Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022 ✝ Nína Sigríður Geirsdóttir fæddist í Reykjavík 30. júní 1960. Hún lést á líknardeild- inni 13. október 2022. Foreldrar henn- ar voru Geir Arne- sen efnaverkfræð- ingur, f. á Eskifirði 14. maí 1919, d. 16. maí 1991, og Ása Valdís Jónasdóttir versl- unarkona, f. í Reykjavík 26. febrúar 1927, d. 15. júní 2001. tvítugt. Hún var miðbæjarkona en bjó þó á ýmsum stöðum bæði í Reykjavík og erlendis. Hún flutti til Jamaíku með sambýlis- manni sínum Orville J. Pennant fyrir sjö árum. Seinustu árin bjó hún í Reykjavík. Nína var kennari að mennt og lauk einnig prófi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hún starfaði við ýmislegt á ævinni, vann við garðyrkju hjá Kirkju- görðum Reykjavíkur, sá um einkagarða, m.a. fyrir breska, bandaríska og danska sendiráð- ið, vann við kennslu og síðast en ekki síst rak hún verslanirnar Jónas á milli og Exodus. Útför Nínu fer fram í kyrrþey að hennar ósk. Systkini Nínu Sigríðar eru: Jón Karl Friðrik, f. 19.4. 1952, kvæntur Sigrúnu Hjartar- dóttur, f. 18.5. 1952; Margrét, f. 15.2. 1954, gift Gísla Guðmunds- syni, f. 14.2. 1954; Jónas Halldór, f. 14.5. 1957, d. 17.5. 2008. Nína Sigríður ólst upp í Hvassaleiti frá hálfs árs aldri þar til hún flutti að heiman um Minningarnar um Nínu eru margar. Hún var alltaf í göngu- túrum, sama hvernig viðraði þá fór hún út og oft marga tíma á dag. Hún tók okkur eldri systk- inin með í göngutúra þegar við vorum lítil, þá skipti engu hvort um litla fætur væri að ræða, við gengum fram og til baka um Reykjavík. Þetta var æðislegur tími þar sem Nína kenndi okkur ýmislegt um lífið og tilveruna. Sagði okkur sögur, eða lygar sem við gleyptum við. Nína var í göngutúrum allt fram á síðasta dag, hún var með ríkt innra líf og útiveran veitti henni gleði. Öll unnum við á einhverjum tímapunkti með Nínu, annað- hvort í garðvinnunni eða í búð- unum hennar Jónas á milli og Exodus. Við systkinin lærðum svo sannarlega rétta verklagið í kringum Nínu, hvort sem um var að ræða hvernig best væri að hreinsa moldina þannig að blómabeðin væru eins og lista- verk eða hvernig bæri að þrífa búðina, brjóta saman flíkur og aðstoða viðskiptavinina. Auk þess að kenna okkur gott verk- vit lærðum við einnig mikið af hennar persónulegu eiginleik- um. Hún var laus við yfirborðs- kennd og fór aldrei í mann- greinarálit. Þannig mátti ekki sjá greinarmun á því hvernig hún ræddi við fyrrverandi for- seta Íslands eða við 12 ára við- skiptavin í Exodus. Nína hafði mikinn áhuga á heilsusamlegum lífsstíl og var grænmetisæta nánast allt sitt líf. Lífræna engiferið var í miklu uppáhaldi eða eldkálið eins og við kölluðum það. Hún elskaði að gera góð kaup í Nettó á heilsudögum og voru ein síðustu skilaboðin frá Nínu frænku: „Afsláttardagar byrj- aðir í Nettó.“ Hún var mjög flink í hönd- unum og lærði í Myndlista- og handíðaskólanum. Hún málaði alls konar myndir sem prýða heimili okkar í fjölskyldunni, skapandi og litríkar myndir sem eiga sérstakan sess í hjört- um okkar. Prjónaskapurinn var ákveðin hugleiðsla fyrir hana og þær mamma eyddu ófáum stundum í að ræða um hver væri að prjóna hvað og hvaða tækni væri best að beita til að ná hinu fullkomna stroffi. Nína flutti aftur til Íslands frá Jamaíku fyrir fjórum árum. Við áttum mjög góðar stundir saman á kaffihúsum þar sem draumar næturinnar voru oftar en ekki túlkaðir, enda þær mamma báðar