Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.10.2022, Blaðsíða 44
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vinsældir ameríska fótboltans hafa aukist jafnt og þétt hérlendis og stöðugt fleiri æfa og keppa í íþrótt- inni. „Ungmennastarf okkar er í stöðugri uppbyggingu og fimmta starfsárið er nýhafið,“ segir Úlfar Jónsson, þjálfari hjá Einherjum í Reykjavík, en félagið er jafnframt með ungmennalið í Grindavík. Undanfarin fjögur ár hafa Einherjar verið með afmörkuð æf- ingatímabil fyrir unglingahópana U18 (14-18 ára) og U15 (10-15 ára) og spilað einn til tvo leiki á hverju tímabili en nú er tímabilið frá sept- ember til apríl í fyrsta sinn. Úlfar segir framfaraskrefið lið í því að bjóða upp á sambærilega ástundun og í öðrum greinum. „Við erum líka að vinna í því að ganga inn í Íþrótta- og ólympíusamband Ís- lands og þá skiptir þetta máli.“ Samfara lengri æfingatíma og fleiri leikjum hafa talsmenn Ein- herja heimsótt skóla og kynnt íþróttina. „Við erum með samtals um 60 félaga á æfingum en heim- sóknir í skólana hafa kveikt í mörgum og því sjáum við reglulega ný andlit,“ segir Úlfar og leggur áherslu á að allir séu velkomnir. Í U18 æfa og keppa menn í klæðnaði eins og þekkist á meðal fullorðinna í ameríska fótbolt- anum. Í U15 er lögð áhersla á grunnæfingar, eins og að kasta og grípa bolta, hlaupa samkvæmt ákveðnu skipulagi og svo fram- vegis. Tæklingar eru ekki leyfðar en þess í stað togað í spotta á sér- stöku belti, sem leikmenn hafa um sig miðja. Mót í Kaplakrika á morgun Tvö lið eru í U18 ára hópnum, Fenrir í Reykjavík og Berserkir í Grindavík. Fenrismenn æfa tvisvar í viku, á miðvikudögum og sunnu- dögum í Skessunni í Kaplakrika í Hafnarfirði, en Berserkir eru með eina tvöfalt lengri æfingu á sunnu- dögum í Grindavík. U15 ára hóp- urinn æfir á gamla Fram-vellinum við Safamýri á fimmtudögum og í Kaplakrika á sunnudögum, en þrjú lið eru í Reykjavík og jafnmörg í Grindavík. Þau keppa aðra hverja helgi og verður næsta mót í Kapla- krika á morgun, 30. október. Úlfar var í menntaskóla í Brussel og kynntist þar íþróttinni. Hann bendir á að þegar hann hafi flutt aftur heim og byrjað að æfa hjá Einherjum 2016 hafi ekkert unglingastarf verið í boði. „Skipu- lagið hefur batnað stöðugt síðan og áhuginn aukist samfara því,“ segir hann og bætir við að beinar sýn- ingar frá bandarísku NFL- deildinni á Stöð 2 hafi haft mikið að segja. Fyrsti leikur tímabilsins var í Kaplakrika sl. sunnudag og þá vann Fenrir Berserki 16:8 en sjá má klippur úr leiknum á netinu (https://watch/gnzhDAcbUd/). Lið- in mætast aftur í Grindavík sunnu- daginn 6. nóvember en alls verða fimm leikir í haust. Liðin keppa ár- lega um Sjóvár-bikarinn og er leik- urinn ætíð í lok tímabilsins í apríl. Öflugt unglingastarf - Ameríski fótboltinn nýtur stöðugt meiri vinsælda - Einherjar í Reykjavík vilja ganga í Íþróttasambandið Leikur Reglulegar æfingar og leikir fyrir leikmenn yngri en 15 ára og yngri en 18 ára hjá Einherjum í vetur. LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 302. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is ÍÞRÓTTIR MENNING Heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum hefst í Liver- pool á Englandi í dag og sendir Ísland fjóra keppendur til leiks. Í kvennaflokki verða Hildur Maja Guðmunds- dóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir fulltrúar Íslands og í karlaflokki verða þeir Jónas Ingi Þórisson og Valgarð Reinhardsson fulltrúar lands og þjóðar. Róbert Kristmannsson landsliðsþjálfari segir það mikið afrek að ná svo mörgum keppendum inn á mótið þar sem úrtökuferlið sé mun strangara í ár. »37 Stórt afrek að ná inn fjórum keppendum á HM Tríó Sírajón kemur fram á Hallgrímsdögum í Hallgríms- kirkju í Saurbæ í Hvalfirði en tilefnið er ártíð sálma- skáldsins Hallgríms Péturssonar. Tríóið leikur í kirkj- unni í dag kl. 16 en það skipa Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, Einar Jóhannesson klarínettuleikari og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari. Munu þau leika Tríó eftir Katchaturian, Minningar eftir Atla Heimi Sveinsson og nýtt verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson sem hann kallar Ómbrot úr leikhúsinu. Verkið er svíta, samin upp úr sviðstónlist sem tónskáldið hefur skrifað. Tríóið er nýkomið heim frá Calgary í Kanada þar sem það hélt tónleika á vegum Mountain View International Festival. Var húsfyllir á tvennum tónleikum tríósins. Tríó Sírajón á Hallgrímsdögum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.