Morgunblaðið - 29.11.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
Erlent 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022
Tunguhálsi 10 | 110 Reykjavík
415 4000 | kemi.is | kemi@kemi.is
BOSCH
Bremsuhlutir
Eldgos hafið
á Havaíeyju
lStærsta virka eldfjall heims
Eldfjallið Mauna Loa á Havaíeyju
tók að gjósa í gærmorgun eða um
hálftíuleytið að íslenskum tíma.
Eldfjallið, sem er dyngja, er stærsta
virka eldfjall í heimi, en það gaus
síðast árið 1984. Jarðfræðistofn-
un Bandaríkjanna sagði í gær að
hraunstraumurinn væri nú að
mestu innan sigketils fjallsins. Hins
vegar gæti þurft að flytja íbúa á ná-
lægum svæðum í burtu ef aðstæður
breyttust. Er eldgosið sýnilegt
frá bænum Kona á vesturströnd
Havaíeyju, sem er um 72 kílómetra
frá gosinu.
Nafn fjallsins, Mauna Loa, þýðir
langa fjallið á íslensku. Það er eitt
af fimm eldfjöllum sem mynda
eyjuna, en það er eitt og sér stærra
að flatarmáli en hinar eyjarnar í
Havaíeyjaklasanum til samans.
Frá árinu 1843 hefur fjallið gosið
33 sinnum. Gosið varaði í 22 daga
þegar fjallið gaus árið 1984, og fór
hraunstraumurinn þá um 7 kíló-
metrum frá mannabyggð.
AFP/Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna
Eldgosið Þessi loftmynd sýnir hraunstrauminn í Mauna Loa, stærsta
virka eldfjalli heims, en þetta er í fyrsta sinn frá 1984 sem fjallið gýs.
hins vegar til baka. Birti Úkraínuher
myndir á heimasíðu sinni frá um-
hverfinu við Bakhmút, sem minnti
frekar á ljósmyndir frá helstu orr-
ustum fyrri heimsstyrjaldar.
Orrustan hefur enda mestmegn-
is verið háð með stórskotahríð á
skotgrafir beggja herja, og líkti
Wagner-málaliðahópurinn, sem hefur
borið hitann og þungann af sókninni
að Bakhmút, orrustunni við orr-
ustuna í Verdun 1916.
Hin mikla áhersla á stórskota-
lið hefur leitt til þess að fallbyssu-
hlaupin á þeim hábyssum sem vest-
urveldin hafa sent til Úkraínu hafa
gengið úr sér fyrr en áætlað var, og
hafa Bandaríkjamenn því komið á fót
viðgerðarstæði í Póllandi. Þá hefur
einnig komið til tals vestanhafs að
leyfa borgaralegum vopnaframleið-
endum að framleiða 155 mm skotfæri
í byssurnar til að minnka álagið á
skotfæraframleiðslu Bandaríkjahers.
Þá tilkynnti bandaríska varnar-
málaráðuneytið í gær að það væri að
íhuga tillögu frá Boeing-verksmiðj-
unum um að Úkraínumenn myndu
fá sprengjuodda, sem stórskotalið
þeirra gæti skotið allt að 150 kíló-
metra. Sprengjurnar, sem Boeing og
Saab framleiða í sameiningu, þykja
einnig mjög nákvæmar og eiga þær
að geta hæft bæði kyrrstæð skotmörk
og þau sem eru á ferð.
Fordæma kynferðisofbeldi
Olena Selenska, forsetafrú Úkra-
ínu, fordæmdi í gær kynferðisofbeldi
í hernaði, og sagði að saksóknarar í
Úkraínu væru nú að rannsaka rúm-
lega hundrað tilfelli slíkra glæpa, sem
rússneskir hermenn hefðu framið.
Ljóst væri þó að það væri einungis
lítið brot af þeim kynferðisglæpum
sem Rússar hefðu framið í Úkraínu.
Selenska lét ummæli sín falla í
ávarpi á ráðstefnu í Lundúnum um
kynferðisglæpi í stríðsátökum, sem
breska ríkisstjórnin stóð að. Sagði
hún jafnframt að það væri mikilvægt
að slíkir glæpir yrðu viðurkenndir
sem stríðsglæpir og að hinir seku
yrðu dregnir til ábyrgðar.
Á ráðstefnunni voru kynntar
frumniðurstöður rannsóknar Sam-
einuðu þjóðanna á framferði Rússa í
Úkraínustríðinu, og sagði þar meðal
annars að Rússar hefðu beitt víðtæku
kynferðislegu ofbeldi gegn Úkra-
ínumönnum, óháð kyni þolandans.
James Cleverly, utanríkisráðherra
Breta, sagði að nú væri vitað um 18
átök í heiminum sem væru í gangi
þar sem kynferðisofbeldi hefði ver-
ið beitt, og að hann væri staðráðinn
í að sjá til þess að slíkt ofbeldi yrði
fordæmt. Þá tilkynnti hann að bresk
stjórnvöld myndu frá og með næstu
mánaðamótum beita refsiaðgerðum
gegn þeim sem standa að slíkum
glæpum í hernaði.