sérlegar áhuga- konur um draumráðningar. Nína var djúp manneskja og andlega þenkjandi, auðvelt var að tala við hana um allt milli himins og jarðar. Hún var líka barnagæla, hafði gaman af því að hitta litlu krílin í fjölskyld- unni. Áður en veikindi Nínu ágerðust sótti hún börn okkar í leikskóla og pískaði þeim út í göngutúrum. Það er erfitt að hugsa til þess að þau fái ekki að kynnast henni betur og öllu því skemmtilega og fróðlega sem hún hafði frá að segja. Hún var búin að koma sér mjög vel fyrir í lítilli Nínulegri íbúð þar sem finna mátti fallega muni úr Hvassaleitinu, flottu málverkin hennar og ekkert nema hollustu í ísskápnum. Allt var svo snyrtilegt og í anda Nínu frænku, þarna naut hún þess að vera. Við hefðum svo mikið viljað hafa hana lengur hjá okkur í þessu lífi, og munum skála í líf- rænu engiferskoti (eldkáli) Nínu frænku til heiðurs um ókomna tíð. Þorbjörg, Ása Val- dís, Hjörleifur og Margrét. „Kannski er minn tími bara kominn,“ sagði Nína systir stuttu áður en hún hægt og hljótt gekk út í haustið. Ein fyrsta minning mín um hana er þegar hún var nýbúin að læra að lesa. Hún var fimm ára og bauð fram upplestur á Doddabók. Þetta hentaði ekki alltaf, kannski var sá sem átti að lesa fyrir kominn í yfirhöfn og á leið úr húsi, en þá vafðist það ekki fyrir henni að hraðlesa bókina. Lestraráhuginn átti eft- ir að fylgja henni alla tíð og í framhaldi af bókunum um Dodda las hún þrjá þykka doðr- anta, Þúsund og eina nótt. Nína var strax sem barn sjálfstæð og áræðin. Þegar hún var átta ára hringdi hún á skrif- stofu Þjóðviljans og sagðist vilja bera út blaðið. Sæst var á að leyfa henni að prófa, því hún var svo kotroskin eins og mað- urinn sagði. Þarna upphófust miklir göngutúrar sem stóðu yf- ir í ár. Dreifingarsvæðið var stórt, enda Þjóðviljinn ekki keyptur á hverju heimili. Blað- burðinn tók hún grafalvarlega, var meðvituð um að fara snemma að sofa til að vera upp- lögð í býtið, en afleiðing af því voru kvöldgöngutúrar sem hún fór sofandi um húsið með kodd- ann undir hendinni. Fjölskyld- unni létti stórlega þegar ákvörðun var tekin um að mál væri að þessu starfi linnti. Þessi fyrstu ár var lagður grunnur að því sem var svo ein- kennandi fyrir hana seinustu árin. Göngutúrar og lestur. Nína flutti heim frá Jamaíku fyrir fjórum árum og þrátt fyrir erfið veikindi voru þessi ár henni líka góður tími. Hún fór í gegnum líf sitt, ekki síst barn- æskuna, árin í Hvassaleitinu. Þar voru vinir í flestum nær- liggjandi húsum. Allir velkomn- ir alls staðar hvort sem það var til að vera með í drekkutíma, horfa á teiknimyndir í kana- sjónvarpinu eða skreppa í hita- kompuna á númer 75 sem var full af bókum og tímaritum. „Hvern ert þú að fara að leika við?“ spurði fjölskyldufaðirinn þegar hún birtist. „Engan, ég er að fara í hitakompuna að lesa,“ var svarið. Nína var skapandi og átti ríkt innra líf. Hún var endalaust dugleg og ósérhlífin og vandaði alltaf til verka. Samtöl við hana voru gefandi og full af hlátri. Henni leiddist ekki ein með sjálfri sér, hugurinn sístarfandi. Börnunum mínum var hún skemmtilegasta frænka í heimi þegar þau voru lítil, sagði sög- ur, sannar og lygasögur gjarn- an innblásnar af lesningu um arabískar nætur og örlög Sjera- sade, æfði með þeim dansa sem hún hafði lært í Kramhúsinu og að þekkja náttúruna og gefa henni nafn eins og henni einni var lagið. Á unglingsaldri réð hún þau í vinnu og kenndi þeim að