Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
29. október 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 142.57
Sterlingspund 164.97
Kanadadalur 104.67
Dönsk króna 19.237
Norsk króna 13.837
Sænsk króna 13.059
Svissn. franki 143.83
Japanskt jen 0.971
SDR 184.19
Evra 143.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.0891
BAKSVIÐ
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Sýningarréttur á teiknimyndaþátta-
röðinni Ævintýri Tulipop hefur nú
þegar verið seldur til tíu landa. Fyrir
utan Ísland eru sýningar þegar hafn-
ar í Noregi. Í öðrum ríkjum, s.s. í
Finnlandi, Kanada, Póllandi, Suður-
Afríku og í Mið-Austurlöndum, hefst
sýning þáttaraðanna á næsta ári.
Þættirnir hafa notið vinsælda hér á
landi og slegið áhorfendamet í Sjón-
varpi Símans. Eftir því sem Morgun-
blaðið kemst næst er þetta fyrsta
teiknimyndaþáttaröðin sem byggist á
íslensku hugverki sem fer í alþjóðlega
dreifingu.
„Við erum mjög ánægð með þenn-
an árangur,“ segir Helga Árnadóttir,
framkvæmdastjóri og annar stofn-
andi Tulipop.
„Við höfum stefnt að því um árabil
að framleiða vandaðar teiknimyndir
fyrir börn, sem henta til alþjóðlegrar
dreifingar í sjónvarpi. Þetta er metn-
aðarfull teiknimyndaþáttaröð sem
byggist á íslensku hugviti. Sala á sýn-
ingarrétti þáttanna er því ekki aðeins
viðurkenning á þáttunum sjálfum og
efni þeirra, heldur líka á íslensku hug-
viti og því sem hægt er að skapa hér á
landi.“
Hver þáttaröð inniheldur 13 þætti,
og búið er að semja um framleiðslu á
fjórum þáttaröðum. Fyrsta þáttaröð-
in er sem fyrr segir komin í sýningu
og framleiðsla á annarri þáttaröð er
langt komin. Breska dreifingarfyrir-
tækið Serious Kids sér um alþjóðlega
sölu þáttaraðarinnar.
Reynslumikið fólk
í framleiðslu
Ævintýri Tulipop byggist í stuttu
máli á hinum séríslenska ævintýra-
heimi sem nefnist Tulipop og fjöl-
breyttu persónunum sem þar búa, en
Tulipop-heimurinn hefur notið vin-
sælda meðal barna og fullorðinna á
Íslandi um árabil. Þær Helga og
Signý Kolbeinsdóttir, hönnuður og
skapari Tulipop-heimsins, stofnuðu
Tulipop árið 2010.
Til að vinna að handritsgerð þátt-
anna fengu þær til liðs við sig hóp
reynslumikilla handritshöfunda. Þar
má nefna Gunnar Helgason barna-
bókahöfund, Davey Moore, sem er
reynslumikill breskur höfundur og
hefur unnið með Puffin Rock og
Rastamouse svo tekin séu dæmi, og
Sara Daddy, sem hefur verið yfir-
handritshöfundur við gerð barnaefnis
fyrir bæði Disney og BBC.
Leikstjóri þáttaraðarinnar er Sig-
valdi J. Kárason. Fyrir utan fjölda ís-
lenskra kvikmynda og sjónvarpsþátta
starfaði hann um áraraðir fyrir Lata-
bæ og hefur því talsverða reynslu af
gerð barnaefnis. Gísli Galdur Þor-
geirsson semur tónlist fyrir þættina
og Gunnar Árnason í Upptekið sér
um hljóðvinnslu. Mikill metnaður er
lagður í tónlist þáttanna, meðal ann-
ars með frumsömdu lagi og texta í
hverjum þætti.
„Það er mikil þekking og reynsla til
staðar hér á landi til að vinna að efni
og framleiðslu þáttanna og við höfum
verið svo heppin að fá að njóta þess
við framleiðslu á Ævintýri Tulipop,“
segir Helga.
