Morgunblaðið - 01.11.2022, Side 20

Morgunblaðið - 01.11.2022, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2022 ✝ Kristján Jón- asson fæddist 4. maí 1947 í Reykjavík. Hann varð bráðkvaddur í Orlando, Flórída, 1. október 2022. Foreldrar Krist- jáns voru Jónas Sigurður Jónsson, garðyrkjufræð- ingur, f. 9. júlí 1917, d. 30. maí 1987, og Kristín Halldóra Kristjánsdóttir, versl- unarkona, f. 8. janúar 1922, d. 24. maí 2018. Bræður Kristjáns eru: Magnús, f. 15. júlí 1944, d. 8. júlí 2017, Ásmundur, f. 21. desember 1948, d. 20. maí 2022, og Jón Ingvar, f. 25. júlí 1958. Börn þeirra eru Tómas Geir, Marteinn Már, Rebekka Ósk og Bryndís Día. Kristján ólst upp í Reykja- vík, fyrstu árin í Fossvog- inum, þar sem foreldrar hans ráku gróðrarstöð. Kristján byrjaði ungur að árum að læra prentiðn og starfaði nær alla starfsævina á því sviði, lengst af við prentmiðla. Kristján var alla tíð mikill áhugamaður um garðyrkju og skógrækt. Undir lok starfs- ævinnar sinnti hann störfum því tengdum hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Kristján var í stjórn Skóg- ræktarfélags Kópavogs og á síðustu árum kom hann að uppbyggingu Guðmund- arlundar í landi skógrækt- arfélagsins þar sem hann átti ófá smiðshöggin. Kristján verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag, 1. nóvember 2022, kl. 13.00. Kristján kvænt- ist Kristínu Brynj- ólfsdóttur, f. 16. febrúar 1947, þann 3. desember 1966. Börn Kristjáns og Kristínar eru: 1) Kristín Hall- dóra, f. 28. maí 1966. Eiginmaður Kristínar er Sig- urður Gestsson. Börn Kristínar eru Linda Björk, Kristján Freyr og Sesselja Sif. 2) Bryndís Björk, f. 17. júlí 1968. Eiginmaður Bryndísar er Júlíus Smári. Börn þeirra eru Steinar Þór, Kristín Anna og Styrmir Jón. 3) Elmar Freyr, f. 25. maí 1974. Eiginkona Elmars er Karin Erna Elmarsdóttir. Fyrir um einum og hálfum áratug síðan kynntist ég Krist- jáni tengdaföður mínum. Við fyrstu kynni áttaði ég mig strax á því að þarna færi maður sem for- réttindi væri að fá að kynnast enn frekar, enda myndaðist strax með okkur góð vinátta. Það sem mér fannst svo heillandi við þennan yfirvegaða, hægláta en kraftmikla mann var hversu mik- il jákvæðni, ást og kærleikur stafaði frá honum. Á öllum þeim árum sem ég þekkti Kristján þá sá ég hann aldrei skipta skapi, hann leysti öll mál af skynsemi og yfirvegun. Það sem mér fannst svo ein- stakt og skemmtilegt við Krist- ján var að það var nákvæmlega sama hvaða umræðu ég tók við hann um mín áhugamál, hvort það voru íþróttir, smíðar, hönn- un, vélar og bílar eða garðrækt þá var hann hafsjór af fróðleik og í garðræktinni var hann algjör- lega á heimavelli. Ef mig langaði til að planta nýrri plöntu eða tré í garðinum okkar þá hringdi mað- ur bara í tengdapabba og spurði hvort, hvernig eða hvenær ætti að gróðursetja og maður fékk svarið um hæl því hann vissi allt á því sviði. Ég keypti mér sportbíl fyrir nokkrum mánuðum síðan og sá mér þá leik á borði og hringdi í tengdapabba og bað hann að fara og skoða bílinn fyrir mig áður en ég keypti. Ekki málið, sagði Kristján glaður í bragði enda annálaður áhugamaður um bíla. Hann brunaði svo upp í Reykja- nesbæ, skoðaði