vinna verk sín vel og sam- viskusamlega. Á fullorðinsaldri var hún þeim besti vinur. Eng- inn hugsaði betur um líkama og sál en Nína. Hún hjólaði til og frá vinnu með sólarvörn 50 á andlitinu löngu áður en það fékk meðmæli Lýðheilsustofn- unar. Hún vildi stýra sinni ferð sjálf, ekki bara hjóla-, aksturs- og göngutúrum heldur einnig þeirri ferð sem hún fór seinustu fjögur ár, umvafin þeim vinum og fjölskyldumeðlimum sem hún valdi og taldi sig hafa tíma fyrir. Blessuð sé minning Nínu systur minnar og bestu vin- konu, hennar er sárt saknað. Margrét. Nína S. Geirsdóttir Jæja Helga, þá ertu flogin upp á astralplanið og sit- ur ugglaust á spjalli við sjálfan Michael um michaelsfræðin í djúpu sympósíi um kónga, presta, þjóna, sögumenn og alla hina. Hugur minn víkur til hinna fögru Grundarþinga og það glymja í eyrum gömul hlátra- sköll er við og aðrir meðlimir Freyvangsleikhússins sátum við samningu hinna ýmsu ka- baretta er þar voru sýndir. Þá var oft glatt á hjalla. Þínar vöggugjafir og náðar voru margar í hérvist. Þú gast ausið úr Mímisbrunni þegar þér sýndist og hefðir getað kneyfað miklu meir þar úr ef vildir. Afbragðspenni er því var að skipta og leikkona af drottins náð. Þér féll vel að leika djarfar dándi- og hispursmeyjar, til- þrifin til dæmis ógleymanleg sem frjósemis- og ástargyðjan Freyja með allar sínar ára- móta- og skógræktarræður. Dætur mínar senda kveðjur og þakkir. Þær segja þig næman og góðan kennara er Helga Ágústsdóttir ✝ Helga Ágústs- dóttir fæddist 5. maí 1947. Hún lést 29. september 2022. Útför fór fram 27. október 2022. lagði sig í líma við að sinna sínum nemendum. Þú varst og yfirleitt hrókur fagnaðar hvort sem var í leikhúsi eða á kennarastofu. Ég gleymi því ekki er við kennarar sát- um í kamersi nær ótal gesti bar að garði. Þetta var á umbrotatímum í kennslufræð- um. Hvurjir eru þetta? hvísl- aði ég. Þetta eru sérfræðingar að sunnan með teoríurnar í töskunum, var svarið. Hafðu ævinlega þökk og góðar kveðjur í efri hæðir. Hjartans Diljá og Baldur. Innilegar samúðarkveðjur. Hannes Blandon í Upphæðum. „Hvað ætlarðu svo að skrifa um mig, litla mín?“ Ég hef það á tilfinningunni að vinkona mín kíki yfir öxlina á mér þar sem ég sit við tölvuna mína í litla húsinu við ána hér í Salz- burgarhreppi og reyni að koma hugsunum mínum og til- finningum í orð. Gott ef hún brosir ekki útí annað. Ég yppi öxlum vandræðaleg og hún segir: „Mundu bara elskan, það er aldrei svo lítið að það hressi ekki.“ Elsku Helga. Hvernig er hægt að segja frá vináttu sem markaði svo djúp spor í tilveruna að lífið verður ekki samt á eftir? Hvernig á að lýsa konu sem var öðruvísi en allir? Ég man ekki lengur hvernig hún varð á vegi mín- um, þessi fallega og glæsilega kona sem hafði komið norður yfir heiðar til að kenna. Bráð- gáfuð og hæfileikarík, einstak- lega skemmtileg og orðheppin og auðvitað stórkostlega flók- in. Hún var Stórveldi eins og dóttir hennar sagði í minning- argrein. Það gerði hana svo heillandi og á stundum hefur það eflaust fælt fólk frá henni. Það er ekki alltaf einfalt að vita hvernig koma á fram við manneskju sem er allt annað en hvunndagskona. Hún var hlý og góð og ég man ekki eft- ir því að hún hafi nokkru sinni talað illa um fólk. Ég var ung fjögurra barna móðir á þess- um árum og hafði glímt við djúpa kvíðaröskun frá ung- lingsárum. Lífið var fallegt og gott en á köflum svo hræði- lega sárt. Mér fannst ég lítið