Morgunblaðið - 29.11.2022, Side 2

Morgunblaðið - 29.11.2022, Side 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022 Endurmenntun atvinnu- bílstjóra á íslensku Nánari upplýsingar: www.okuland.is Alltaf í boði Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Viðræðufundur samflots iðn- og tæknifólks og Samtaka atvinnulífsins (SA) stóð frá kl. 10-18 í gær. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, sagði eftir fundinn að viðræður þokuðust lítið áfram. „Við sátum við og reyndum að ýta málum áfram en það gerðist voðalega lítið,“ segir hann og bætir við að helst hafi verið rædd áhersluatriði iðn- og tæknifólks sem snúa að kjara- samningsákvæðum. „Við höfum verið að ræða ýmis atriði eins og vinnutíma, yfirvinnu og slíkt. Þetta eru þau atriði sem hafa komið til umræðu og verið á borðinu.“ Spurður hvort hann sé bjartsýnn á að viðræðurnar séu að þokast í rétta átt segist Kristján vera hóflega bjart- sýnn. „Við erum ekki búin að lýsa yfir árangursleysi ennþá.“ Þá funduðu einnig Efling og SA milli kl. 15-16 samkvæmt dagskrá hjá ríkis- sáttasemjara. Halldór Benjamín Þor- bergsson, framkvæmdastjóri SA, segir að kröfugerðir í víðu samhengi hafi verið til umræðu á fundinum. Hann telur að viðræður séu efnislega á þeirri leið sem hann telur að viðræðurnar myndu vera eftir fjórða fund. Efnislega ekkert breyst Í dag er á dagskrá fundur SGS, VR, LÍV og SA frá kl. 10-18 og einnig mun samflot iðn- og tæknifólks og SA halda áfram viðræðum í dag. Sem kunnugt er sleit VR viðræðum sínum við SA á föstudaginn var. Ragn- ar Þór Ingólfsson, formaður VR, kvaðst í gær hafa verið boðaður á samninga- fundinn í dag og ætlaði að mæta. „Ríkissáttasemjari vildi boða okkur á fundinn og ég verð að sjálfsögðu við því,“ sagði Ragnar í gær. „Efnislega hef- ur ekkert breyst. Þótt viðræður fari í þennan farveg þá höldum við áfram að reyna. Við erum áfram boðuð á fundi og verkefnið fer ekki frá okkur. Við ætl- um að mæta á fundinn á morgun (í dag) og tökum stöðuna eftir þann fund. Við erum á fullu að vinna okkar vinnu.“ Lítið svigrúm hjá sveitarfélögum Talsmenn stéttarfélaganna hafa meðal annars nefnt fyrirhugaðar gjald- skrárhækkanir sveitarfélaga sem eina af ástæðum þess að þörf sé á launa- hækkunum. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, seg- ir að það hafi ekki verið mikið rætt inn- an sambandsins að koma til móts við stéttarfélög á almennum markaði hvað þetta varðar. „Við höfum rætt meira um það hvernig við getum náð í tekjur til að geta lokað þessu ári þannig að hallinn á sveitarfélögunum verði ekki of mikill. Flest sveitarfélög hafa verið að skila svolítið miklum halla núna,“ segir Heiða Björg. Hún segir að nú séu sveitarfélögin að gera áætlanir fyrir næsta ár og flest sveitarfélög ætli að hækka gjaldskrár á grundvelli vísitölu- hækkunar. Heiða Björg bendir á að Samband íslenskra sveitarfélaga sé að fara í kjaraviðræður við sitt starfsfólk eft- ir áramótin og þau þurfi að eiga fyrir þeim hækkunum. Hún bendir á að tekjur sveitarfélaganna hafi verið að lækka og staðan sé alvarleg í rekstri þeirra margra. lSamflot iðn- og tæknifólks ekki lýst yfir árangursleysilViðræður við Eflingu efnislega á þeim stað sem búist var viðlSGS, VR, LÍV og SA funda í daglSÍS ekki rætt að koma til móts við stéttarfélög Stíft fundað í kjaraviðræðum Guðni Einarsson Kristján Jónssson Urður Egilsdóttir Morgunblaðið/Árni Sæberg Samningar Viðræðufundur samflots iðn- og tæknifólks og Samtaka at- vinnulífsins (SA) stóð frá kl. 10-18 í gær í húsi ríkissáttasemjara. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra var stödd í Kænu- garði í Úkraínu í gær ásamt hópi ut- anríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Þau funduðu meðal annars með Volodimír Selen- skí forseta og ráðherrum í ríkisstjórn Úkraínu. „Dagurinn í dag var ótrúlega upp- lýsandi, áhrifamikill og gagnlegur,“ segir Þórdís Kolbrún og bætir við að það hafi verið ótrúlega gagnlegt að fá að sjá hver staðan er í Úkraínu með eigin augum. „Borgin bæði ber þess merki að hér er stríð, en hún ber þess líka merki að fólkið hér gerir sitt allra besta til að lifa sem eðlilegustu lífi,“ segir hún og nefnir að nýjustu skemmdarverk Rússa, sem beinast að nauðsynlegum innviðum, séu til þess fallin að hræða almenning í Úkraínu. Umræðan á alvarlegum nótum Þórdís Kolbrún segir að fundurinn með Selenskí hafi verið góður en hún hafði ekki hitt hann áður í persónu. Forsetinn setti fundinn og þar á eftir voru utanríkisráðherrarnir með stutt innlegg. Í framhaldinu átti hópurinn samtal við Selenskí sem hún segir hafa verið gott, þótt umræðuefnið hafi ýmist verið á „alvarlegum nótum eða hálfhryllilegum“. Í gærkvöldi ferðaðist hún til Búkarest þar sem utanríkisráðherrar NATO munu funda í dag. lSegir gagnlegt að sjá stöðuna í Úkraínu með eigin augum Þórdís Kolbrún fundaði með Selenskí í Kænugarði Ljósmynd/Stjórnarráðið Fundur Þórdís Kolbrún ráðherra og Volodomír Selenskí forseti. 78 listaverk voru boðin upp hjá Gallerí Fold í gærkvöldi Kjarval seldist á 6,2 milljónir Alls voru 78 listaverk á uppboði í Gallerí Fold í gærkvöldi. Dýrasta verk kvöldsins var Sumarfantasía eftir Jóhannes S. Kjarval en olíu- málverkið seldist á 6,2 milljónir króna. Uppboðshaldarinn Jóhann Ágúst Hansen segir að ekki sé um að ræða met fyrir verk Kjarvals, „en þetta er í hærri kantinum“. Hann segir að flest verkin hafi selst nálægt verðmati listmunasal- ans en nefnir þó bronsstyttu eftir Ásmund Sveinsson sem var metin á 650 til 750 þúsund krónur en fór þriðjung yfir mat. Þá fór olíumál- verk Nínu Tryggvadóttur fjórðung yfir mat en verðmat verksins var 1,3 til 1,5 milljónir. „Það má segja að Nína, Ásmundur og Kjarval hafi staðið upp úr,“ segir Jóhann en á myndinni má sjá verkið Haustliti eftir Kjarval ásamt vegg- teppi eftir Júlíönu Sveinsdóttur. Teppið fór einnig á matsverði sem var 1,1 til 1,3 milljónir. Jóhann segir að það séu tíðindi þar sem ekki mörg veggteppi eftir Júlíönu hafi farið á uppboð. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.