Morgunblaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 EM U-17 karla Undanriðill í N-Makedóníu: Frakkland – Ísland .................................. 4:0 Daouda Traore 15., Ismail Bouneb 38., Mathis Lambourde 87., 90. N-Makedónía – Lúxemborg.................... 2:3 Lokastaðan: Frakkland 3 3 0 0 12:0 9 Ísland 3 2 0 1 6:5 6 Lúxemborg 3 1 0 2 4:9 3 N-Makedónía 3 0 0 3 2:10 0 _ Frakkland og Ísland halda áfram og leika í milliriðli síðar í vetur. Svíþjóð Norrköping – Djurgården...................... 0:1 - Arnór Sigurðsson og Arnór Ingvi Traustason léku allan leikinn með Norr- köping. Andri Lucas Guðjohnsen kom inn á í uppbótartíma en Ari Freyr Skúlason var ónotaður varamaður. Elfsborg – Helsingborg .......................... 3:0 - Sveinn Aron Guðjohnsen og Hákon Rafn Valdimarsson léku allan leikinn með Elfs- borg og Sveinn lagði upp mark. Staðan fyrir lokaumferðina: Häcken 29 18 9 2 66:34 63 Djurgården 29 17 6 6 55:24 57 Hammarby 29 15 8 6 58:27 53 AIK 29 14 8 7 45:35 50 Kalmar 29 14 6 9 37:27 48 Elfsborg 29 12 10 7 54:35 46 Malmö FF 29 13 6 10 42:32 45 Gautaborg 29 13 3 13 38:38 42 Mjällby 29 10 10 9 32:33 40 Värnamo 29 9 10 10 33:43 37 Sirius 29 9 8 12 29:39 35 Norrköping 29 8 9 12 37:39 33 Degerfors 29 7 9 13 30:47 30 Varberg 29 7 7 15 28:55 28 Helsingborg 29 4 5 20 22:50 17 Sundsvall 29 4 2 23 28:76 14 _ Häcken er meistari en Helsingborg og Sundsvall eru fallin. Brommapojkarna og Halmstad eru komin upp í staðinn. Var- berg eða Degerfors fer í umspil gegn Öster. Rosengård – Djurgården ....................... 3:0 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Rosengård. Staðan fyrir lokaumferðina: Rosengård 24 19 3 2 68:24 60 Linköping 25 18 2 5 61:26 56 Häcken 24 16 5 3 55:20 53 Kristianstad 25 15 4 6 53:27 49 Vittsjö 25 13 6 6 39:24 45 Hammarby 25 14 3 8 41:28 45 Eskilstuna 25 12 4 9 32:29 40 Piteå 25 11 4 10 31:25 37 Örebro 25 12 1 12 37:37 37 Djurgården 24 8 2 14 30:42 26 Kalmar 25 4 4 17 23:63 16 Brommapojkarna 25 3 3 19 20:57 12 Umeå 25 3 3 19 20:64 12 AIK 24 2 2 20 16:60 8 _ Rosengård er meistari, AIK er fallið. Brommapojkarna eða Umeå fellur og hitt liðið fer í umspil við Uppsala eða Alingsås. Växjö og Norrköping eru komin upp. Danmörk Midtjylland – OB...................................... 1:2 - Elías Rafn Ólafsson var allan tímann á bekknum hjá Midtjylland. - Aron Elís Þrándarson kom inn á hjá OB á 86. mínútu og skoraði sigurmarkið. Staða efstu liða: Nordsjælland 15 9 4 2 24:12 31 Viborg 15 8 4 3 22:15 28 Randers 15 6 5 4 22:21 23 OB 15 6 4 5 19:21 22 Silkeborg 15 6 3 6 25:22 21 København 15 6 3 6 23:20 21 AGF 15 6 3 6 18:15 21 Holland B-deild: Jong Ajax – Willem II.............................. 1:2 - Kristian Nökkvi Hlynsson lék allan leik- inn með Ajax og lagði upp mark. 0-'**5746-' Olísdeild karla Haukar – Fram..................................... 32:34 Staðan: Valur 7 6 0 1 225:187 12 Fram 8 4 3 1 237:230 11 Selfoss 7 4 1 2 215:200 9 Afturelding 7 4 1 2 198:184 9 FH 7 3 2 2 192:197 8 ÍBV 7 3 2 2 242:206 8 Stjarnan 6 2 2 2 169:171 6 Haukar 7 2 1 4 196:197 5 Grótta 6 2 1 3 168:164 5 KA 6 2 1 3 167:174 5 ÍR 7 2 0 5 192:245 4 Hörður 7 0 0 7 200:246 0 Svíþjóð Malmö – Sävehof ................................. 