Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2022
Elsku afi okkar.
Það er alltaf sárt
að kveðja og aldrei
hægt að undirbúa
sig fyrir það. Við
kveðjustund rifjast þó upp hlýj-
ar og góðar minningar um ynd-
islegan mann sem tók ævinlega
öllu með ró og spekt og vildi
ekkert láta fyrir sér hafa. Afi
bjó yfir hafsjó af fróðleik og
þekkingu, þá sérstaklega þegar
kom að sveitum landsins en afi
þekkti alla sveitabæi Eyjafjarð-
ar og víðar með nafni og vissi
ævinlega hvaða bændur bjuggu
þar, tvo til þrjá ættliði aftur.
Afi Geiri vann í Vegagerðinni
✝
Geir Guð-
mundsson
fæddist 19. ágúst
1942. Hann lést 14.
október 2022.
Útförin fór fram
27. október 2022.
og því tíðkaðist það
í þessari fjölskyldu
að heyra í afa frek-
ar en að kíkja inn á
Vegagerðina. Alltaf
var afi með putt-
ann á púlsinum og
gat sagt okkur
hvernig færð var á
öllum vegum lands-
ins. Um árið vorum
við systkinin á leið-
inni norður rétt
fyrir jól, mikið óveður hafði
verið í nokkra daga og Öxna-
dalsheiðin var lokuð í að
minnsta kosti tvo daga. Afi
nýtti sín tengsl og heyrði um
leið í barnabörnunum sínum og
sendi þau af stað norður þegar
hann frétti af því að það ætti að
hefja mokstur á heiðinni, löngu
áður en þær upplýsingar voru
opinberar.
Afi hafði óskaplega gaman af
samverustundum með fjölskyld-
unni og sérstaklega þegar ein-
hver stríðni átti sér stað, þá átti
vömbin til að hristast hjá þeim
gamla. Af einhverjum ástæðum
vildi hann sjaldnast vera með,
en það var þó ævinlega hægt að
treysta á að afi Geiri veitti óum-
beðna aðstoð í spurningaspilum
og gæfi út rétt svör hægri
vinstri, við litla hrifningu hinna
liðanna. Það mátti sjá að hann
skemmti sér konunglega við
þetta því vömbin hristist.
Afi fylgdist vel með afkom-
endum sínum, þótt þau væru
stundum á víð og dreif um Evr-
ópu. Hvort sem það voru hand-
boltaleikir, próf í skólanum eða
ný vinna var afi ævinlega með
allt á hreinu og var duglegur að
heyra í sínu fólki til að fá frétt-
ir.
Ævinlega var hlýtt og nota-
legt að koma til afa og ömmu og
aldrei yfirgaf maður staðinn
svangur. Það var ekki alltaf ein-
falt að fara eftir leiðbeiningum
frá afa. Þær voru ávallt gefnar í
áttum og hljóðuðu yfirleitt á
þennan veg: „Skrúfjárnið er í
norðausturhlutanum á skúff-
unni vestan megin.“ Fyrir
krakka sem var nýbúinn að
læra muninn á hægri og vinstri
var þrautin þyngri að fara að
þessum fyrirmælum. Afi var þó
alltaf tilbúinn til að leiðbeina.
Samband afa Geira og ömmu
Diddu var einstaklega fallegt
og þau ákaflega samrýnd. Í
seinni tíð, eftir að afi varð
heilsulítill og gat ekki gert eins
mikið og hann hefði viljað, var
hann þó alltaf með eins og t.d.
þegar slá þurfti blettinn, þá sá
amma um það en afi hélt á
snúrunni að sláttuvélinni. Sam-
vinna þeirra hjóna var einstök
og eru þau bæði miklar fyr-
irmyndir fyrir okkur barna-
börnin.
Það er huggun að vita að þú
lifir áfram í gegnum börnin þín.
Þú ert ekki enn hættur að
kenna okkur því bæði amma og
börnin þín koma til með að
leggja línurnar hér eftir.
Nú er komið að kveðjustund
elsku afi okkar. Við stöndum
hér í dyragættinni og fylgjumst
með þér fara, rétt eins og þú
gerðir svo oft þegar þú kvaddir
gesti og gangandi. Góða ferð afi
okkar, við elskum þig.
Þín barnabörn,
Alda, Geir og Heiðbjört.
Geir
Guðmundsson
✝
Viðar Árnason
fæddist í Vest-
mannaeyjum 12.
febrúar 1962.
