Morgunblaðið - 01.11.2022, Qupperneq 6
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Dettifoss er í vetrarbúningi þessa dagana og fallegur regnbogi myndaðist um helgina frá
vatnsúðanum frá hinum tignarlega fossi. Erlendir ferðamenn eru þarna daglegir gestir en
færið á Dettifossvegi er ekki alltaf tryggt eftir að vetrarþjónusta var lögð niður. Hafa heima-
menn kallað eftir úrbótum, nú síðast á aukaþingi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.
Dettifoss í
vetrarbúningi
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022
Stjórn Vinnslu-
stöðvarinnar og
hluthafar í Ósi
ehf. og Leo Sea-
food ehf. skrifuðu
í gær undir vilja-
yfirlýsingu um
kaup Vinnslu-
stöðvarinnar á
öllu hlutafé í fé-
lögunum tveimur.
Ef samningar
ganga eftir mun Vinnslustöðin því
eignast Þórunni Sveinsdóttur
VE-401 sem er núna rekin af Ós ehf.
og aflaheimildirnar og fiskvinnsluna
sem rekin er nú af Leo Seafood ehf.
Stóru útgerðirnar stækka
„Þetta eru rétt rúmlega 4000
þorskígildistonn,“ segir Sigurgeir
Brynjar, sem alla jafna er kallaður
Binni í Vinnslustöðinni, um afla-
heimildir Þórunnar VE-401.
„Ég er nú þeim megin í lífinu að
ég hef ekki gaman af því að sjá
sjálfstæðum útgerðum fækka. En
við erum ánægð með að þegar sala
stendur fyrir dyrum hjá útgerðum
hér þá hafa þær nánast undan-
tekningalaust snúið sér til annarra
útgerðarfélaga í Eyjum.“ Binni seg-
ir engar sérstakar breytingar fyrir-
hugaðar á starfseminni. „Við erum
bara að gera út og vinna fisk, svo
það breytist ekkert. Þórunn er
glæsilegt og gott skip og þetta er
góð útgerð.“
Hann segir verðið vera trúnaðar-
mál en ekki sé verið að hugsa um
hlutabréf í Vinnslustöðinni sem
greiðslu. Nú hefst vinna við uppgjör
fyrirtækjanna og áætlað er að salan
gangi í gegn á næsta ári.
Á starfsmannafundi í gærmorgun
kom fram að útgerðarmaðurinn Sig-
urjón Óskarsson og fjölskylda hans,
sem eiga bæði félögin, ætli að ein-
beita sér meira að laxeldinu og
byggja það upp í Eyjum.
Vinnslustöðin efl-
ist við ný kaup
- Tekur yfir Ós og Leo Seafood
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Eyjar Þórunn Sveinsdóttir VE-401
fer til Vinnslustöðvarinnar.Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
Guðni Einarsson
Agla María Albertsdóttir
„Það var algjör einhugur í samninga-
nefnd Eflingar um þessa niðurstöðu
sem bæði byggist á vinnu samninga-
nefndarinnar og þessari stóru kjara-
könnun sem við framkvæmdum og
metþátttaka var í,“ segir Sólveig
Anna Jónsdóttir formaður Eflingar
um kröfugerð sem var birt Samtök-
um atvinnulífsins
(SA) í gær. „Ein-
hugur og mikill
vilji félagsfólks til
þess að standa
saman og berjast
fyrir réttlátari
skiptingu gæð-
anna og því að fá
sinn skerf af hag-
vextinum sem
vinna þeirra skapar. Ég tel að það
verði til þess að við náum miklum ár-
angri í vetur.“
Í kröfugerð Eflingar er farið fram
á hækkun allra mánaðarlauna um
samtals 167 þúsund krónur með
framfærsluuppbót á þriggja ára
samningstíma. Hækkunin verði
krónutöluhækkun sem leggist jafnt
á öll laun í þrepum, samkvæmt fyr-
irmynd lífskjarasamninganna.
Krónutöluhækkanir tryggi kaup-
mátt hinna efnahagslega verst settu
og vinni gegn launaskriði í efri lög-
um samfélagsins.
Efling vill að samið verði til
þriggja ára, eða til 1. nóvember 2025,
og byggt á forsendum og árangri
lífskjarasamningsins. Samninga-
nefnd Eflingar vill að launaliður
verði endurskoðaður fari verðbólga
meira en 1% yfir þær spár sem
byggt er á. Þá krefst Efling 30 daga
orlofs fyrir alla og segir að ræða
þurfi í alvöru um möguleika til stytt-
ingar vinnuvikunnar hjá Eflingar-
félögum á almenna vinnumarkaðin-
um.
Kröfugerðinni er skilað með fyrir-
vara um viðbætur og breytingar.
Efling segir að félagið muni setja
fjölda annarra mála utan launaliðar
á dagskrá í kjarasamningagerðinni.
Krefst 167.000 króna hækkunar
- Efling birtir SA kröfugerð sína - Vill byggja á lífskjarasamningnum - Samið verði til þriggja ára
Sólveig Anna
Jónsdóttir