25:26 - Tryggvi Þórisson skoraði ekki fyrir Sävehof. $'-39,/*" VÍS-bikar karla 16-liða úrslit: Grindavík – Ármann......................... 109:101 Selfoss – Höttur.................................... 83:92 KR – Hamar.......................................... 79:66 086&(9,/*" Knattspyrnuþjálfarinn Jonathan Glenn hefur gert tveggja ára samn- ing við Keflavík og verður hann næsti þjálfari kvennaliðs félagsins. Hann stýrði ÍBV á nýliðinni leiktíð, en var látinn taka pokann sinn í lok hennar. Eyjakonur höfnuðu í sjötta sæti deildarinnar undir hans stjórn. Glenn tekur við Keflavíkurliðinu af Gunnari Magnúsi Jónssyni, sem hafði stýrt Keflavík frá árinu 2016. Keflavík endaði í áttunda sæti Bestu deildarinnar á leiktíðinni, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. Gunnar tók við Fylki á dögunum. Glenn í Keflavík næstu tvö ár Ljósmynd/Sigfús Gunnar Keflavík Jonathan Glenn gerði tveggja ára samning við Keflavík. Landsliðskonan Isabella Ósk Sig- urðardóttir hefur samið við körfu- knattleiksdeild Njarðvíkur og mun hún leika með liðinu út yfirstand- andi leiktíð. Isabella kemur til Njarðvíkur frá uppeldisfélagi sínu Breiðabliki, þar sem hún hefur leikið sjö deildarleiki á leiktíðinni. Hún lék með South Adelaide í áströlsku B-deildinni á síðustu leiktíð, en sneri aftur heim í Smár- ann fyrir komandi tímabil. Isabella hefur hins vegar ákveðið að söðla um og semja við ríkjandi Íslands- meistara. Isabella til meistaranna Morgunblaðið/Árni Sæberg Njarðvík Isabella Ósk Sigurðar- dóttir hefur samið við meistarana. Fram er einu stigi frá Val á toppi Olísdeildar karla í handbolta eftir 34:32-útisigur á Haukum á Ásvöll- um í gærkvöldi. Framarar hafa komið skemmtilega á óvart í vetur og hefðu fáir búist við liðinu í öðru sæti, þegar liðin hafa spilað 6-8 leiki. Íslandsmeistarar Vals eru eina liðið sem hefur unnið Fram á leiktíðinni og er Fram eina liðið sem hefur unnið Val á tímabilinu. Fjórir í röð án sigurs Tímabilið hefur hins vegar ver- ið vonbrigði hjá Haukum og er lið- ið aðeins með tvo sigra í sjö leikj- um. Þá hafa Haukar leikið fjóra leiki í röð, án þess að fagna sigri. Framarar voru miklu betri í fyrri hálfleik og munaði tíu mörk- um í hálfleik, 22:12. Fram náði mest tólf marka forskoti í seinni hálfleik, en þá tóku Haukar við sér. Munurinn var kominn niður í fjögur mörk þegar sex mínútur voru eftir. Sigur Framara var þó ekki í hættu, því munurinn fór fyrst niður í tvö mörk þegar leik- urinn var svo gott sem búinn. Luka Vukicevic skoraði tíu mörk fyrir Fram og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson bætti við sjö. Geir Guðmundsson skoraði sjö fyrir Hauka og Andri Már Rún- arsson sex. Framarar einu stigi frá toppnum - Erfitt gengi Hauka heldur áfram Morgunblaðið/Árni Sæberg Ásvellir Luka Vukicevic hjá Fram og Atli Már Báruson úr Haukum eigast við í leik liðanna á Ásvöllum í Hafnarfirðinum í gærkvöldi. Hallgrímur Mar Steingrímsson, sóknartengiliður KA-manna, var besti leikmaðurinn í 27. og síðustu