Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 1
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2022 Uppgjör ElísabetarSaknaðarilmur eftir Elísabetu Jökuls– dóttur fjallar um flókið samband skáldsins við móður sína, en einnig um ást, áföll og söknuð. Við skrifin fann Elísabet að hún hafi loks fyrirgefið mömmu sinni og sjálfri sér um leið. 14 Hjálpaði hrjáð-um konum Vilborg AuðurÍsleifsdóttir Bickelfékk orðu í Þýska-landi fyrir að hjálpakonum í Bosníu. 10 Andblær tímansRúnar Gunnarsson fangaraugnablikin í nýrri bóksinni Gullöldinni. 18 Ein skærastastjarnan Í nýrri ævisöguum Paul New-man er dreg-in upp myndaf manni semhafði lítið álitá sjálfum séren komstáfram fyrir heppni og þraut-seigju. 24 L A U G A R D A G U R 2 9. O K T Ó B E R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 253. tölublað . 110. árgangur . Búnaður bifreiða til sölu getur verið ólíkur þeirri sem sýnd er á mynd. Laugavegi 172, 105 Rvk. www.hekla.is/audisalur Stuttur afhendingartími Rafmagnaður HEIMSMEISTARA- KEPPNI Í HAFRA- GRAUTARGERÐ UPPISTAND ER ALDREI BARA UPPISTAND MADAME TOURETTE 38BJÖRK Í ÚRSLIT Í SKOTLANDI 12 „Sú staðreynd að raforkukerfi lands- ins er ekki tengt raforkukerfi Evr- ópu kemur sér sérstaklega vel í því árferði sem nú ríkir og undirstrikar mikilvægi þess að standa vörð um sjálfstæði í orkumálum. Það sjáum við til dæmis með því að líta á þróun raforkuverðs annars staðar á Norðurlöndum sem hefur hækkað mikið,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdótt- ir, viðskipta- og mennigarmálaráð- herra, í aðsendri grein í Morgun- blaðinu í dag. Þar fer hún yfir þróun hagkerfa heims- ins, nú þegar verðbólga hefur ekki verið hærri í heiminum í fjóra áratugi. Lilja segir mikilvægt að Ís- land haldi áfram á þeirri braut að auka orkuöryggi sem muni leiða til sjálfbærni hagkerfisins. „Ísland hefur alla möguleika á að ná fullu sjálfstæði í orkumálum með aukinni framleiðslu á endurnýjan- legri orku til þess að standa undir rafvæðingu í samgöngum í lofti, láði og legi,“ skrifar Lilja Dögg enn frek- ar. Hún segir að þrátt fyrir gott al- þjóðasamstarf sem Ísland tekur þátt í sé það gæfuspor að Ísland sé ekki í Evrópusambandinu. „Með fullu for- ræði á stjórn efnahags- og peninga- mála sem og orkumála hefur Íslandi vegnað vel, eins og alþjóðlegur sam- anburður sýnir glögglega á ýmsum sviðum.“ Í greininni er ítarlega farið yfir verðbólguþróun ýmissa svæða í Evr- ópu og þróun verðs á raforku á Norðurlöndum. Orkuöryggi leiði til sjálfbærni - Viðskiptaráðherra segir mikilvægt að orkukerfi Íslands sé ekki tengt Evrópu MDamóklesarsverðið »23 Lilja Dögg Alfreðsdóttir Rökkvan fór fram í fyrsta sinn á Garðatorgi í Garðabæ í gærkvöld. Hátíðin einkennist af þátt- töku og hugmyndum ungmenna. Ungir tónlistar- menn komu fram og ungir hönnuðir og myndlist- armenn sýndu og seldu afurðir sínar. Haustsýning myndlistarfélagsins Grósku var þá opnuð á Rökkvunni ásamt nýrri sýningu á graf- ískum verkum Dieters Roth í sýningarrýminu Pallinum á Hönnunarsafni Íslands. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stuðmenn sungu á Rökkvunni í Garðabæ „Ég var skíthrædd en það var eitt- hvað sem sagði mér að skrifa sög- una. Það er eitthvað fallegt í þessu þrátt fyrir erfiðleikana og ljótleik- ann. Mér finnst ég hafa átt voða góða móður núna þegar ég hef fyrir- gefið og er hætt að vera barnið eða unglingurinn, heldur er þessi full- orðna kona sem sér hana úr fjar- lægð,“ segir Elísabet Jökulsdóttir sem nýverið sendi frá sér bókina Saknaðarilm en þar fjallar hún um samband sitt við móður sína. „Eftir að mamma dó uppgötvaði ég að ég hafði átt foreldra sem kenndu mér að lífið er ekki svart eða hvítt. Lífið er bara lífið sem ég verð að gjöra svo vel að kljást við, og við öll. Við gerum það því við erum hetjur og við erum snjöll,“ segir Elísabet í einlægu viðtali sem birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Morgunblaðið/Ásdís Viðtal Elísabet Jökulsdóttir rithöf- undur er viðtali í Sunnudagsblaðinu. Lífið er ekki svart eða hvítt - Fyrirgaf mömmu við að skrifa bókina Sýningarréttur á teiknimyndaþátta- röðinni Ævintýri Tulipop hefur nú þegar verið seldur til tíu landa. Fyr- ir utan Ísland eru sýningar þegar hafnar í Noregi. Þættirnir verða tal- settir á tungumáli hvers lands þar sem þeir verða sýndir. Ævintýri Tulipop eru fyrsta teiknimynda- þáttaröðin sem byggist á íslensku hugverki sem fer í alþjóðlega dreif- ingu. Búið er að semja um fram- leiðslu á fjórum þáttaröðum. Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Tulipop, segir að stefnt sé að því að selja þættina til yfir 80 landa. »20 Selja sýningarrétt að Tulipop til tíu landa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.