geta og kunna og stöðugt vera að bregðast sjálfri mér og öðr- um. Að vera elskuð án skil- yrða var dýrmæt reynsla sem ég þakka vinkonu minni. Hún dæmdi ekki samferðakonur og -menn. Til þess var hún of djúpvitur og meðvituð um hvað mennskunni fylgja óhjá- kvæmilega miklar hræringar á sálu og lífi. Hún var örlát, hjartað risastórt, en að sama skapi var hún ekki alltaf nægi- lega góð við sjálfa sig; það er nokkuð sem varð mér fyrst ljóst á síðustu árum. Henni var úthlutað ríkulegum skammti af þjáningu í tilver- unni. Eins og svo margir glímdi hún um tíma við áfeng- issjúkdóm og svo átti hún í áratugalangri baráttu við and- styggilegan sjálfsónæmissjúk- dóm. Um mannkosti og skarp- greind Helgu Ágústsdóttur væri hægt að hafa fjölmörg orð. Um bækurnar sem hún skrifaði eða þýddi eða störf hennar í útvarpi, leikhúsi og kórum. Leiðir okkar lágu að- eins saman í stuttan tíma með- an við báðar bjuggum í ná- grenni Akureyrar. Eftir að ég flutti frá Íslandi fyrir rúmum 20 árum varð sambandið stop- ulla. Ég heimsótti hana á nýj- um stöðum austur í sveitum og í Reykjavík. Stundum fékk ég að búa í íbúðinni hennar þegar hún var að heimsækja Diljá sína og ömmubörnin fallegu. Elsku Diljá sem annaðist mömmu sína í langvarandi veikindum og erfiðleikum og hefur nú misst móður og bróð- ur á skömmum tíma. Hugur minn er hjá þér. Mikið sem ég hefði viljað geta fylgt Helgu minni síðustu sporin. Ég kveð hana með söknuði og sendi ást og hlýju og einlægar samúðar- kveðjur öllum þeim sem elsk- uðu hana. Ég fleyti kerti á ánni í fjarlægu landi meðan hugsanir mínar leita yfir fjöll- in sjö og dalina sjö og hafið stóra, alla leið í norðrið þar sem hún verður lögð til hinstu hvílu. Guð blessi minningarnar og sefi sorgina. Rósa Kristín Baldursdóttir. Kæru vinir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna fráfalls elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, JÓHANNESAR B. HELGASONAR, Lundi 3, Kópavogi, áður Hamri, Þverárhlíð. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahússins á Akranesi, smitsjúkdóma- og hjartadeild Landspítala og heimahjúkrun í Kópavogi fyrir einstaka umönnun í veikindum hans. Anna J. Hallgrímsdóttir Hrefna Björk, Harpa Dís, Anna Sara Hallgrímur, Ásdís Elva, Ísabella Ýrr, Kormákur Logi Líney, Hafþór, Anna Karólína Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, AUÐAR ÁSDÍSAR SÆMUNDSDÓTTUR, Höfðagrund 7, Akranesi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða fyrir hlýja og góða umönnun. Einar Þórarinsson Helgi Þórarinsson Guðmunda M. Svavarsdóttir Þórarinn Þórarinsson Birgitta Guðnadóttir Reynir Þórarinsson Jóna B.H. Jónsdóttir ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALGARÐUR JÓHANN SIGURÐSSON prentari, lést á heimili sínu föstudaginn 30. september. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Íris Valgarðsdóttir Dan Lindholm Sigurður E. Valgarðsson Guðrún Ösp Sævarsdóttir Sólveig Stefánsdóttir Ægir Þorláksson afa- og langafabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og systir, SIGRÍÐUR FINNBJÖRNSDÓTTIR hárgreiðslumeistari, lést síðastliðinn sunnudag á Landspítalanum. Útför fer fram föstudaginn 4. nóvember klukkan 15:00 frá Vídalínskirkju í Garðabæ. Halldór G. Hilmarsson Björn Másson Sandra Liliana Magnúsdóttir Kristján Másson Ásbjörg Ólöf Sigurðardóttir Theodór Halldórsson Erna Leifsdóttir systkini og barnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.