Hann lést 9. októ-
ber 2022.
Foreldrar Við-
ars voru Árni
Hannesson frá
Hvoli í Vest-
mannaeyjum, f. 10.
desember 1921, d.
4. júní 1999, og
Laufey Hulda Sæmundsdóttir
frá Draumbæ í Vestmanna-
eyjum, f. 29. október 1920, d.
15. september 2002.
Systkini Viðars eru Sæmund-
ur, f. 1943, d. 2011, Sigríður
Guðrún, f. 1945, eiginmaður
hennar var Frímann Frímanns-
son, f. 1944, d. 2016, en þau
eignuðust fimm börn og eiga 13
barnabörn. Ársæll Helgi, f.
1949, giftur Ingunni Sig-
urbjarnadóttur og eiga þau
þrjár dætur og sjö barnabörn,
Kolbrún, f. 1953, gift Viðari
Þorkelssyni og
eiga þau tvö börn
og tvö barnabörn,
Sunna, f. 1955, gift
Gunnari Sturlu
Gíslasyni og eiga
þrjú börn og sex
barnabörn, Helena,
f. 1960, sambýlis-
maður Stefán
Ólafsson og eiga
tvö börn og eitt
barnabarn.
Viðar gekk að eiga eftirlif-
andi eiginkonu sína Svandísi
Ósk Stefánsdóttur, f. 28. októ-
ber 1962, þann 26. október
2007. Synir þeirra eru tvíbur-
arnir Ísak Bergmann og Jafet
Bergmann fæddir 6. júní 2002.
Unnusta Jafets er Guðrún
Clara Sigurðardóttir, f. 28. júlí
2001.
Viðar var kvaddur í kyrrþey
19. október 2022. Ösku hans
verður dreift í hafið við Kletts-
helli í Vestmannaeyjum með
vorinu og hækkandi sól.
Viðar var fæddur og uppalinn
í Vestmannaeyjum við gott at-
læti þar sem hann undi sér vel í
sjávarplássinu við leik og starf.
Hann var yngstur í hópi sjö
systkina.
Þrautseigja og viljastyrkur
einkenndu hans líf. Segja má að
einkunnarorð Viðars hafi verið
„aldrei að gefast upp“ og voru
þessi orð hvatning í lífinu á
hverju sem gekk. Reyndi að
finna lausnir en ekki vandamál,
sem endurspeglaði líf Viðars til
dauðadags.
Viðar var ótrúlega hraustur
og duglegur til allra verka. Sjó-
mennskuna stundaði hann frá
árinu 1979 og var hún honum í
blóð borin. Hann var háseti á
Sighvati Bjarnasyni VE og var
stoltur af að vera sjómaður, að
vera einn af áhöfninni. Hann
hafði alltaf gaman af veiði.
Hinn 18. desember árið 1987
lenti Viðar í bílslysi í Þrengsl-
unum með þeim afleiðingum að
bíllinn valt. Kom í ljós að hann
hafði lamast fyrir neðan mitti.
Lífsmunstrið tók stóran toll af
lífsgæðum ungs manns því Við-
ar var aðeins 25 ára gamall þeg-
ar slysið varð. Hann var þó allt-
af staðráðinn í því að ganga á
ný og byrjaði í endurhæfingu á
Grensásdeild. Hann fékk að
prufa spelkur og krafturinn var
svo mikill að maður sá hann
alltaf þokast áfram, hann ætlaði
að sýna öllum viljastyrkinn sem
hann hafði til að berjast.
Viðar sá með tíð og tíma að
það væri best að sætta sig við
aðstæðurnar og horfa til fram-
tíðar, að hjólastóllinn yrði hans
hlutskipti. Hann gekk til liðs við
ÖBÍ og var ötull við að selja
happdrættismiða til uppbygg-
ingar SEM-íbúðum fyrir fatl-
aða. Og hann var svo lánsamur
að fá íbúð.
Viðar fór að æfa borðtennis
hjá ÖBÍ, hann fékk ástríðu fyrir
greininni og tók þátt í fjölda
móta.
Mesti hamingjudagur í lífi
Viðars var þegar hann hitti
hana Ósk sína. Þau voru góðir
spilafélagar og gat hvorugt tap-
að og vildu alltaf halda áfram.
Þetta voru þeirra gæðastundir
sem þau nutu ásamt peyjunum í
glæsilegu húsi sínu í Mosó.
