Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 SKEIFAN 11 - 108 RVK - S:520-1000 - SPORTIS.IS SPORTÍS Nýverið birti ég les- endum Morgunblaðs- ins söguhriflu um rétt- arríki fornmanna; þanka um lánshæf- ismat og flokkunar- kerfi úrgangs með til- liti til endurvinnslu. Það er ekki nema von að einhverjir hvái. Við höfum tilhneigingu til að flokka fólk. Og sum- ir gjaldfella sig í orð- um og gjörðum, meðvitað eða ómeð- vitað. Það er meinið. Þolendur ofbeldis þekkja þá krísu að ná ekki utan um staðreyndir þegar þeir eru staðsettir á vettvangi glæps. Ger- endurnir kannski líka. Við þurfum aðstoð í tilfinningalegri ringulreið þegar við flokkum reynslu okkar af ofbeldi. Tildrög skrifanna eru þau að ég vildi varpa upp mynd úr hversdeginum til að lýsa þeirri úr- vinnslu sem við þurfum að leggja á okkur til að átta okkur á stöðu okk- ar í heiminum. Er okkur treystandi? Skjól fyrir ofbeldi samtímans? Treystirðu þér til að standa með þolanda ofbeldis? Ég þekki það af eigin raun hvernig lífið litast af því að vera aðstandandi; þau sem standa nærri verða þolendur þess líka. Þekkjum það öll. Þolandi eða aðstandandi; gildir það ekki einu? Ég er á móti ofbeldi og stend með þolendum ofbeldis því reynslan mót- ar mann. Og því stíg ég fram hér: Ég er sonur konu sem var beitt kynferðisofbeldi og hefur reynt að vinna sig út úr þeirri reynslu, meðal annars með harðsnúinni göfgun til- finninga eins og reiði og sársauka, um langa hríð og viljað styðja önnur sem búa að erfiðri reynslu. Það er hennar hlutskipti, eins og margra sem þráðu að njóta sannmælis á lið- inni öld, þar sem kyn, kynhneigð, stétt eða önnur staða gat orsakað jaðarsetningu. Hún var hluti þjóð- félagsbreytinga þar sem hin valda- lausu kölluðu eftir hinum heilaga rétti til að vera uppreistar mann- eskjur. Ég spyr þig: Getur þú ímyndað þér hvert hún sótti kraft- inn til að stíga fram, þrátt fyrir nið- urbrot og níðingsskap manns sem misbeitti valdi í krafti stéttar og stöðu? Það var jú fyrst fyrir hálfri öld síðan en hann þrjóskast við það enn í dag. Vettvangur glæps eða helgur steinn? Að „setjast í helgan stein“ er hug- tak sem sá sem til ófriðar efnir skyldi aldrei misbeita. Því eyði ég orðum í fyrsta og eina skiptið, í málsvörn öldungs eins sem sár- vorkennir sér fyrir njóta ekki frið- helgi með æru sína og orðspor, óskaddaður af réttarríkinu. Enn er lesendum, fjölskyldum og aðstand- endum misboðið og níðst á þol- endum; og nú loks fékk móðir mín nóg. Þá er mikið sagt. Þó ég hafi valið mér lífsmótandi starf, með vígsluheiti um þjónustu við Guð og menn, þá stoðar lítt að umvanda fyrir samviskulausu fólki. Ég vil þó reyna að hnika hug- skekkju lögspekingsins sem kvað sér hljóðs á síðum þessa blaðs með lokaorð sín á dögunum. Þar er mis- beitt hinu forna hugtaki yfir það að semja frið við Guð og menn fyrir ævilokin; að setjast í helgan stein. Þau orð merkja „að ganga í klaustur til iðrunar og yfirbótar, með bæn, þjónustu og sáttagjörð“. Mynd- hverfing yfir að gangast við mis- gjörðum og leita náðar Guðs. Því fer fjarri að sá sem friðhelgi krefst leiti náðar. Hann smyr í andlit viðhlæj- enda og játningabræðra spurning- unni um það hvað sé „að njóta sann- mælis“. Þannig krefst hann samsektar þeirra sem útvega vett- vang glæpa hans. Því býð ég örlít- inn fróðleik þó hollráð verði engin þegin. Of- beldinu er viðhaldið. Við þá sem velja sér opinberan vettvang með sjálfsréttlæting- arsvip til að útmála meintan fjölskylduharmleik, sak- lausum lesendum þessa fjölmiðils til miska, segi ég: Misbjóðið ekki fleir- um. Gangið til náða. Hvort varir; háðið eða náðin? Ég skýri ekki fleiri hugtök fyrir öldungi sem enga speki nemur. En kveðjan hljómar svona: „Heill sé þér skörungur; sjálfstæðishetja og frelsari hinna kúguðu Eystrasalts- ríkja! Þín er öll, saga hins óbrotna alþýðumanns og ritsnillings sem hefur líkt og goðsagnavera lagt und- ir sig konur og lönd, blómstur og börn, já skóga og tröll? Allt þetta hafa ósköpin skapað til handa þér, verndari alls óskapnaðar, til freist- inga og háðungar“. Annars á maður ekki að kveðast á við „orðserðandi satýrikona“ eins og þann sem galaði hér í liðinni viku. Þeim þykir mest um vert að gelt sé á móti. Amma mín segði ef sæi hún til þín: „Vittu nú til Jón minn, sumt er ekki svara vert. Það ætti reynslan af því að klæmast við ungmeyjar að hafa kennt þér.“ Annars á ekki að gantast með of- beldi hér á síðum blaðsins. Það varðar þó ábyrgð okkar allra og hæfni til sjálfsrýni að um það sé rætt. Þau sem gæta að sóma sínum reyna að forðast það að líkami þeirra verði að vettvangi glæps. Það tekst ekki alltaf. Mogganum er það til varnar að fórnarlömbum er fyr- irgefið nú til dags því það er ekki á ábyrgð þeirra að túlkun gerandans hallist að frösum eins og að „pilsið hafi verið stutt“ „sektin ekki sönn- uð“. Sannmælin um ævintýri satýrikonsins? Tjáningarfrelsið er dýrmætasti réttur manna. Við erum öll sammála um að það á ekki að þagga niður í heilbrigðri og þroskaðri umræðu. Sérstaklega ekki þar sem við lifum á tímum þar sem þöggun, rétt- hugsun, útskúfun og ærumeiðingar eru mikil meinsemd í samfélagi manna. En í hvert sinn sem meintur ger- andi fær rými til að niðurlægja meinta þolendur gjörða sinna þá er þar vettvangur glæps; ekki frammi fyrir lögum, heldur samvisku manna og siðferði. Ég votta samúð mína öllu sam- ferðafólki í „ævintýrinu“ sem líf hins mikla skólamanns og stjórn- vitrings hefur verið. Sem betur fer ráðum við því sjálf hvenær við stíg- um inn á það svið, hvaða hlutverk við tökum – ef við höfðum einhvern tíma tækifæri til þess – og hverju við höfnum. Við erum sjálfráða um það hvort, hvernig og hvenær æv- intýri „hins mikla satýrikons“ lýkur í okkar eigin lífi. Lífið er ekki stríðs- völlur kappa. Völd og áhrif ekki náðin sjálf. Höfðingjum fornaldar reyndist erfitt að sjá á eftir áhrifavaldi sínu og játast undir það lögmál að dómur sögunnar og æðri máttarvalda er ekki í þeirra höndum. Þeir höfðu val um að setjast í helgan stein. Ég hvet þig, hr. Jón Baldvin Hannibals- son, til þess að láta á það reyna. Vettvangur ofbeldis: Úrvinnsla Sr. Arnaldur Máni Finnsson »Ertu þol- andi ósann- gjarnra skil- greininga? Er hæðst að þér? Arnaldur Máni Finnsson Höfundur er guðfræðingur, sonur þolanda og faðir barna sem eiga rétt á skjóli fyrir ofbeldi. Fyrir okkur sem samfélag er mikilvægt að huga að eldri þegn- um þessa lands með sem allra besta móti. Eldra fólk er fjöl- breyttur hópur með ólíkar þarfir og það sem hentar einum þarf ekki að henta öðrum. Þá þarf samfélagið einnig að vera tilbúið til þess að takast á við sístækkandi hóp eldra fólks með það að markmiði að koma til móts við þarfir þess. Svo hægt sé að greina stöðu eldra fólks með mark- vissum og skilvirkum hætti er nauð- synlegt að hafa við höndina rétt tól og tæki. Af því tilefni hef ég lagt fram þingsályktunartillögu á Al- þingi um markvissa öflun gagna um líðan, velferð og efnahag eldra fólks. Líðan, velferð og efnahagur eldra fólks Í tillögunni er lagt til að félags- og vinnumarkaðsráðherra verði fal- ið að útbúa mælaborð