Morgunblaðið - 29.11.2022, Blaðsíða 32
Í lausasölu 822 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími 569 1100
Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is
Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is
ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 333. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Birta, blek og brillur í hádeginu
„Birta, blek og brillur,
efnismenning lesturs
og skriftar á 19. öld“
er yfirskrift erindis
sem Davíð Ólafsson,
sagnfræðingur og
lektor í menningar-
fræði á Hugvís-
indasviði Háskóla
Íslands, heldur í
Þjóðminjasafninu
í dag kl. 12. Fyrir-
lestrinum er streymt
á YouTube-rás safnsins. Í fyrirlestrinum veltir Davíð
fyrir sér hvaða muni fólk hafi þurft og haft aðgang
að til að lesa bækur, geyma þær og flytja milli staða á
19. öld. Hann hefur skoðað hvernig þessi efnisheimur
birtist í safnkosti Þjóðminjasafns Íslands og annarra
minjasafna og hvað dánarbúsuppskriftir segja um
málið. Tilefni erindisins er sýningin Heimsins hnoss:
Lúinn kistill, silfurskeið og nærbuxur (með gati) sem
var opnuð í Bogasal í síðasta mánuði.
ÍÞRÓTTIR
Ótrúleg saga Niclas Füllkrugs
Þýski sóknarmaðurinn Niclas Füllkrug vakti mikla
athygli þegar hann skoraði glæsilegt jöfnunarmark
Þýskalands í 1:1-jafntefli gegn Spáni á HM í fótbolta
karla í Katar á sunnudagskvöld.
Rúrik Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður í
knattspyrnu, lék með hinum 29 ára gamla Füllkrug
tímabilið 2015/2016 hjá Nürnberg í þýsku B-deildinni
og ber Rúrik honum einstaklega vel söguna. 27
Sjötta hringborðsumræða sendi-
ráðs Kanada á Íslandi og sendi-
ráðs Íslands í Kanada í samstarfi
við Polar Knowledge Canada og
Norðurslóðanet Íslands á Akureyri
verður á morgun, miðvikudaginn
30. nóvember, og verður hægt að
fylgjast ókeypis
með henni í
beinu streymi á
netinu klukkan
16.30-17.30 að
íslenskum tíma
(https://iceland-
canada-20221130.
eventbrite.ca).
Samkvæmt
skráningu hafa
samtals um 1.100 manns fylgst
með og eftir atvikum tekið þátt í
hringborðsumræðunum, fyrir utan
þá sem hafa horft á streymið síðar.
„Við erum virkilega ánægð með
árangurinn af verkefninu, Kanada-
búar eru áhugasamir um Ísland og
markaðurinn er opinn fyrir íslensk
fyrirtæki í Kanada,“ segir Hlynur
Guðjónsson, sendiherra Íslands í
Kanada.
Ráðstefnurnar eru liður í við-
burðum til að minnast þess að í ár
eru 75 ár síðan Ísland og Kanada
tóku upp stjórnmálasamband.
Viðfangsefni hringborðsumræð-
anna á morgun verða samskipti
frumbyggja í Kanada og íslenskra
innflytjenda í Vestur-Kanada frá
1875.
Merkileg samskipti
Jeannette Menzies, sendiherra
Kanada á Íslandi, setur ráðstefn-
una. Vestur-Íslendingurinn dr. Ryan
Eyford, prófessor við Háskólann
í Winnipeg, flytur erindi, sem
hann byggir á bók sinniWhite
Settler Reserve: New Iceland and the
Colonization of the Canadian West.
Hún kom út 2017 og þar rekur hann
söguna af íslenskum innflytjendum
og móttökum, sem þeir fengu hjá
frumbyggjum, en þeir síðarnefndu
aðstoðuðu þá á margan hátt í nýj-
um heimkynnum. „Í stuttu máli var
sambandið mjög flókið,“ segir Ryan
en að erindi hans loknu hefjast
umræður panelsins um málið. Við
hringborðið sitja, auk hans, dr. L.K.
Bertram, prófessor við Toronto-há-
skóla, og dr. David Parent, lektor
við Manitoba-háskóla í Winnipeg.
Dr. Kristín Margrét Jóhannsdóttir,
lektor við Háskólann á Akureyri,
stýrir umræðum.
Málefni sem snerta sameiginlega
hagsmuni Kanada og Íslands hafa
verið tekin fyrir í hringborðsum-
ræðunum á árinu. Þar má nefna
rannsóknir í Íshafinu, mikilvægi
hins svokallaða bláa hagkerfis (e.
Blue Economy) og samspil þekkingar
frumbyggja Kanada og vísinda.
Ríkin hafa líka skipst á bókagjöfum
á þessum tímamótum. Jeannette
Menzies færði Amtbókasafninu á
Akureyri 75 kanadískar bækur í
júní og Borgarbókasafninu í Reykja-
vík sambærilega gjöf 11. október.
Við sama tækifæri opnaði hún þar
alþjóðlegu farandsýninguna „Inuit
Qaujimajatuqangit: Art, Architect-
ure and Traditional Knowledge“.
Hlynur Guðjónsson hefur haft
milligöngu um bókagjafir Íslands
og séð um afhendingu þeirra í
almenningsbókasöfnunum á öllum
þremur norðursvæðum Kanada.
Fyrst í Whitehorse í Yukon og síðan
í Iqaluit í Nunavut, en hann er nú
í þessum erindagjörðum í Yellow-
knife á norðvestursvæði Kanada
(e. North West Territories). Hann
tekur þátt í hringborðsumræðunum
þaðan og slítur ráðstefnunni.
lFlókið samband frumbyggja og Íslendinga í beinni
Samskipti Íslands og
Kanada í brennidepli
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ljósmynd/Meral Jamal/Nunatsiaq News
Í NunavutHlynur Guðjónsson afhenti bækur. Frá vinstri: Teresa Hughes,
Hlynur Guðjónsson, Pamela Gross, Joanna Quassa og Rebecca Mearns.
Menning Eliza Reid forsetafrú þakkar Jeannette Menzies, sendiherra
Kanada á Íslandi, fyrir bókagjöfina og opnar farandsýninguna.
Ryan Eyford
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Jólagjafir
gæludýranna
færðu hjá
okkur