Morgunblaðið - 01.11.2022, Side 4

Morgunblaðið - 01.11.2022, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur oftar fengið mótframboð í formanns- embættið en nokkur núlifandi for- veri hans í formannssætinu. Guð- laugur Þór Þórðarson ráðherra hefur boðað framboð gegn Bjarna á næsta landsfundi og er það fjórða mótframboðið gegn Bjarna. Mótframboð voru fátíð Þorsteinn Pálsson var kos- inn formaður Sjálfstæðis- flokksins 6. nóv- ember 1983. Hann fékk mót- framboð þegar Davíð Oddsson, þáverandi borg- arstjóri, bauð sig fram til for- manns á landsfundi 1991. Alls greiddu 1.388 atkvæði. Davíð hlaut 733 eða 52,4% atkvæða og Þor- steinn hlaut 651 atkvæði eða 46,9%. Það munaði því 82 atkvæð- um á þeim, samkvæmt upplýs- ingum frá Ingvari Pétri Guð- björnssyni, upplýsingafulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Davíð Oddsson var formaður Sjálfstæðisflokksins frá 1991 til 2005 og fékk aldrei mótframboð. Geir H. Haarde tók við af Davíð árið 2005 og gegndi formannsemb- ættinu til 2009. Hann fékk ekki mótframboð í formannssætið. Bjarni Benediktsson tók við for- mennsku í Sjálfstæðisflokknum árið 2009. Hann fékk mótframboð á landsfundi 2010 frá Pétri heitn- um Blöndal alþingismanni. Alls greiddu 925 landsfundarfulltrúar atkvæði og fékk Bjarni 573 at- kvæði (62%) en Pétur 281 atkvæði (30,4%). Hanna Birna Kristjánsdóttir, þáverandi oddviti Sjálfstæð- isflokksins í borgarstjórn, bauð sig fram gegn Bjarna á landsfundi 2011. Alls greiddu 1.323 atkvæði og sigraði Bjarni með 55% at- kvæða en Hanna Birna fékk 44%. Bjarni fékk aftur mótframboð á landsfundi 2013 þegar séra Hall- dór Gunnarsson í Holti bauð sig fram gegn honum. Alls greiddu 1.229 atkvæði og fékk Bjarni 78,7% atkvæða og Halldór 1,6%. Óvenjulegt mótframboð nú „Við höfum engin dæmi um það áður að sitjandi formaður Sjálf- stæðisflokksins, sem er oddviti flokksins í ríkisstjórn, fái mótframboð í formannsembættið. Ríkisstjórnarsamstarfið var end- urnýjað í árslok 2021 og til- tölulega stutt liðið á kjörtímabilið og engin krísa komið upp sem kallar á þetta mótframboð,“ segir Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmála- fræðingur. Hún telur að það hljóti að valda taugatitringi í stjórn- arsamstarfinu ef inn kemur nýr formaður Sjálfstæðisflokksins með umboð til að beita sér fyrir nýjum málum sem ekki var samið um upp- haflega innan ríkisstjórnarinnar. „Þegar Þorsteinn Pálsson fékk mótframboðið var stutt í alþingis- kosningar og Sjálfstæðisflokkurinn var ekki í stjórn. Geir H. Haarde var í ríkisstjórn sem lenti í mótbyr og samstarfið brast. Geir vissi að Bjarni ætlaði að bjóða sig fram 2009, eftir því sem ég man. Geir hætti hins vegar í stjórnmálum og því reyndi ekki á mótframboð gegn honum á landsfundinum 2009. Þar var kosið á milli Bjarna og Krist- jáns Þórs Júlíussonar.“ Stefanía bendir á að mótfram- boðin gegn Bjarna í formannssætið 2010, 2011 og 2013 hafi öll verið áð- ur en Bjarni settist í ríkisstjórn. Landsfundurinn 2013 var haldinn fyrir alþingiskosningar það ár. „Bjarni hefur setið í ríkisstjórn samfellt frá 2013. Eftir því sem mér hefur skilist þá hefur það ver- ið venjan að sitjandi formaður Sjálfstæðisflokksins, sem er odd- viti í ríkisstjórn, fái ekki mótfram- boð þar til nú,“ segir Stefanía. Fyrri mótframboð gegn Bjarna komu þegar verið var að vinna úr afleiðingum efnahagshrunsins árið 2008. „Ýmsir höfðu efasemdir á þeim tíma um að Bjarni væri rétti maðurinn til að leiða flokkinn. Þess vegna bauð þetta fólk sig fram gegn honum en Bjarni sigr- aði alltaf. Síðan þá hefur Bjarni ekki fengið mótframboð og verið óumdeildur leiðtogi flokksins þar til nú.