Morgunblaðið - 01.11.2022, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. N Ó V E M B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 255. tölublað . 110. árgangur .
BER HÖFUÐ
OG HERÐAR
YFIR AÐRA SPORNAÐ VIÐ FÆKKUN
HEFUR
ÞROSKAST
MIKIÐ Á TÍMABILINU
BROTHÆTTAR BYGGÐIR 14 BESTUR Í OKTÓBER 27bbbbb 28
Hrekkjavakan var haldin hátíðleg í gær og mátti víða á höfuð-
borgarsvæðinu sjá krakka í skrautlegum búningum ganga á
milli húsa og biðja húsráðendur um gotterí í stað grikks.
Siðurinn hefur rutt sér mjög til rúms hér á landi hin síðustu
ár og hefur það verið rakið til bandarískra menningaráhrifa.
Á Árbæjarsafni var einnig efnt til hrekkjavöku, en með þjóð-
legra sniði. Björk Bjarnadóttir, umhverfis- og þjóðfræðingur,
segir í samtali við Morgunblaðið skiljanlegt að fólk fussi yfir
þessum sið, en að hátíðin sé þó stórmerkileg. »11
Þjóðlegur hryllingur á hrekkjavökunni í Árbæjarsafni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
_ Líklegt þykir
að miðjuflokkur
Lars Løkke Ras-
mussens, Moder-
aterne, geti ráðið
úrslitum um
stjórnarmyndun í
Danmörku í kjöl-
far þingkosning-
anna í dag, en
flokkurinn var
stofnaður í fyrra.
Kosningarnar eru haldnar á
miðju kjörtímabili í kjölfar þess að
Radikale venstre hótaði vantrausts-
yfirlýsingu vegna minkamálsins.
Jafnaðarmannaflokki forsætis-
ráðherrans Mette Fredriksen er
spáð 44 þingsætum og fylgir
Venstre þar á eftir með 24 sæti, sem
yrði fækkun um 19 þingsæti miðað
við núverandi stöðu. Að öllum lík-
indum munu því hvorki vinstri- né
hægriflokkarnir fá meirihluta.
Fari kosningarnar eins og kann-
anir hafa bent til gæti Rasmussen,
sem var forsætisráðherra fyrir
Venstre 2009-2011 og 2015-2019,
því staðið uppi með pálmann í hönd-
unum og í raun valið hvort hann vill
leita til hægri eða vinstri við mynd-
un ríkisstjórnar. »13
Fyrrverandi forsæt-
isráðherra Dan-
merkur í lykilstöðu
Lars Løkke
Rasmussen
Stefán Einar Stefánsson
ses@mbl.is
„Nú, þegar við sjáum ferðamenn
dvelja lengur á landinu en áður,
vex þörfin fyrir hótelfjárfestingu
um landið.“
Þetta segir Jó-
hannes Þór
Skúlason, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka ferða-
þjónustunnar.
Nýjar tölur
Hagstofunnar
sýna að aldrei
fyrr hafa jafn
mörg hótelher-
bergi verið í notkun og nú í sept-
embermánuði. Fjölgaði þeim um
882 frá ágústmánuði og voru orðin
11.677. Flest voru herbergin í boði
fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar,
11.232 í september 2019.
„Þótt þessi uppbygging hafi átt
sér stað á síðustu árum sjáum við
að þörfin er meiri, ekki síst úti á
landi. Það má segja að það þurfi
að minnsta kosti eitt meðalstórt
eða stórt hótel á Austurlandi, tvö
slík á Norðurlandi og sitthvort á
norðan- og sunnanverðum Vest-
fjörðum,“ segir Jóhannes Þór.
Segir hann að uppbygging af
þessu tagi geti leikið lykilhlutverk
við að fjölga ferðamönnum árið um
kring.
Svæðin seldust upp
„Við sáum það í sumar sem leið
að þessi svæði voru oft á tíðum
hreinlega uppseld. Það var ekki
hægt að taka á móti fleiri ferða-
mönnum því gistirými var ekki
nægt. Það einskorðast raunar ekki
við þessi svæði sem ég hef nefnt
heldur einnig Suður- og Vestur-
land.“
Þörf á milljarða
hótelfjárfestingu
- Gistipláss er víða orðið flöskuháls á landsbyggðinni
Jóhannes Þór
Skúlason
MFleiri gistinætur seldar … »12
'15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 '22
Fjöldi hótelher-
bergja í september*
Heimild: Hagstofa Íslands
2015-2022,
þúsundir
11,711,2
8,17,6
Ekki hefur verið venja að sitjandi
formaður Sjálfstæðisflokksins, sem
jafnframt er oddviti hans í ríkis-
stjórn, fái á sig mótframboð, að sögn
Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmála-
fræðings.
Framboð Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar til formanns Sjálfstæðis-
flokksins er fjórða mótframboðið
sem Bjarni Benediktsson, sitjandi
formaður, fær á formannstíð sinni.
Fyrri þrjú mótframboðin komu öll
fram á meðan flokkurinn sat í
stjórnarandstöðu. »4
Morgunblaðið/Eggert
Valhöll Tekist verður á um for-
mannsembættið um helgina.
Framboð
án fordæma
- Fjögur mótfram-
boð gegn Bjarna