Morgunblaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 22
Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Óska eftir Sjónvarp óskast Óska eftir notuðu Led sjónvarpi 19 tommu logigs. Upplýsinar í síma 692-8540 Ýmislegt Ný jólaskeið frá ERNU fyrir 2022 komin. Kíkið á nýju skeiðina á síðunni erna.is. Hönnuð af Raghildi Sif Reynisdóttur og fæst í verslun okkar að Skipholti 3. Frí póstsending ERNA s. 552 0775, erna.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Leikfimi kl. 10.00. Lesh- ringur kl. 11. Erlent handverksfólk kl. 10-12. Handavinna kl. 12-16. Kar- lakórsæfing kl. 12:45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45- 15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Áskirkja Jólabasar Áskirkju verður þann 6 nóvember kl 14. Margvíslegir munir og fatnaður til sölu og glæsilegur kökubasar. Vöfflukaffi fyrir 1000kr. Ef þið getið gefið okkur muni á basarinn þá ko- mið með þá á opnunartíma kirkjunnar til kirkjuvarðar Ef þið hafið hug og færi á að gefa okkur bakkelsi fyrir kökubasarinn þá verðum við mættar kl 10 samdægurs og þiggjum með bros á vör Safnaðarfélag Áskirkju Boðinn Þriðjudagur 1. nóvember: Pílukast kl. 09:00. Bridge og Ka- nasta kl. 13:00. Sundlaugin opin til kl. 16:00. Bústaðakirkja Félagsstarf er á miðvikudögum frá kl 13-16. Spil, handavinna og kaffið góða á sínum stað, prestar kirkjunnar eru með hugleiðingu og bæn. Gestur dagsins verður Aðalsteinn Ásberg Si- gurðsson. Hann verður með erindi um sálma sem hann hefur ort og eru í nýju sálmabókinni. Erindið er um kl 14:30 þegar að kaffið er. Hlökkum til að sjá ykkur Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 13.30. Fella- og Hólakirkja Eldriborgara starf alla þriðjudaga kl.13.00. Byr- jum með helgistund í kirkjunni kl. 12 og eftir stundinna er farið í saf- naðarheimilið í súpu og brauð og skemmtileg dagskrá þar á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Prjónað til góðs kl. 8:30-12:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Myndlis- tarhópurinn Kríur kl. 12:30-15:30. Heimaleikfimi á RUV kl. 13:00-13:10. Bónusrútan kl. 13:10. Dansað með göngugrindurnar kl. 13:15-14:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Bókabíllinn kl. 14:45. Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi 9:00 QJ-Gong í Sjálandssk. 9.00-12.00Trésmíði í Smiðju 10.00 Ganga frá Jónsh. 11.00 Stóla-jóga í Sjálandssk. 12.15 Leikfimi í Ásgarði 13.00-16.00Trésmíði í Smiðju 13.10 Boccia í Ásgarði 13.30 Aukum lífsgæði á efri árum - Elísa Viðarsdóttir 13.45-15.15 Kaffiveitingar í Jónsh. 14.15 / 15.00 Línudans í Sjálandssk. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10:00 Listaspírur kl. 13:00 – 16:00. Bókband kl. 13:00 – 16:00 Allir velkomnir Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 1. nóvember verður opið hús fyrir el- dri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13 - 15. Margt er til gamans gert. Munum fagna vetri með söng. Að opna húsinu loknu er kaffi og meðlæti. Umsjón hefur Kristín Kristjánsdóttir djákni. Kyrrðarstund hefst kl, 12. Að kyrrðarstund lokinni er boðið uppá léttan hádegisverð gegn vægu gjaldi. Verið velkomin! Gullsmári Þriðjudagur: Myndlist kl. 9:00.Tréútskurður kl. 13:00. Ca- nasta kl. 13:00. Virkni og vellíðan, stólaleikfimi kl. 13:00. Leshópur kl. 20:00, allir velkomnir. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Hu- gleiðslunámskeið kl. 10:30. Bridge kl. 13:00. Bingó kl. 13:15. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Þriðjudagur: Listmálun kl. 9:00. Boccia kl. 10:00. Helgistund kl. 10:30. Leikfimihópur í Egilshöll kl. 09:30 og kl. 11. Spjallhópur í Borgum kl. 13:00. Línudans kl. 13:00. Sundleikfimi í Grafarvogslaug kl. 14:00. Gleðin býr í Borgum. Neskirkja Krossgötur kl. 13.00. Allir heilagir og allar sálir. Steingrímur Þórhallsson organisti fjallar um þekktar sálumessur. Kaf- fiveitingar. Samfélagshúsið Vitatorgi Kaffispjall í setustofu 09:00-10:00 - Bútasaumshópur í handverksstofu kl. 09:00-12:00. Hópþjálfun í setus- tofu kl. 10:30-11:00 og síðdegiskaffi kl.14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9.00. Pútt á Nesvöllum á Austurströnd 5, kl. 10.30. Fjölmennum á viðburðinn: Gamlar myndir á breiðtjaldi. Leifur Reynis- son sýnir myndir frá tímabilinu 1940-1960 í hátíðarsal Gróttu við Suðurströnd í dag kl. 14.00. Allir velkomnir. Umræður og kaffisopi. Ath. nk. fimmtudag verður félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Vantar þig fagmann? FINNA.is Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 Í dag, 1. nóvem- ber, hefði Jón bróðir minn orðið 68 ára, hefði honum enst aldur. En hann lést í sumar eftir skamm- vinn veikindi, því miður. Það skal játað hér að andlát hans fékk svo á mig að ég vildi ekki horfast í augu við það og afneitaði því lengi vel. Minningargrein um hann var ekki á dagskrá. Enda lífið einfaldlega fráleitt án hans. Þakkarskuld mín við hann er þó of mikil til að bera lengur ein og afmælisdagurinn hans góður dagur til að deila þökkinni með öðrum. Jón var einstaklega hlýr og Jón Magnússon ✝ Jón Magnússon fæddist 1. nóv- ember 1954. Hann lést 26. júlí 2022. Útför Jóns fór fram 15. ágúst 2022. skemmtilegur mað- ur. Hann var örlátur svo af bar og mikill gestgjafi. Hann naut þess að elda góðan mat fyrir gesti sína, eins og móðir okkar Ingibjörg. Hann fékk glaðlyndi föður okkar og frásagnar- gáfu í vöggugjöf og því var heimsókn til hans bæði veisla fyr- ir líkama og sál. Venjulegur heim- ilismatur varð að sælkeramáltíð hjá Jóni Í samskiptum okkar systkin- anna var hann oftar veitandi, þótt ég væri eldri. Það var honum ein- faldlega eðlislægt. Við náðum æ betur saman með árunum. Bragi, maðurinn minn, féll fyrir Jóni við fyrstu kynni, eins og fleiri, og var ekki síður áhugasamur en ég um að heimsækja hann á Akureyri eftir að hann settist þar að. Þeir gátu setið að spjalli langt fram eft- ir kvöldi, þótt ég væri löngu farin að sofa. Það var alltaf nóg húsrúm hjá Jóni, hvort sem var í fallega litla húsinu hans á Eyrarvegi eða í agnarlitlu íbúðinni áður í Norður- götu, sem hann var ætíð fús að lána okkur ef við vorum á ferðinni. Þótt Jón væri ekki sjálfur heima var nærvera hans nærri áþreifan- leg í ilmandi hreinni íbúðinni