“ Formenn Sjálfstæðisflokksins og mótframboð síðan 1983 Þorsteinn Pálsson Davíð Oddsson Geir H. Haarde Bjarni Benediktsson Þorsteinn Pálsson fékk mótframboð á landsfundi 1991 þegar Davíð Oddsson bauð sig fram til formanns og hlaut 52,4% atkvæða. Bjarni Benediktsson fékk mótframboð árið 2010 frá Pétri Blöndal. Bjarni hlaut 62%. Mótframboð 2011 frá Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur. Bjarni hlaut 55%. Mótframboð 2013 frá Halldóri Gunnarssyni. Bjarni hlaut 78,7%. Mótframboð 2022 frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Framboð sem ekki á sér fordæmi - Óvenjulegt að framboð komi gegn formanni Sjálfstæðisflokksins sem er oddviti flokksins í ríkis- stjórn - Fjórða mótframboðið gegn Bjarna Benediktssyni á formannsferli hans frá árinu 2009 Morgunblaðið/Golli Landsfundur 2011 Hanna Birna Kristjánsdóttir bauð sig fram gegn Bjarna Benediktssyni í embætti formanns. Bjarni sigraði með 55% atkvæða. Stefanía Óskarsdóttir Morgunblaðið/Úr safni Fyrir slaginn Þorsteinn Pálsson, Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen á landsfundinum 1989. Davíð fór svo gegn Þorsteini tveimur árum síðar. Þrír af þingmönnunum sex sem ekki höfðu lýst yfir afstöðu sinni til for- mannskjörsins í gær vildu ekki gefa upp afstöðu sína eða sögðust ekki hafa ákveðið hvorn þeir myndu styðja á landsfundi Sjálfstæðisflokksins þegar mbl.is náði tali af þeim í gær. Haraldur Benediktsson, þingmað- ur Norðvesturkjördæmis, sagðist ekki vita í gær hvort hann myndi styðja annan hvorn frambjóðandann opinberlega. „Ég er svolítið þannig stemmdur að þetta er komið í hend- urnar á landsfundinum. Þá talar landsfundurinn, óháð því hvað okkur þingmönnunum finnst,“ sagði Har- aldur. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Suðurkjördæmis, sagðist ekki ætla að skipta sér af formannsslagnum, en Vilhjálmur hefur sjálfur boðið sig fram til ritara flokksins og ætlar hann að einbeita sér að því. Sagði Vil- hjálmur að hann hefði ekki viljað styðja ákveðnar fylkingar innan flokksins til þessa og að hann myndi ekki gera það nú. Þá sagðist Ásmund- ur Friðriksson að hann yrði búinn að gera upp við sig á föstudaginn hvorn hann myndi styðja. Birgir Þórarinsson sagðist í gær ekki sjá ástæðu til þess að breyta til í forystu flokksins svo skömmu eftir kosningar og Njáll Trausti Friðberts- son, þingmaður flokksins í Norðaust- urkjördæmi, lýsti því yfir um kvöld- matarleytið í gær að hann myndi styðja „núverandi formann Sjálf- stæðisflokksins, Bjarna Benedikts- son, áfram til góðra verka og að hann fái ráðrúm, eins og hann hefur óskað eftir, til að klára þau verkefni sem hann hefur beitt sér fyrir á þessu kjörtímabili“. Eru þá ellefu af 17 þingmönnum flokksins búnir að lýsa yfir stuðningi við Bjarna. Ekki náðist í Diljá Mist Einars- dóttur, þingmann í Reykjavík norður, en hún var á sínum tíma aðstoðar- maður Guðlaugs Þórs í utanríkis- ráðuneytinu. Birgir Þórarinsson Styður Bjarna Ásmundur Friðriksson Óákveðinn Vilhjálmur Árnason Gefur ekki upp Njáll Trausti Friðbertsson Styður Bjarna Diljá Mist Einarsdóttir Svarar ekki Haraldur Benediktsson Gefur ekki upp Tveir með Bjarna og þrír varkárir í svörum - Minnst ellefu af sautján þingmönnum styðja Bjarna Formannskjör í Sjálfstæðisflokknum Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök minning Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.