bílinn og sendi mér svo skýrslu. Fann að sjálf- sögðu að nokkrum atriðum sem líklegast enginn annar hefði tek- ið eftir en sagði: þú tekur bílinn, hann er nánast fullkominn og ég keypti hann. En því miður þá náðum við ekki bíltúrnum saman á honum eins og við ætluðum. Kristján var listamaður þó hann liti aldrei á sig sem slíkan. Hann elskaði að skapa og það eru mörg falleg verk til eftir hann. Kristján smíðaði einstaklega fal- lega gripi úr tré þar sem hand- bragðið er fullkomið. Fyrir mig að koma inn á heim- ili Kristjáns og Kristínar eigin- konu hans fyrir fimmtán árum síðan var bara svo fallegt. Þau höfðu kynnst hvort öðru áður en þau náðu 20 ára aldri og höfðu því verið saman mestan hluta ævi sinnar. Manni fannst alltaf þau tvö vera bara eitt, svo samstíga og dásamlegt var samband þeirra hjóna. Kristján var algerlega ein- stakur þegar kom að fjölskyld- unni sem var honum kærari en allt annað. Börnin og barnabörn- in höfðu endalausan stuðning frá pabba og afa sem alltaf var til staðar ef einhvers staðar var ver- ið að smíða eða laga. Á ófáar íþróttakeppnirnar mætti Kristján til þess að styðja sitt fólk en þar var hann oftast til staðar ef hann mögulega gat komið því við. Kristján var mikill golfáhuga- maður og stundaði hann þá iðju af mikilli ástríðu. Kristján varð bráðkvaddur þann 1. október í Bandaríkjunum þar sem hugðist dvelja í nokkrar vikur til þess að stunda þar golf. Kristján var einstaklega hjartahlýr og góður maður og þar af leiðandi vinamargur. Þessi hlýja og umhyggja sem hann sýndi okkur sem voru svo heppin að fá að ganga veginn með hon- um í lífinu gerði okkur öll að betri manneskjum. Með innilegu þakklæti fyrir mig elsku Kristján. Sigurður Gestsson. Ekki óraði mig fyrir því, þegar ég kvaddi Kristján á Keflavíkur- flugvelli laugardaginn 1. októ- ber, að örfáum tímum síðar væri hann allur. Hann geislaði af gleði, var fullur tilhlökkunar að fara loks í langþráða golfferð til Flórída en undanfarin ár, eftir að hafa lokið störfum á almennum vinnumarkaði, höfðu þau hjónin haft að sið að dvelja í október við golfiðkun á suðlægari slóðum. Ég kynntist Kristjáni fyrir ald- arfjórðungi þegar við Bryndís dóttir hans hófum búskap. Ávallt var hann reiðubúinn að aðstoða okkur við hin ýmsu verkefni sem til féllu við framkvæmdir og breytingar, enda þúsundþjala- smiður í öllum verklegum fram- kvæmdum. Þau Kristín undu sér vel í sumarbústað okkar fjöl- skyldunnar þar sem samveru- stundirnar voru margar og ánægjulegar. Þar, eins og heima við, á tengdafaðir minn ófá hand- tökin. Tengdaföður mínum féll aldrei verk úr hendi. Þegar hann var ekki að aðstoða börn eða barnabörn naut hann sín við list- málun og aðra sköpun í bílskúrn- um heima við. Hin síðustu ár sinnti hann störfum fyrir Skóg- ræktarfélag Kópavogs. Í skóg- rækt var hann á heimavelli, upp- alinn í gróðrarstöð foreldra sinna og bræðra. Þótt hann hafi ekki fetað þá braut til starfs og mennta, ólíkt foreldrum og bræðrum, var hann alla tíð mikill áhugamaður um skógrækt og aðra ræktun. Undir það síðasta var hann farinn að nostra við ræktun grænmetis og annarra matjurta við sumarbústað fjöl- skyldunnar og hafði uppi áform um