þar sem hver hlutur var á sínum stað. Ég veit að Bragi mun sakna þess að geta ekki lengur heimsótt Jón á fallega heimilið hans á Eyrarvegi, ekki síður en ég. Þar átti maður alltaf vísar skemmtilegar stundir. Hann var myndarlegur í sjón, hár, beinvaxinn og sterkbyggður, með beinabygginguna og líkams- styrkinn frá móður okkar. Hann var, má segja, stór maður bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu og skilur því eftir sig mikið tóma- rúm. Það er sárt að geta ekki leng- ur horfið í hlýjan faðm hans. Að lokum örlítið minningarbrot af mörgum: Við Bragi erum stödd í samkomuhúsinu á Hofsósi í byrj- un aldarinnar á þorrablóti Vest- urfarasetursins í boði Jóns bróð- ur. Það er þéttsetið við hvert borð í salnum og eftirvænting í lofti. Ræðumaður kvöldsins, Jón Magn- ússon, er að stíga á svið. Ég bíð spennt. Um leið og hann hefur mál sitt þagnar kliðurinn í salnum. Svo brjótast hlátrasköll út og halda áfram jafnt og þétt alla ræðuna. Mikið er hann fallegur þarna á sviðinu, hávaxinn og myndarleg- ur, með þykka liðaða hárið sitt að- eins úfið. Og skemmtilegur, drep- fyndinn! Þegar ballið byrjar eftir borðhaldið kemur hann skálmandi til mín og býður mér upp í dans. Ég finn notalegt handtak hans á herðunum og svo leggur hann vangann að enni mér. Það er ró- legur dans og hann skammast sín hreint ekki neitt fyrir að vanga við systur sína innan um allt þetta fólk. Takk fyrir skemmtunina, elsku Jón. Far vel elsku bróðir. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Kristín Í dag kveð ég elsku Hiddu frænku mína. Hidda var alltaf svo ljúf, róleg og vel tilhöfð, hún var þessi lekkera týpa. Hún var syst- ir mömmu og eru svo að segja all- ar mínar minningar um Hiddu tengdar mömmu. Það var ákaf- Hildur Gísladóttir ✝ Hildur Gísla- dóttir fæddist 26. apríl 1938. Hún lést 7. október 2022. Útför hennar fór fram 31. októ- ber 2022. Eftirfarandi grein er endurbirt en niðurlag hennar vantaði. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. lega fallegt systra- samband á milli þeirra tveggja og oft var hlegið þegar þær rifjuðu upp gamla tíma. Ég við- urkenni að ég skildi nú ekki alltaf hvað þær voru að segja, var eins og þær töl- uðu einhverja skandinavísku sem var sambland af ís- lensku, dönsku og líklegast sænsku bara. Ég fékk þó tækifæri til að kynnast Hiddu utan fjölskyld- unnar þegar ég fór að læra hár- snyrtiiðn í Iðnskólanum í Hafn- arfirði haustið ’97. Þar kenndi Hidda í mörg ár, sem og í Iðn- skólanum í Reykjavík, og mér þótti einstaklega gaman að fá að kynnast þessari hlið á henni. Sem kennari sýndi hún sömu hliðar, ávallt róleg og ljúf. Það kæmi mér ekki á óvart að hún hafi lík- legast kennt nærri öllum okkar sem fórum í hársnyrtiiðn frá ní- unda áratug síðustu aldar og þangað til hún fór á eftirlaun, þá orðin sjötug að aldri. Henni fannst nú oft heldur mikill hávaði í okkur, æðibunugangur og mikið mas þar sem við stóðum sveitt og úfin að reyna að muna hvernig átti að greiða bylgjurnar, láta klifsin snúa, rúlla upp múrsteina- upprúllinu eða túpera hárið svo greiðslurnar myndu nú haldast, a.m.k. þangað til