með það að markmiði að halda utan um og safna tölfræðilegum upplýsingum um líðan, velferð og efnahag eldra fólks og ná þannig fram heildar- mynd af almennri stöðu eldra fólks í samfélaginu svo hægt sé að for- gangsraða verkefnum sem brýnt er að takast á við. Í dag liggja ekki fyrir markvissar, samræmdar og tímanlegar upplýsingar um líðan, stöðu og velferð eldra fólks á hverj- um tíma. Við þurfum að samræma framsetningu upplýsinga. Aðeins þannig getum við náð fram heild- armynd af stöðu eldra fólks á hverjum tíma fyrir sig. Þegar við höfum aðgang að slík- um gagnabanka geta stjórnvöld beint sjón- um sínum að þeim verkefnum sem brýn- ast liggja við og for- gangsraðað samkvæmt því. Önnur lönd hafa sum hver sett upp raf- ræn mælaborð eða gagnvirkar heimasíður sem birta tölfræði um ýmsa þætti er varða eldra fólk, velferð þess og líðan. Meðal þess sem slíkar upplýs- ingaveitur varpa ljósi á eru fjölda- tölur, kynjahlutfall í hverjum ald- urshópi, hve margir búa einir eða með öðrum, í eigin húsnæði eða leiguhúsnæði, fjöldi og aldur þeirra sem leita á bráðamóttökur, fjöldi þeirra sem fá tiltekna aðstoð eða þjónustu hjá sveitarfélagi sínu og svo mætti lengi telja. Nýtum reynsluna Sem liður í því að endurskoða fé- lagslega umgjörð barna á Íslandi þróaði Kópavogsbær mælaborð í samstarfi við UNICEF og félags- málaráðuneytið í tengslum við inn- leiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og verkefnið barnvænt sveitarfélag. Markmiðið með mæla- borðinu var að halda utan um helstu tölfræðigögn er varpa ljósi á líðan, velferð og réttindi barna á Íslandi. Mælaborðið hefur hlotið mikið lof og sýnt að það varpar góðu ljósi á stöðu barna á Íslandi. Horfa má til þess mælaborðs og útbúa sérstakt mælaborð sem hefur það að mark- miði að kortleggja líðan, stöðu og velferð aldraðra. Með mælaborði sem þessu má svo greina líðan og velferð eldra fólks og ná fram heild- armynd af almennri stöðu aldraðra í samfélaginu með það að markmiði að beina sjónum stjórnvalda að þeim verkefnum sem brýnust eru hverju sinni. Með nýju rafrænu mælaborði um líðan og velferð aldr- aðra mætti gera ráð fyrir að al- menningur, notendur og stjórnvöld hafi betra aðgengi að raunupplýs- ingum um það sem er að gerast og hvað kallar á rétta úrlausn sam- félagsins á hverjum tíma. Þá samdi félags- og barnamálaráðuneytið í lok árs 2020 við Akureyrarbæ um þróunarverkefni við að undirbúa og kortleggja uppsetningu á mæla- borði á líðan og velferð aldraðra, með hliðsjón af mælaborði barna. Mikilvægt er að taka þetta verkefni áfram og upp á næsta stig. Stefna til framtíðar Við þurfum að geta mælt að- stæður eldra fólks og við þurfum að nýta mælingarnar til að marka stefnuna til framtíðar, vinna að að- gerðaáætlun og úthluta fjármagni. Þá skiptir einnig verulegu máli að geta fylgst með hvort þær aðgerðir sem ráðist er í beri tilætlaðan ár- angur. Með öðrum orðum: við verð- um að geta mælt til að geta bætt. Það er staðreynd að breytingar á aldurssamsetningu þjóðarinnar eru ein af stóru áskorunum íslensks samfélags. Eldra fólki fjölgar og hlutfall aldraðra af heildarmann- fjölda fer ört hækkandi á næstu ár- um og áratugum. Þessi tillaga er ein varða á leiðinni að bættri stöðu eldra fólks á Íslandi. Eldra fólk er fjölbreyttur hópur Ingibjörg Isaksen » Það er staðreynd að breytingar á aldurs- samsetningu þjóð- arinnar eru ein af stóru áskorunum íslensks samfélags. Ingibjörg Isaksen Höfundur er þingflokksformaður Framsóknar Viðskipti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.