Viðar og Ósk ferðuðust mikið
utanlands sem innan og nutu
lífsins. Þau giftu sig 26. október
2007 í Lágafellskirkju við fal-
lega athöfn. Þau voru svo lán-
söm að eignast tvíburana Ísak
og Jafet, peyjarnir voru stolt
hans og hann naut þess að
fylgjast með þeim. Viðar hafði
gaman af að fara á útihátíðir;
Þjóðhátíð og Goslok í Eyjum.
Viðar tjáði okkur að hann hefði
farið í læknisskoðun og í ljós
komið að hann væri með
krabbamein í fætinum og það
þyrfti að taka hann af. Við vor-
um orðlaus, hann svekktur,
reiður og sár en ætlaði samt að
lifa fyrir Ósk sína, Ísak og Ja-
fet. Einnig var hann staðráðinn
í að halda upp á sextíu ára af-
mælið sitt í febrúar. Þessi veisla
var veisla aldarinnar og var há-
punkturinn kokkurinn; sonur
hans Jafet, sem hristi þessa
glæsilegu veislu fram úr erm-
inni. Viðar fór að leggja leið
sína í Ljósið. Hann var beðinn
að vera fyrirsæta fyrir Ljósið
og gerði hann það með mikilli
gleði og ákvað að raka af sér
helminginn af yfirskegginu.
Þannig var húmorinn hjá Við-
ari.
Viðar vissi sinn vitjunartíma
og í maí fóru þau Ósk til Krítar
og nutu sólarinnar. Eftir heim-
komuna var farið að draga af
Viðari, lungun farin að gefa sig
en hjartað var sterkt. Þegar
kallið kom hjá Viðari var hann
tilbúinn að kveðja þessa jarðvist
og hitta sitt fólk í sumarlandinu.
Við systkinin og makar vilj-
um þakka þér fyrir allt og allt
og sendum þér ljósið.
Sunna Árnadóttir.
Viðar Árnason
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AÐALHEIÐUR AUÐUR
FINNBOGADÓTTIR
frá Sólvöllum, Mosfellssveit,
lést mánudaginn 24. október.
Útför hennar fer fram frá Lágafellskirkju fimmtudaginn
3. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja
Bergmál líknarfélag. Streymt verður frá athöfninni á
https://www.netkynning.is/adalheidur-audur-finnbogadottir
Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat
Guðrún Ingþórsdóttir
Ingunn Ingþórsdóttir
Þórður Ingþórsson
Ómar Ingþórsson
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURBORG HELGADÓTTIR,
Hæðargarði 40,
lést laugardaginn 22. október
á Landspítalanum Fossvogi.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
3. nóvember klukkan 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B7 á Landspítalanum
Fossvogi.
Laufey Sigurrós Þormóðsd. Hafsteinn Þ. Júlíusson
Helga Þormóðsdóttir Ólafur Helgi Hreinsson
Snæbjörn Börkur Þormóðss.
Linda Björk Þormóðsdóttir Sverrir Árnason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRSTEINN ARNAR JÓHANNESSON
fv. bóndi og sparisjóðsstjóri,
Bárðartjörn,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
miðvikudaginn 26. október.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Rósa Jóna Jóakimsdóttir
Guðjón Arnar Þórsteinsson Þóra Kristín Snjólfsdóttir
Guðrún Rósa Þórsteinsd. Ragnar K. Ásmundsson
Sigrún Magna Þórsteinsd. Snorri Snorrason
Heiðrún Harpa Þórsteinsd. Haukur Sigurjónsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, amma
og langamma,
STEINUNN ÁRNADÓTTIR
skólaritari og kennari,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugar-
daginn 15. október.
Hún verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn
4. nóvember klukkan 13.
Hanna María Oddsteinsdóttir
Árni Sverrisson
Ingibjörg St. Sverrisdóttir
Gunnar Sverrisson Karen Bergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar og amma,
HILDUR GÍSLADÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
áður til heimilis á Fálkagötu 3,
lést á Droplaugarstöðum aðfaranótt
föstudagsins 7. október.
Útförin verður gerð frá Neskirkju mánudaginn 31. október
klukkan 13.
Ómar Stefánsson
Sara Stef. Hildardóttir
Rakel Hildardóttir
Dýrleif Gígja Magnadóttir
Úlfhildur Melkorka Magnadóttir
Sólbjört Vera
Steinunn Lilja Draumland
Freyja Eilíf Draumland