módelin kæmu heim til sín. Alltaf hélt Hidda ró sinni, bara eins og hennar var von og vísa. Sagði að þetta kæmi allt saman, við skyldum bara vera ró- leg. Mikið er ég þakklát fyrir Hiddu frænku mína. Hún kenndi mér margt og á ég henni margt að þakka. Þín gullnu spor yfir ævina alla hafa markað langa leið. Skilið eftir ótal brosin, bjartar minningar sem lýsa munu um ókomna tíð. (Hulda Ólafsdóttir) Takk fyrir allt elsku Hidda mín. Takk fyrir hvað þú varst mömmu góð systir. Takk fyrir tímann sem þú gafst þér til að kenna mér og leiðbeina. Takk fyrir að hvetja mig til þess að taka meistarann. Takk fyrir allt og allt. Hvíldu í friði elsku frænka. Eva. ✝ Bylgja Björk Guðjónsdóttir fæddist 16. janúar árið 1960 í Reykja- vík. Hún lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans 10. október 2022 eftir baráttu við blóð- krabbamein. For- eldrar hennar voru Dóra Friðleifsdóttir, f. 11. desember 1930, d. 12. janúar 2018, og Guð- jón Árni Ottósson, f. 8. desember 1928, d. 16. apríl 2017. Bylgja var þriðja í röð sex systkina. Þau eru Birna, f. 1953, Heimir Jón, f. 1954, Halldóra Kristín, f. 1964, Ottó Eðvarð, f. 1971 og Hulda, f. 1975. Bylgja Lind, f. 2005, Albert Örn, f. 2009 og Aldís Edda, f. 2015. 3) Dóra Björk Steinarsdóttir, f. 1987, eig- inmaður hennar er Björn Ingi Björnsson, f. 1983 og eru börn þeirra Anika Diljá, f. 2013, Katr- ín Erla, f. 2014, og Jakob Högni, f. 2018. Bylgja ólst upp í Bústaðahverf- inu og gekk í Breiðagerðisskóla og Réttarholtsskóla. Hún tók landspróf 1976 og fór í Verzl- unarskóla Íslands ári síðar og lauk þaðan verzlunarprófi árið 1979. Hún vann lengst af við bók- hald en á síðari árum sínum vann hún við umönnun á Eir hjúkr- unarheimili. Starfið kveikti áhuga hennar á frekara námi og útskrif- aðist hún úr félagsliðanáminu árið 2019. Bylgja var námfús og áhugasöm og var sífellt að bæta við sig í námi og hinum ýmsu námskeiðum. Meðal áhugamála Bylgju voru kórsöngur og var hún meðlimur í Árnesingakór Reykja- víkur í fjölda ára. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. var gift Steinari Þór Ólafssyni, f. 1960, frá árunum 1982- 2002 og eignuðust þau þrjú börn. Þau eru: 1) Árni Þór Steinarsson, f. 1979, eiginkona hans er Þóra Kristín Þór- hallsdóttir, f. 1979 og börn þeirra eru Andri Þór, f. 2002, Jóel Orri, f. 2005 og Arnar Breki, f. 2009. 2) Daníel Örn Steinarsson, f. 1981, eig- inkona hans er Ásdís Björk Jó- hannsdóttir, f. 1982 og börn þeirra eru Indíana Ósk, f. 2001, sambýlismaður Indíönu er Hilm- ar, f. 2001 og eiga þau saman eitt barn, Albert Óla, f. 2020, Lilja Elsku mamma, mikið á ég eftir að sakna þín og að hafa þig hjá okkur í lífinu. Ég mun sakna nærveru þinnar, bross þíns, hlát- urs og húmors. Mér þykir sárt að hugsa til þess hversu snemma þú varst kvödd frá þessum heimi, allt of snemma vegna þessa öm- urlega sjúkdóms sem þú hafðir barist svo hetjulega á móti. Þú varst sjálfstæð og ákveðin, hugrökk, glaðlynd, fróðleiksfús og ávallt sönn sjálfri þér. Nægju- söm og hugulsöm en á sama tíma algjör nagli. Frábær amma og hugmyndafrjó með eindæmum. Ég kveð þig stoltur og þegar ég