Morgunblaðið - 01.11.2022, Síða 18

Morgunblaðið - 01.11.2022, Síða 18
18 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 Það er ólýsanlegt að hugsa til þess að hún sé farin. Hún Margret Dolma Guttormsdóttir. Hún Magga Gutt, eins og hún var alltaf kölluð af þeim sem þekktu hana á menntaskólaár- unum. Hún var einstök mann- eskja. Við hittumst á fyrsta árinu í menntaskólanum og vin- skapur okkar blómstraði fljótt. Við höfðum báðar mikinn áhuga á leiklist og það tengdi okkur sterkum böndum. Þrátt fyrir að við byggjum stóran part af okk- ar vinskap hvor í sínu landinu, þá var alltaf eins og enginn tími hafði liðið þegar við loksins hitt- umst. Við tókum upp þráðinn þar sem frá var horfið eins og ekkert væri. Það er ekki öllum gefið. Og við héldum alltaf í þá hefð að gefa hvor annarri jóla- gjöf, sama hvar við vorum nið- urkomnar eða hvernig stóð á. Hún sagði mér einhvern tíma að mamma sín hefði brýnt fyrir sér Margret Dolma Guttormsdóttir ✝ Margret Dolma Guttormsdóttir fæddist 24. janúar 1957. Hún lést 30. ágúst 2022. Útför hennar fór fram 8. september 2022. að það væri vottur um sanna vináttu að gefa vinum sín- um litla gjöf á jól- um. Við skulum aldrei hætta því“, sagði hún. Magga var list- ræn og skapandi manneskja. Lifði fyrir leiklistina og leiklistarkennsluna. Hún var einn af frumkvöðlum í leiklistarkennslu í framhaldsskólum á Íslandi og fjöldinn allur af nemendum sem fengu handleiðslu hjá henni, enduðu í listnámi. Hún var glögg á að koma auga á hæfi- leika fólks og var óspör á að örva og hjálpa þeim sem hún sá að hefðu þá hæfileika sem til þarf í leiklistarnám. Því miður varð hún að hætta kennslu vegna veikinda, en hún gekk úr skugga um að fundinn yrði góð- ur kennari til að taka við kefl- inu. Hún fylgdist grannt með fyrrverandi nemendum sínum og var afar stolt af þeim. Fannst hún eiga pínulítið í hverjum og einum nemanda. En lífið var ekki alltaf dans á rósum. Magga átti við erfiðleika að stríða. Sumir voru alvarlegri en aðrir, en alltaf stóð hún uppi, keik og trúði á að hún gæti kom- ist í gegnum þessar hindranir, hvort sem um var að ræða veik- indi á sál eða líkama. Mesta blessun hennar í lífinu voru dætur hennar, tengdabörn og barnabörn. Hún elskaði fjöl- skylduna sína. Og fjölskyldan stóð með henni eins og kletta- bjarg. Þegar reiðarslagið kom í lok júní, að krabbamein væri bú- ið að koma sér fyrir í líkama hennar, tók hún því af miklu æðruleysi. Ég kom til hennar í byrjun júlí, fljótlega eftir að hún fékk þessar fréttir, og þá sagði hún mér að sig langaði til að búa til lagalista til að spila við útför sína og vera með í að ákveða hvernig allt yrði gert. Svo spurði hún mig: „Finnst þér asnalegt ef ég hef erfidrykkjuna núna, svo ég geti verið með? Af hverju að missa af góðu partíi?“ Okkur fannst það báðum frábær hug- mynd. Ekki varð þó af því, því krabbameinið tók sér bólfestu með hraði og dró úr henni kraft- inn fyrr en við héldum. Mikið sem þær dætur hennar studdu við bakið á mömmu sinni. Og hún vissi að hún var umvafin englum. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þig að í öll þessi ár, elsku vinkona. Við náðum góðum stundum saman nú í sumar og enduðum á að nýta okkur mynd- símtalatækni og tala saman nærri daglega yfir hafið. Ég sakna þín. Og eins og við end- uðum hvert símtal – Farðu vel með þig. Ég elska þig. Erla B. Skúladóttir. ✝ Reynir Valtýs- son fæddist í Hafnarfirði 14. febrúar 1946. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suður- lands 22. október 2022. Foreldrar hans voru Valtýr Júlíusson og Sig- urbjörg Kolbrún Guðmundsdóttir. Systkini Reynis eru Ingibjörg Nancy Kudrick Morg- an og Bjarni Valur Valtýsson. Börn Reynis eru 1) Ingi Björgvin, eiginkona Jónína Guðrún Kristbergsdóttir. Börn þeirra eru Margrét Steinunn og Kristberg Snær. Móðir Inga er Ragnar, kvæntur Karlottu Helgadóttur. Saman eiga þau Andreu Lilju og Birki Val. Reynir ólst upp í Hítar- neskoti í Kolbeinsstaðarhreppi og gekk í farskóla. Þegar hann var 17 ára fór hann að vinna í sláturhúsinu í Borgarnesi og vann jafnframt heima á bænum. Um 19 ára aldur flutti hann á Rif og byrjaði að vinna á línu- bátnum Saxhamri. Þegar Reyn- ir var 32 ára flutti hann til Reykjavíkur og fór að vinna á flutningaskipi hjá Skipadeild Sambandsins en eftir að hafa lent í vinnuslysi fór hann að vinna á hinum ýmsum verk- stæðum. Upp úr aldarmótum fékk Reynir starf hjá Marel þar sem hann vann til starfsloka. Útför fer fram frá Selja- kirkju í dag, 1. nóvember 2022, klukkan 13. Margrét Steinunn Ingadóttir. 2) Vala Kolbrún, unnusti Óli Pétur Ped- ersen. Börn Völu eru Gunnar Þór Berg, Michael Berg og Elínborg Henný. Móðir Völu var Henný Ósk Gunn- arsdóttir. Þann 1. júlí 1989 gekk Reynir í hjónaband með Berglindi Jón- ínu Gestsdóttur og börn þeirra eru: 3) Gestur Már, sambýlis- kona Sandra Sif Gunnarsdóttir. Saman eiga þau Garðar Kára og Söru Malín. Dóttir Gests er Díana Lilja. 4) Gunnlaugur Elsku Reynir. Nú hefur leiðir okkar skilið í bili og þrautagöngu þinni lokið, sem var oft erfið hjá þér síðustu árin. Við áttum gott líf saman og eigum dásamleg börn, barnabörn og tengdabörn. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir, og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Bless Reynir minn, Berglind (Begga). Ég man það eins og það hefði gerst í gær þegar ég sat í rauða Subaru foreldra minna, á leið með pabba í hesthúsið til þín í Andvara í Garðabæ. Við vorum stödd á Rjúpnahæðinni en hefð- um allt eins getað verið á Hellis- heiði eystri, það afskekktri leið mér í vetrarhríðinni, seint á síð- ustu öld. Það var svo gaman að koma í hesthúsið til ykkar Beggu með pabba og fá að vera í kring- um hestana og fara á hestbak. Þú kenndir mér svo margt í kringum hestana, gafst mér tækifæri til að kynnast gæðingum úr Hítar- neskotsræktuninni og ég er meira að segja svo heppin að eiga ennþá hross úr þeirri ræktun. Allt undir það síðasta gátum við spjallað um hesta, að því er virtist endalaust. Ég minnist þín með miklum hlýhug og ég veit að gæð- ingarnir hafa beðið þín í röðum í sumarlandinu. Hvíldu í friði. Ef inni er þröngt, tak hnakk þinn og hest og hleyptu á burt undir loftsins þök. Hýstu aldrei þinn harm. Það er best. Að heiman, út, ef þú berst í vök. Það finnst ekki mein, sem ei breytist og bætist ei böl sem ei þaggast, ei lund sem ei kætist við fjörgammsins stoltu og sterku tök. Lát hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist. (Einar Benediktsson) Selma Rut Gestsdóttir. Reynir Valtýsson Morgunblaðið birtir minningargreinar end- urgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargrein- um til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfar- ardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morg- unblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvað- an og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einn- ig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar Í tilveru mannsins er fátt leynd- ardómsfyllra en svefninn. Mannslíkaminn er eins og raf- magnsbíllinn; það þarf að hlaða geyminn með 7 til 8 tíma svefni á dag svo skrokk- urinn geti gengið næstu 16 tímana eða svo. En meðan á okkar hleðslu stendur höf- um við draumana. Ég hefi ekki heyrt að rafmagnsbíl- arnir hafi draumfarir. Draumarnir eru enn þá dularfyllri en svefninn sjálf- ur. Mig hefir alltaf dreymt mikið og man ég mjög oft draumana. Talið er að stór hluti fólks muni lítið sem ekkert af draumum sínum. Foreldrar mínir sögðu mér að þegar ég var um fjög- urra ára gamall hefði ég vaknað upp nótt eftir nótt vegna slæmra drauma. Mér hafði fundist stór villidýr stöðugt vera að ráðast á mig, sögðu þau. Það var svo slæmt að ég vildi alls ekki fara að sofa af hræðslu. Endaði það með lækn- isheimsókn og með tímanum gekk þetta yfir. Því hefir lengi verið hald- ið fram að draumar geti sagt til um framtíðina. Fólk sem telur sig klókt að ráða drauma er alltaf eftirsótt. Í fornsögunum var oft fjallað um drauma og ráðningar á þeim. Í mínu tilfelli get ég ekki sagt að draumar mínir hafi sagt fyrir um ókomna hluti. En í því sambandi heyrði ég einu sinni um mann sem þóttist geta ráðið sína drauma. Kvenfélag í Hafnarfirði hleypti af stokk- unum happdrætti endur fyr- ir löngu og var fyrsti vinn- ingur vikudvöl á Hótel KEA á Akureyri. Maður nokkur birtist á skrifstofu félagsins um leið og opnað var á fyrsta degi og vildi kaupa miða númer 51. Honum varð að ósk sinni og hélt hann heim kátur í bragði. Viti menn; þegar dregið var fékk númer 51 fyrsta vinn- inginn. Þegar eigandi mið- ans var spurður hvers vegna hann hefði valið þetta númer svaraði hann: „Mig dreymdi töluna 7 sjö nætur í röð og vegna þess að 7 sinnum 7 eru 51 var ég viss um að það númer myndi hreppa vinn- inginn.“ Nafnorðið draumur og sögnin að dreyma eru notuð fyrir fleiri hluti en svefndrauma. Þá er verið að tala um að viðkomandi óski sér eða þrái eitthvað. Mig dreymir um að komast til Kanarí, segir fólk. Þú ert minn draumaprins o.s.frv. Í þessu spjalli okkar ætlum við bara að fjalla um svefndrauma. Hápunkturinn á mínum draumaferli tel ég að hafi komið þegar ég var 12 ára. Nokkrum skólafélögum mínum hafði sinnast og úr urðu smá slagsmál, sem ég tók þátt í. Ég var enn æstur þegar ég kom heim úr skól- anum þann daginn. Um nóttina vöknuðu foreldrar mínir við hávaða utan úr stofunni. Þar stóð ég stein- sofandi og barði forláta leir- styttu af kolsvörtum hrafni eftir Guðmund frá Miðdal í borðið. Þau tóku styttuna af mér og leiddu mig í rúmið. Morguninn eftir var ég spurður hvað mig hefði ver- ið að dreyma. Skýrði ég frá því að mig hefði dreymt um framhald á slagsmálunum frá um daginn og hafði ég náð að lumbra á skólabróð- ur mínum Hrafni, sem oft- ast var kallaður Krummi. Draumheimarnir eru furðulegir. Í mínu tilfelli dreymir mig stundum heilu sögurnar, eins og um bíó- myndir væri að