Talsett á mörgum tungumálum
Þá er töluverð áhersla lögð á tal-
setningu þáttaraðarinnar en um 350
börn mættu í opnar áheyrnarprufur
fyrir hlutverkin, sem haldnar voru í
nóvember á síðasta ári fyrir sýningar
hér á landi. Þá eru þættirnir talsettir
á tungumálum allra þeirra landa sem
þeir eru sýndir í. Helga segir það
skipta miklu máli.
„Talsetning barnaefnis færir efnið
nær börnum í hverju landi. Við lítum
þannig á að það auki jafnframt gæði
þáttanna og þess efnis sem verið er að
sýna börnum,“ segir hún.
Hún segir að sala á þáttaröðinni sé í
raun rétt að hefjast, en stefnt sé að
því að fyrir lok næsta árs verði búið að
selja sýningarrétt til yfir 20 landa, og
að þáttaröðin verði komin í sýningar í
yfir 80 löndum innan nokkurra ára.
„Við viljum að sjálfsögðu selja
þættina sem víðast og teljum að efni
þeirra og boðskapur eigi erindi út um
allan heim,“ segir Helga og vísar þar
til þess að hver þátturinn innihaldi
óvæntar og skemmtilegar uppákom-
ur þar sem fimm sögupersónur þátt-
anna þurfa að takast á við fjölbreyttar
áskoranir með vináttu og samvinnu
að leiðarljósi.
Varningur til nú þegar
Framleiðsla svona þáttaraðar er
stórt og umfangsmikið verkefni, en að
verkefninu koma hátt í 100 manns í
heildina. Spurð um fjármögnun verk-
efnisins segir Helga að Tulipop hafi
fengið til liðs við sig öfluga fjárfesta
sem hafa veitt verkefninu lið enda
hafi þeir haft trú á því. Auk þess hefur
framleiðslan fengið veglegan stuðn-
ing frá Kvikmyndamiðstöð Íslands,
Nordisk Film og TV Fond. Verkefnið
fær einnig endurgreiddan hluta þess
framleiðslukostnaðar sem fellur til á
Íslandi og segir Helga að hækkun
endurgreiðslu vegna kvikmyndagerð-
ar úr 25% í 35% skipti miklu máli og
styðji við áframhaldandi uppbygg-
ingu framleiðsluteymisins hér á landi.
Helga segir framleiðslu þátta-
raðarinnar í raun bara vera byrjunina
á ferðalagi Tulipop-hugverksins um
heiminn, en þegar krakkar kynnast
Tulipop-heiminum og persónum hans
á sjónvarpsskjánum verða til fjöl-
mörg tækifæri til að nýta hugverkið,
til dæmis í útgáfu bóka, tölvuleikjum,
leikföngum og öðrum varningi. Þá
kemur sér vel að ýmis varningur í
kringum sögupersónur Tulipop-ævin-
týraheimsins er nú þegar til eftir
þann rúma áratug sem félagið hefur
starfað. Félagið hefur hannað og látið
framleiða yfir 300 vörur sem tengjast
Tulipop og gert svonefnda nytja-
leyfissamninga um frekari fram-
leiðslu á varningi.
„Í flestum tilvikum þurfa framleið-
endur að veðja á að sjónvarpsefni eða
kvikmyndir nái ákveðnum vinsældum
áður en framleiðsla og sala á varningi
sem þeim tengist getur hafist. Í okkar
tilviki höfum við þó það forskot að
varningurinn er nú þegar til og þar er
hægt að gera enn meira,“ segir Helga
að lokum.
Sýningarréttur seldur til tíu landa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framleiðsla Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir stofnuðu Tulipop árið 2010 og hafa fylgt félaginu eftir.
Í hnotskurn
» Framleiddar verða fjórar
þáttaraðir til að byrja með.
» Um 100 manns koma að
verkefninu.
» Stefna á sölu til yfir 80
landa.
» Þættirnir talsettir í hverju
landi fyrir sig.
» Nú þegar er mikið til af
varningi sem tengist vöru-
merkinu um Tulipop-heiminn.
- Framleiðsla á fjórum þáttaröðum um Ævintýri Tulipop hafin - Fyrsta þáttaröðin komin í sýningu