hugsa til baka um öll árin sem við höfum átt hvort annað að þá fyllist ég þakklæti yfir svo mörgu. Takk fyrir lífið og ástúð- ina sem þú gafst mér, það er svo ótrúlega margt sem ég hef lært af þér. Takk fyrir að kenna og sýna mér að lífið hefur margar hliðar. Bæði skuggahliðar og sól- skin, bros og tár, að lífið sé alls konar og fjölbreytileikinn af hinu góða. Þrátt fyrir að lífið sé oft harð- ur og óútreiknanlegur húsbóndi sem hefur stundum smitandi áhrif yfir í manns eigið líf þá eigi maður að taka lærdóm út úr erf- iðu tímunum og að njóta góðu tímana eins vel og hægt er. Halda höfði þó á móti blási og sýna bæði lífinu og dauðanum virðingu. Þakka þér fyrir þinn hluta í að gera mig að þeim manni sem ég er í dag. Marga góða mannkosti á ég þér að þakka sem þú ýmist gafst mér í vöggugjöf eða hjálp- aðir mér að rækta. Þakka þér fyrir að færa mér og fjölskyldu minni svo mikla gleði og ham- ingju í gegnum árin. Vonandi einn daginn, einhvern tímann seinna, í öðrum heimi munu vegir sálna okkar liggja saman á ný. En þangað til munt þú alltaf lifa í huga mínum og eiga stað í hjarta mínu. Þar sem þú varst mikill tónlist- arunnandi og ég ekki maður margra orða þá enda ég á broti úr laginu Orðin mín: „Þau eru stirð. Þau eru fá. Þau sjálfsagt aldrei flugi ná. Þau munu engu að síður alltaf bíða þín.“ Þinn sonur, Daníel Örn Steinarsson. Bylgja systir var 15 ára gömul þegar ég fæddist, búin að upplifa marga erfiða hluti sem ekkert barn á skilið. Og þarna er hún sett í enn eina stöðuna sem hún hefur ekki þroskann í, hún er orð- in móðir litlu systur sinnar. Að þroskast og dafna í vanvirkri fjöl- skyldu gaf okkur ekki gott vega- nesti, en Bylgja gerði sitt besta og eins vel og hún kunni. Samskiptum okkar lauk fyrir tæpum níu árum, við reyndum báðar að laga samband okkar en því miður tókst það ekki. Systir mín var góð kona þrátt fyrir erf- iðleika í æsku sem mótuðu líf hennar á þann hátt sem það gerði. Ég syrgi örlög Bylgju og ég syrgi samband okkar. Elsku systir hvíl í friði, ég elska þig. Þín systir, Hulda. Félagi okkar til margra ára hún Bylgja hefur kvatt þetta jarð- líf. Hún kom og fór eins og fuglar vorsins, há og grönn og ljós yfir- litum. Staldraði ekki alltaf við heilan vetur hjá okkur í ÁR-kórn- um enda vann hún oft vaktavinnu og því ekki auðvelt að mæta á all- ar æfingar. Hún var góður félagi, hafði yndi af söng og fallega alt- rödd. Hlátur hennar var eilítið hrjúfur og smitandi og því fylgdi henni alltaf gleði. Félagslynd var hún og tók þátt í flestum skemmt- unum og ferðalögum kórsins inn- an lands og utan. Einnig sinnti hún ýmsum störfum í þágu kórs- ins sem henni eru nú að leiðarlok- um þökkuð af alúð. Kórfélagar senda fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. En sáðkorn í jörðu spíra og vaxa að vori - vonin glæðist með tímanum sárin gróa. Við hlúum að blómum á látinna ástvina leiðum. Lítil sáðkorn í mannlegum jarðargróða. (Kristjana Emilía Guðmundsdóttir) F.h. ÁR-kórsins, Guðný Atladóttir, Ingibjörg Valdimarsdóttir, Þorgerður Guðfinnsdóttir. Bylgja Björk Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.