, Sindri og Ísa-
dóra, indónesíski dúettinn Gabber
Modus Operandi (Kasimyn, einn
meðlima, kemur við sögu í þremur
lögum), bassaklarinettsextettinn
Murmuri og íslenska sveitin
Sideproject. Svona meðal annars.
Ég las að Björk hefði ætlað að
hafa plötuna konseptmiðaðri en
svo hent þeirri hugmynd út um
gluggann. Þetta sé hins vegar
jarðbundin „Íslands“-plata, enda
var Björk einangruð hér í faraldr-
inum eins og svo margir. Platan
fer víða, stíllega, og er það vel.
Upphafslagið, „Atopos“ (unnið
með Kasimyn) er hart, næsta
óþægilegt, sem endar á gabber-
keyrslu (feikihröð, grjóthörð
teknótónlist sem var þróuð í Hol-
landi á tíunda áratugnum). Bassa-
klarinett lúra hins vegar undir og
yfir öllu mögnuð rödd Bjarkar.
Klarinettin vísa í „avant-garde“
nútímatónlist (smá Talk Talk og
Robert Wyatt líka) á meðan
„gabber“-dæmið gefur þessu
framtíðarblæ. Vinnsla Kasimyn og
co. á téðu formi er einstök. Lagið
hliðstæðulaust, nema hvað, þetta
er Björk! Eins og ég sagði, þetta
er fjölskrúðug plata. „Mycelia“ er
raddalag, skekkt og skælt, og líkt
er með „Sorrowful Soil“, uppfullt
af kóraröddum, karlkyns, kven-
kyns, allskyns. „Ancestress“, óður
til móður Bjarkar, er unnið af
Björk og syni hennar, Sindra.
Stóreflislag og vel hlaðið. Eftir
það er hofmannlega tekið ofan
fyrir Fróni í hinu 44 sekúndna
langa „Fagurt er í fjörðum“ (texti
eftir Látra-Björgu). Emilie Nicho-
las og Serpentwitfeet koma svo
afar sterk inn í sínum lögum að
ekki sé talað um dóttur Bjarkar,
Ísadóru, sem á fallegt innslag í
„Her Mother‘s House“ sem er
jafnframt lokalagið.
Góð plata frá Björk, og það
virkilega, en hún hefur aldrei sent
frá sér neitt sem kemst nálægt
einhverri meðalmennsku. Ótrúleg
listakona og í tónlistarsögu heims-
ins skipar hún einstakan sess eins
og þið vitið. Maður er eiginlega
pínu upp með sér að tala sama
tungumál og búa á sama svæði og
þessi stórsnillingur. Ó, við dauð-
legir og allt það…
Grafið dýpra …
Ný plata Bjarkar, Fossora, er hennar tíunda.
Andlát móður og heimsfaraldur spiluðu sína rullu
í innblæstrinum og tónlistin sækir m.a. í „gabber“
og blásturshljóðfæri.
Ótrúleg Björk áréttar stöðu sína sem eitt merkilegasta tónlistarman allra tíma á nýjustu plötu sinni, Fossora.
»Höfum það á hreinu, engin tónlistarkona/
maður/manneskja í sögunni hefur náð jafn mik-
illi hylli í tónlistarsögunni þegar búið er að reikna
eðli tónlistarinnar sem hún gerir inn í þá jöfnu.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ný plata frá Björk er alltaf
merkisviðburður enda erum við að
tala um eitt framsæknasta
tónlistarman allra tíma. Höfum
það á hreinu, engin tónlistarkona/
maður/manneskja í sögunni hefur
náð jafn mikill hylli í tónlistarsög-
unni þegar búið er að reikna eðli
tónlistarinnar sem hún gerir inn í
þá jöfnu. M.ö.o., að jafn sérlunduð
tónlist, þannig lagað, hafi náð jafn
mikilli heimsfrægð og raun ber
vitni er í senn ótrúlegt og ekki
verið jafnað af nokkr-
um. Þegar frægðarsól
Bjarkar hóf að rísa á
tíunda áratugnum var
Beck líkast til sá eini
sem var að gera svip-
aða hluti, þ.e. fremur
„sýrða“ tónlist sem
var engu að síður spil-
uð í útvarpi og á MTV.
En ólíkt Beck, sem
hefur vissulega haldið í sín sér-
kenni alla tíð, þá nýtti Björk sér
stöðu sína til að fara lengra, dýpra
og í raun réttri inn á slóðir sem
enginn hafði farið á áður, hvort
heldur hann kæmi úr poppi eða
klassík. „Hún er komin á stall með
Stockhausen og Bítlunum sem
frumkvöðull,“ sagði ég í blaði
þessu árið 2011 eftir að hafa fylgst
með frumflutningi á Biophiliu í
Manchester og ég stend við þetta.
Ég bætti við: „Það er ekki hægt
að lýsa því með orðum hvert hún
er að fara, og ótrúlegt hvernig
hún nær að vinna með alla þessa
tækni sem við höfum í dag, búa til
einhverja tónlist sem er fáránlega
„artí“ en aðgengileg um leið.“
Plötur Bjarkar eru venjulega
merkingarþrungnar, jafnvel þema-
bundnar, sem hefur verið algeng-
ara í seinni tíð. Á Biophilia var
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
Indie wire
SÁLFRÆÐITRYLLIR SEM SÍFELLT KEMUR Á ÓVART
SÝND Í 3D Í SAMBÍÓUNUM EGILSHÖLL
SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA
Telegraph
CHRISTIAN
BALE
MARGOT
ROBBIE
JOHN DAVID
WASHINGTON
CHRIS
ROCK
ANYA
TAYLOR-JOY
ZOE
SALDAÑA
MIKE
MYERS
MICHAEL
SHANNON
TIMOTHY
OLYPHANT
ANDREA
RISEBOROUGH
TAYLOR
SWIFT
MATTHIAS
SCHOENAERTS
ALESSANDRO
NIVOLA
AND ROBERT
DE NIRO
WITH RAMI
MALEK