umferð Bestu deildar karla í fótbolta, sem leikin var á laugardaginn, að mati Morgunblaðsins. Hallgrímur skoraði bæði mörk KA þegar liðið sigraði Val og gulltryggði sér annað sætið í deildinni en Akureyrarliðið var fyrir nokkru búið að tryggja sér sæti í Evr- ópukeppni á næstu leiktíð. Hallgrímur er í síðasta liði umferðarinnar sem sjá má hér að ofan en hann náði jafnframt þeim stóra áfanga að ljúka sínu sjötta tímabili í röð með KA án þess að missa úr leik í deildinni. Hann hefur því leikið alla 133 leiki KA síðan liðið kom á ný í efstu deild árið 2017. vs@mbl.is 27. umferð í Bestu deild karla 2022 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Ingvar Jónsson Víkingur Ísak Andri Sigurgeirsson Stjarnan AdamÆgir Pálsson Keflavík Ísak Snær Þorvaldsson Breiðablik Hallgrímur Mar Steingrímsson KA Óskar Örn Hauksson Stjarnan Eyþór AronWöhler ÍA Dani Hatakka Keflavík Eiður Aron Sigurbjörnsson ÍBV Patrik Johannesen Keflavík Ívar Örn Árnason KA 8 7 7 6 2 2 4 4 5 5 Hallgrímur bestur í 27. umferð KR, Grindavík og Höttur úr úrvals- deildinni tryggðu sér í gærkvöldi sæti í átta liða úrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta með sigrum á lið- um úr 1. deild. KR-ingar, sem hafa farið illa af stað í Subway-deildinni í vetur, unnu 79:66-sigur á Hamri á heima- velli. Jordan Semple skoraði 16 stig og tók 13 fráköst fyrir KR og Ragn- ar Ágúst Nathanaelsson skoraði 21 stig og tók 19 fráköst fyrir Ármann. David Azore gerði 32 stig, tók átta fráköst og gaf átta stoðsend- ingar fyrir Grindavík í 109:101- heimasigri á Ármanni. Bragi Guð- mundsson skoraði 30 stig. Guðjón Hlynur Sigurðarson skoraði 29 fyr- ir Ármann. Þá vann Höttur 92:83-útisigur á Selfossi. Jafnt var á metum í fyrsta og fjórða leikhluta en Hattarmenn voru sterkari í öðrum og þriðja og lögðu með því grunninn að sigr- inum. David Ramos skoraði 25 stig fyrir Hött og Srdan Stojanovic skoraði 21 og gaf 11 stoðsendingar fyrir Selfoss. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bikarinn Roberts Freimanis hjá KR og Ragnar Ágúst Nathanaelsson, fyrir- liði Ármanns eigast við í Frostaskjólinu í Vesturbænum í gærkvöldi. Úrvalsdeildarliðin fóru áfram Jón Axel Guðmundsson, landsliðs- maður í körfubolta, er á förum frá uppeldisfélaginu Grindavík og á leið til Pesaro á Ítalíu á tímabundn- um samningi. Grindvíkingurinn staðfesti við Morgunblaðið í gær að hann væri á förum frá Grindavík. Ítalski miðill- inn Basket Marche segir Jón Axel á leið til Pesaro. Jasmin Repesa, þjálfari Pesaro, þjálfaði Jón Axel hjá Bologna á síðasta ári. Hann þjálfaði einnig Jón Arnór Stefáns- son hjá Roma á sínum tíma. Jón Axel hefur leikið með Frank- furt og Crailsheim í Þýskalandi síð- ustu ár, auk Bologna. Þá æfði hann með NBA-liðum í sumar. Jón Axel lék aðeins tvo leiki með Grindavík á leiktíðinni og skoraði í þeim 18 stig, gaf 7,5 stoðsendingar og tók 6 frá- köst. Pesaro er í fimmta sæti ítölsku A-deildarinnar með þrjá sigra og tvö töp eftir fimm leiki. Jón Axel frá Grindavík til Ítalíu Morgunblaði/Arnþór Birkisson Ítalía Jón Axel Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.