ræða. Á yngri árum var ég sagður tala mikið í svefni og var þá eflaust að taka þátt í æs- andi draumum. Þegar ég var nýgiftur komst ég eitt sinn í hann krappan vegna þessa. Eiginkonan hafði vaknað við það að ég var í hrókasamræðum við mig sjálfan steinsofandi. Hélt hún því fram að ég hefði hvað eftir annað kallað fram nafn á konu sem ég hafði verið lauslega bendlaður við endur fyrir löngu. Mér tókst að lempa hana niður og sem betur fór endurtók sagan sig ekki. Draumar eru algengt um- talsefni hjá fólki því alla dreymir meira og minna. Ekki veit ég hvort það er satt sem sagt var um hana Siggu Jóns. Hún missti mann sinn, sem hún hafði elskað mjög heitt, langt fyr- ir tímann. Syrgði hún hann af öllu hjarta. Vonaði hún og þráði að hann myndi vitja sín í draumi. Þess vegna lagaði hún á sér hárið og setti rauðan lit á var- irnar á hverju kvöldi fyrir svefninn. Fer ekki sögum af því hvort Siggu varð að ósk sinni. Ekki má gleyma frá- sögninni af honum Gunna gamla. Það var fullyrt að hann svæfi með gleraugun sín á nefinu svo hann gæti borið kennsl á fólkið sem birtist honum í draumi. Í lokin er hér ein af mín- um uppáhaldssögum af Nas- reddin skólameistara, sem uppi var á 14. öld í Litlu- Asíu þar sem nú er Tyrk- land. Eitt sinn dreymdi hann að til sín kæmi ókunn- ur maður, sem sagðist ætla að gefa honum silfurpen- inga. Honum fannst hann setjast upp við dogg í rúm- inu og rétta fram höndina. Hægt og rólega taldi mað- urinn níu peninga í lófa hans. „Bættu nú einum við svo að þeir verði tíu,“ þótt- ist Nasreddin segja í draumnum. En í því vaknaði hann og sá þá að lófinn var tómur. Hann andvarpaði, lygndi aftur augunum, rétti enn á ný fram höndina og mælti: „Jæja, komdu þá með þessa níu. Það er alla vega betra en ekki neitt.“ Gamla manninn dreymdi draum Þórir S. Gröndal Þórir S. Gröndal »Mannslíkaminn er eins og raf- magnsbíll. Það þarf að hlaða geyminn með 7-8 tíma svefni á dag svo skrokk- urinn geti gengið næstu 16 tímana eða svo. Höfundur er fyrrverandi fisk- sali og ræðismaður í Am- eríku. floice9@aol.com Með sanni sýnir ríkið skatta- klóna varðandi eldri borgara út lífshlaupið. Við smáhækkun á lágum lífeyri frá VR 2021 kom TR fram nokkru síðar með kröfu um endurgreiðslu á svipaðri upphæð sem búið var að greiða af skatta og skyldur. Hækkunin rann því að mestu til ríkis og sveitarfélaga. Er eðlilegt að ríki og sveitarfélög skattleggi eldri borgara að fullu út lífið, þ.e. eins og fólk í fullri vinnu á besta aldri? Það sama gildir um séreignar- sparnað á meðan yngra fólk fær vissa úttekt skattfría við fyrstu íbúðarkaup, sem er hið ágætasta mál. Hvar eru þessi mál stödd hjá FEB? Að hundelta eldri borgara skattalega út lífs- hlaupið er vart ásættanlegt, fólk sem búið er að leggja mikið til samfélagsins í ára- tugi. Framangreinda þætti þarf að endurskoða sem myndi skila sér til baka með ýmsum hætti, t.d. meiri lífsánægju og betra heilsufari eldri borg- ara. Þarf meiri ábendingu til fyrir ríkisvaldið og sveitar- félög að leiðrétta þetta órétt- læti? Ómar G. Jónsson Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Skattakló ríkisins á eldri borgara Ljómynd/Unsplash, Alexas Fotos Skattur „Að hundelta eldri borgara út lífið vart ásættanlegt.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.