Úkraínuher varaði við því í gær að
Rússar ætluðu sér að hefja eldflauga-
árásir á orkuinnviði landsins á ný.
Natalía Húmeníuk, talskona hersins,
sagði að nýlega hefði orðið vart við
rússneskt herskip á Svartahafi, sem
væri með Kalibr-eldflaugar um borð,
og þótti líklegt að Rússar myndu
áfram reyna að eyðileggja raforkuver
og hitaveitu í vikunni.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti
varaði við því í ávarpi sínu til þjóðar-
innar á sunnudaginn að von væri á
frekari loftárásum. Sagði Selenskí
að Rússar myndu halda árásum sín-
um á orkuinnviði áfram eins lengi
og þeir hefðu eldflaugar til. Selenskí
bætti þó við að Úkraínuher væri að
búa sig undir að verjast árásum, auk
þess sem vesturveldin hefðu verið að
senda ný loftvarnakerfi til landsins.
Yfirvöld í Kænugarði sögðu í gær
að enn væri verið að gera við skaðann
sem hlaust af árásumRússa í síðustu
viku, og var gripið til þess ráðs að
skammta rafmagn í neyðarskyni.
Vítalí Klitsjkó, borgarstjóri Kænu-
garðs, hvatti í gær íbúa borgarinnar
til að koma sér upp neyðarbirgðum
af mat til að geta mætt hinni ýtrustu
neyð. Þá ættu íbúar einnig að útvega
sér hlý föt, vatn og jafnvel hleðslu-
banka ef ske kynni að upp kæmi
langvarandi rafmagnsleysi.
Klitsjkó varaði við því að tímabund-
ið rafmagnsleysi og skömmtun á
rafmagni gæti varað fram á vorið,
en hann sagði að ekki myndi koma
til allsherjarbrottflutnings íbúa frá
borginni. Einungis yrði gripið til
slíkra ráða ef „verstu mögulegu að-
stæður“ kæmu upp, og þá í takmörk-
uðum mæli.
Minnir á fyrri heimsstyrjöld
Harðir bardagar eru nú einkum í
austurhluta Úkraínu í Donbass-hér-
uðunum. Rússneskir herbloggarar
sögðu sókn Rússa við Bakhmút í
Donetsk-héraði, sem steytt hefur á
skeri síðustu vikur og mánuði, hafa
náð að brjótast í gegnum varnarlínu
Úkraínumanna rétt sunnan borgar-
innar. Úkraínumenn báru þær fregnir
Varað við frekari árásum
lÚkraínumenn búa sig undir frekari loftárásir RússalEnn harðir bardagar við
Bakhmútl Orrustunni líkt við VerdunlBretar hóta frekari refsiaðgerðum
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
AFP/Anatolii Stepanov
Stórskotalið Úkraínskir hermenn sjást hér hlaupa til eldflaugavagns síns af BM-21 Grad-gerð, eftir að þeir höfðu
skotið á vígstöður Rússa í nágrenni Bakhmút. Þurfa þeir að færa sig fljótt áður en svarið berst frá Rússum.
RÚSSLAND
Mótmæla handtök-
um Rússa í Noregi
Robert Kvile, sendiherra Noregs
í Moskvu, var í gær kallaður á
teppið í rússneska utanríkis-
ráðuneytinu, þar sem rússnesk
stjórnvöld vildu mótmæla því
hversu margir Rússar hafa verið
handteknir í landinu fyrir að
njósna með drónum.
Sagði ráðuneytið í yfirlýsingu
sinni að það hefði sagt Kvile að
norsk stjórnvöld ættu að hætta
„ofsóknum sínum“ gegn Rússum
vegna þjóðernis þeirra.
Rússneskur maður var dæmdur
í 90 daga fangelsi í síðustu viku
fyrir að fljúga dróna í leyfisleysi
yfir viðkvæma staði í Noregi, þar
sem ljósmyndun er bönnuð. Þá
munu önnur réttarhöld hefjast
í dag yfir manni sem sagður er
hafa flogið dróna á Svalbarða.
TYRKLAND
Fundar með
Finnum og Svíum
Mevlut Cavusoglu, utanríkisráð-
herra Tyrklands, hyggst funda
í dag með utanríkisráðherr-
um Finnlands og Svíþjóðar í
Búkarest, höfuðborg Rúmeníu,
um inngönguumsókn norrænu
ríkjanna tveggja í Atlantshafs-
bandalagið.
Fundurinn verður haldinn á
„hliðarlínum“ fundar utanríkis-
ráðherra bandalagsríkjanna.
Cavusoglu sagði að þróunin hefði
verið jákvæð, en að ríkin tvö, og
þá sérstaklega Svíar, þyrftu enn
að stíga nokkur skref til að Tyrkir
gætu samþykkt umsóknina.
Einungis Ungverjar og Tyrkir
eiga eftir að samþykkja umsókn
ríkjanna tveggja.
AFP/AdemAltan
NATO Erdogan Tyrklandsforseti fund-
aði með Ulf Kristersson, forsætisráð-
herra Svía, fyrr í mánuðinum.