frekari uppbyggingu þar á komandi árum, sem hann hlakk- aði til. Kristján var alls staðar au- fúsugestur og naut sín í fé- lagsskap annarra. Hann var ein- staklega jafnlyndur og vildi hvers manns vanda leysa. Fjöl- skyldan var honum mikilvæg og ósjaldan leit hann aðeins inn í heimsókn, þótt ekki væri nema til að fá sér kaffibolla og fylgjast með hvaða verkefni við og barna- börnin værum að vinna að hverju sinni. Brottfall Kristjáns var skyndi- legt. Missir Kristínar, tengda- móður minnar, er mikill, enda hjónin ákaflega samrýnd og hjónaband þeirra farsælt. Með ævinlegri þökk fyrir sam- fylgdina, kæri tengdafaðir og vinur. Júlíus Smári. Ég kynnist Kristjáni í ágúst 1997 þegar ég og Elmar sonur hans fórum að stinga saman nefjum. Tengdaforeldrar mínir, Kristján og Kristín, tóku mér frá fyrsta degi af mikilli hlýju og buðu mig velkomna í fjölskyld- una. Kristján tengdapabbi var ávallt stór hluti af okkar daglega fjölskyldulífi. Hann var óþreyt- andi að aðstoða Elmar við að byggja okkur heimili, fyrst í Glaðheimum og svo í Lofnar- brunni. Einnig höfðu þeir feðgar sameiginlegan áhuga á plöntum og handverki og ánægjustundir tengdar því margar. Kristján fylgdist vel með barnabörnum sínum, samgladdist í sigrum og bauð fram hlýjan faðm þegar undan lét. Barnabörnunum þótti ávallt gott og gaman að fá afa sinn í heimsókn eða fara heim- sókn til þeirra hjóna spila, baka og mála. Einnig voru þau hjónin dugleg að búa til góðar stundir með barnabörnunum, fóru í ófáa bíltúra í miðbæinn til að gefa öndunum brauð, sjá jólasveinana í Guðmundarlundi eða kíkja í sveitina. Nokkrum sinnum í viku leit Kristján inn heima hjá okk- ur, fékk sér einn kaffibolla, svo kannski einn enn. Oftar en ekki var ég heima þegar hann renndi við og áttum við góðar spjall- stundir yfir kaffibolla. Þessar hversdagslegu stundir voru okk- ur í fjölskyldunni svo dýrmætar. Takk fyrir allar samverustundir elsku Kristján. Þín er svo sárt saknað. Við fjölskyldan vottum Krist- ínu tengdamóður minni okkar dýpstu samúð. Minning um góð- an mann lifir og býr í hjörtum okkar. Þín tengdadóttir, Karin. Elsku hjartans afi okkar. Mikið er þetta sárt. Ekki er hægt að lýsa hversu mikið við söknum þín, en fyrst þú ert kominn yfir í sumarlandið þá vitum við að þú getur spilað eins mikið golf og þú vilt og mundu að þú ert bestur í því. Við vitum að það var tekið vel á móti þér og að þú ert umvafinn fallegum englum. Eitt skulum við lofa þér og það er að við munum gera okkar allra besta að passa ömmu fyrir þig en þú gerðir það best. Okkur þætti vænt um að þú myndir láta vita af þér með ýms- um hætti enda lofaðir þú því. Takk fyrir allt, öll töfrabrögð- in, öll spilin í ólsen ólsen, alla golfboltana, allar sögurnar, öll prakkarastrikin, öll málverkin og auðvitað allar minningarnar sem okkur þykir svo vænt um. Við vitum að þú passar alltaf upp á okkur öll sem eitt. Elskum þig og söknum þín mest. Kossar og knús. Sesselja Sif og hin afagullin. Kristján Jónasson HINSTA KVEÐJA Elsku besti pabbi Mikið sem við systkinin vorum heppinn þegar við vorum valin að fá þig sem pabba. Takk fyrir allt elsku besti pabbi. Elska þig til alla leið til geimsins og svo mikið meira og mun alltaf gera. Og ef það er líf eftir þetta líf þá mun ég elska þig líka þar. Þín dóttir, Kristín Halldóra. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUÐNA ÁSMUNDSSONAR húsasmíðameistara. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar Ísafjarðar og hjúkrunarheimilisins Eyrar fyrir góða umönnun og ljúft viðmót. Sigrún Vernharðsdóttir Ásta Albertsdóttir Kare Engelsen Ásmundur Guðnason Ólína Jónsdóttir Vernharð Guðnason Ester Martinsdóttir Jóhanna Jóhannesdóttir Pálmi Jónsson Margrét Katrín Guðnadóttir Jón Arnar Sigurþórsson Guðný R. Hólmgeirsdóttir Sigurður Mar Óskarsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samhug við andlát og útför okkar elskaða eiginmanns, föður, sonar, tengdasonar, bróður og mágs, JÓNS HALLDÓRS HALLDÓRSSONAR flugvirkja, Austurgötu 1, Sandgerði. Sérstaklega þökkum við samstarfsmönnum hjá Icelandair vináttu og skilning. Elsku starfsfólk 11E á LSH og líknardeild Kópavogi, þið eruð englar í mannsmynd. Takk fyrir allt og allt! Nawel Djouihel A. Halldór Jónsson Karim Djouihel Ouanis Djouihel Meriem Djouihel Hólmfríður Jónsdóttir Halldór Gíslason Anne May Sæmundsdóttir Sverrir Halldórsson Rungarun Manoo Vilborg Halldórsdóttir G. Grétar Guðmundsson Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs föður, sonar og bróður, BRYNJARS ÞÓRS GUÐMUNDSSONAR bakara, sem lést 21. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Iðunn Ósk Brynjarsdóttir Helga Sólveig Jóhannesdóttir Guðmundur Paul Scheel Jónsson Jón Pétur Jónsson Katrín Magnea Jónsdóttir Albert Már Scheel Guðmundsson Þóra Dögg Scheel G. Hjörtur Ingi Sigurðsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG VILHJÁLMSDÓTTIR, Strikinu 4, lést laugardaginn 29. október á Landspítalanum Vífilsstöðum. Hákon Gunnarsson Guðný Helgadóttir Helga Gunnarsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Unnar Reynisson Hrefna Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG ÁSTA JÓNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu Laugarási 21. október. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 4. nóvember klukkan 10. Bjarni Þormóðsson Aldís Guðmundsdóttir Stefán Þormóðsson Anna Jóna Jónmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, NÍELS PÉTUR JÓSEFSSON, Ránargötu 7, Akureyri, lést á heimili sínu miðvikudaginn 26. október. Útför hans fer fram frá Möðruvallaklausturskirkju laugardaginn 5. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Heimahlynningu á Akureyri. Anna Jóna Vigfúsdóttir Regína Ósk Óðinsdóttir Anton Rafn Gunnarsson Sunnefa Níelsdóttir Ágúst Bjarki Hilmarsson Silva Rún Níelsdóttir Ingibjörg Dís Níelsdóttir Kristófer Príor Jósefsson Mikael Þór, Sóldögg María Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANNES TÓMASSON, blaðamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi, lést föstudaginn 28. október á Landspítalanum. Málfríður Finnbogadóttir Helgi Jóhannesson Anna Jóhannesdóttir Brynjúlfur Jónatansson Þórdís Jóhannesdóttir Brynjar Valþórsson Jóhannes, Ísar Ágúst, Sara Björk, Einar Björn, Salvör Móeiður, Elsa María, Valþór Hrafnkell og Eva Málfríður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.