Morgunblaðið - 29.11.2022, Qupperneq 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022
STAKSTEINAR
Þversagnir
okkar tíma
Högni Elfar Gylfason,
sauðfjárbóndi frá Korná í
Skagafirði og varaþingmaður
Miðflokksins, tók sæti á þingi
um daginn
og sagði þar
meðal annars
að við lifðum á
„þversagnar-
kenndum
tímum þar sem
eitt er sagt en
annað gert.
Talað er fyrir
bættum hag
öryrkja og aldraðra en efndir
skortir. Rætt er um orkuskipti
en komið er í veg fyrir virkjanir.
Haft er á orði að minnka báknið
en það blæs út sem aldrei fyrr.
Fögur fyrirheit um styrkingu
iðnnáms koðna niður vegna
fjársveltis.
Rætt er um uppbyggingu
vegakerfisins en lagt er til
að láta íbúa greiða sérstaklega
fyrir að komast leiðar sinnar.
Orð falla um stuðning við inn-
lenda matvælaframleiðslu en
fremur er hlúð að innflutningi
matvæla og aukinni skatt-
heimtu af bændum. Heilbrigð-
iskerfinu er hampað sem því
besta í heimi en biðlistar lengj-
ast sem aldrei fyrr og aðstoð
sjálfstætt starfandi lækna er
afþökkuð.
Fólk er lokkað til landsins í
þúsundavís með gylliboðum
um betra líf en annars staðar
býðst, þrátt fyrir að innviðir
ráði ekki við ástandið og fjár-
muni skorti til að halda uppi
öllu þessu ógæfusama fólki og
þeim hælisleitendaiðnaði sem
byggst hefur upp í kringum það.
Talað er fyrir eflingu löggæslu
en fjárveitingar skortir. Því
ríða atvinnuglæpahópar um
héruð án mikils aðhalds.“ Þetta
eru óneitanlega athyglisverðar
ábendingar hjá Högna Elfari.
Högni Elfar
Gylfason
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
200krónur í varaflugvallagjald
lSkili stjórnvöldum 1.500milljónum ár
hvert sem nýtist í uppbyggingu flugvalla
Hver farþegi í millilandaflugi á Ís-
landi þarf að greiða 200 krónur í
svokallað varaflugvallargjald verði
nýtt frumvarp til laga, um upp-
byggingu og rekstur flugvalla og
þjónustu við flugumferð, að lögum.
Drög að frumvarpinu hafa verið
lögð fram til kynningar í samráðs-
gátt stjórnvalda. Í þeim má sjá að
hið svonefnda varaflugvallagjald á
að skila stjórnvöldum 1.200-1.500
milljónum króna ár hvert ef gert
sé ráð fyrir því að um sex milljónir
farþega greiði gjaldið. Þessar upp-
hæðir gætu þó orðið enn hærri þar
sem farþegaspá Isavia gerir ráð fyr-
ir allt að átta milljónum farþega um
Keflavíkurflugvöll árið 2024.
Í greinargerð frumvarpsins seg-
ir að þessar tekjur muni renna í
frekari uppbyggingu flugvallanna
á Egilsstöðum og Akureyri en það
sé nauðsynlegt svo þeir geti talist
fullnægjandi varaflugvellir fyrir
alþjóðaflug. „Ef horft er á Egils-
staðaflugvöll þá má gera ráð fyrir
að árlegur kostnaður vegna þarfa
millilandaflugsins verði um 608
milljónir króna. Á Akureyraflugvelli
er kostnaðurinn hins vegar áætlað-
ur 345 milljónir króna árlega. ... Með
innheimtu varaflugvallagjalds verð-
ur fjármögnun innanlandsflugvalla
tryggð,“ segir í greinargerðinni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Egilsstaðaflugvöllur Þörf á rúmum
600milljónum króna ár hvert.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Eitt tilboð barst í
Breiðafjarðarferju
Aðeins barst eitt tilboð í að leigja
Vegagerðinni ferju til siglinga á
Breiðafirði í byrjun næsta árs í stað
ferjunnar Baldurs.
Vegagerðin auglýsti eftir skipi til
siglinga á Breiðafirði, Breiðafjarð-
arferju. Skipið mun sigla milli
Stykkishólms og Brjánslækjar sem
er flokkað sem hafsvæði af gerð
C. Áætlað var að gera samning
um leigu á skipinu án áhafnar í
fimm mánuði, frá 1. janúar 2023 til
31. maí 2023, með möguleika á að
kaupa skipið. Tilboð voru opnuð hjá
Vegagerðinni 25. nóvember sl. Eitt
tilboð barst, frá Torghatten Nord
AS í Noregi. Hljóðaði það upp á
2.082.530 evrur eða jafnvirði ríflega
300 milljóna íslenskra króna. Var
það nær 50% hærra en ráð var
fyrir gert i kostnaðaráætlun. Hún
hljóðaði upp á 1.400.000 evrur, eða
jafnvirði rúmra 200 milljóna króna.
Er hér miðað við viðmiðunargengi
evru, rúmar 146 krónur. Að sögn
G. Péturs Matthíassonar, upplýs-
ingafulltrúa Vegagerðarinnar, bauð
útgerðin ekki fram ákveðið skip í
tilboðinu. Vegagerðin er nú að fara
yfir tilboðið. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
BaldurVegagerðin leitar nú að nýrri ferju til Breiðafjarðarsiglinga.