Morgunblaðið - 29.11.2022, Page 11

Morgunblaðið - 29.11.2022, Page 11
FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022 11 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Nýir bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Onyx black/svartur að innan. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. Heithúðaður pallur með gúmmimottu, sóllúga, toppljós. 2023 GMC Denali 2500HD VERÐ 16.730.000 m.vsk Án vsk. 13.492.000 Litur: Iconic Silver/svartur að innan. 475 hö, 1050 pund tog og 10 gíra sjálfskipting. Innifalið í TREMOR-pakki. Topplúga, Quad Beam LED ljós, heithúðaður pallur, húdd- hlíf. Lariat Sport útlitspakki með meðal annars samlitað grill. Ultimate pakki sem innheldur meðal annars lyklalaust aðgengi, start og fjarstart og tröppu í hlera. Heithúðaður pallur, quad beam LED aðalljós, 360 myndavélakerfi með back up assist. 2022 Ford F-350 Tremor Lariat Sport VERÐ 18.490.000 m.vsk Án vsk. 14.900.000 Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík Suðurlandsbraut 20 / Reykjavík / Sími 588 0200 / eirvik.is „Þetta er einstök náttúruperla sem kallar á hógværa, sjálfbæra og vand- aða nálgun hvað framkvæmdir og rekstur varðar. Þetta er jú fegursti staðurinn í fallegasta firði landsins,“ segir Runólfur Ágústsson, verk- efnastjóri og einn aðstandenda verk- efnis sem snýr að byggingu sjóbaða í landi Þórustaða í Önundarfirði. Eignarhaldsfélagið Blævængur ehf., í samstarfi við verkfræðistof- una Eflu, arkitektastofuna Sen&- Son, heimafólk og landeigendur hafa kynnt íbúum á Flateyri og í Önundarfirði tillögur að byggingu sjóbaðanna, að því er segir í til- kynningu. Þar kemur fram að næstu skref í þróun verkefnisins séu nátt- úrufarsgreinng og deiliskipulag svæðisins. „Böðin verða meginsegull í ferðamennsku á Vestfjörðum og byggjast á sjálfbærri nýtingu á varmaorku úr sjó, einstakri náttúru- fegurð og þessari dásamlegu gullnu skeljasandsfjöru sem nú þegar er miðstöð sjóbaða á norðanverðum Vestfjörðum,“ segir Runólfur. Hann segir enn fremur að bygg- ingin og böðin verði hönnuð þannig að þau falli inn í umhverfið og verði hluti af því. „Þannig notum við enda gömu flugbrautarinnar í Holti sem bílastæði. Þaðan munu gestir ganga rúmlega 100 metra stíg niður í laugarhúsið sjálft sem verður fellt þar inn í melgresishól niðri við fjör- una sjálfa. Stígurinn mun liggja um æðarvarp í landi Þórustaða og geta gestir fylgst með varpi æðarfugl- anna og fjölda annarra fugla úr sérs- töku fuglaskoðunarskýli á varptíma. Öll okkar hugmyndafræði snýst um að skapa einstaka náttúruupplifun fyrir gestina og að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið.“ Áformin fela í sér að tvær bryggj- ur liggi frá lauginni um fjöruna í sjó- inn. Annars vegar stígur tengdur stuttri flotbryggju, hins vegar ný, löng trébryggja út í fjörðinn þar sem gestir geti á bryggjusporðinum yljað sér í stórum heitum potti eftir að hafa synt í firðinum. Veitingastaður og gufubað Í tilkynningunni er rakið að hönnunin öll byggist á hagkvæmni, virðingu fyrir staðaranda og ítar- legri markaðsgreiningu. „Sérstök áhersla er á fjölbreytileika mann- lífsins samhliða einstakri náttúru- fegurð og þeirri frelsistilfinningu að synda í sjálfu Norður-Atlants- hafinu. Í böðunum verða í boði einkaklefar fyrir einstaklinga og pör, hefðbundnir karla- og kvenna- klefar ásamt sérstökum kynsegin/ blönduðum búningsklefa fyrir þá sem ekki vilja skilgreina sig inn í hefðbundna kynjaramma og aðra þá sem slíkt kjósa, t.d. foreldra sem vilja hjálpast að með ung börn. Ásamt laugum, pottum og bað- ströndinni, verður veitingastaður fyrir 50 gesti hluti aðstöðunnar, auk gufubaða, snyrti- og nuddstofu,“ segir þar enn fremur. lVerða hönnuð inn í umhverfiðlVeitingastaður og nudd Sjóböð í Önundarfirði verði segull fyrir túrista Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Uppbygging Gullna skeljasandsfjaran í Önundarfirði á að draga til sín ferðafólk sem vill baða sig í sjónum. Vilhelm Þorsteins- son dreginn í höfn lBilun í skrúfubúnaði skipsins „Það koma sérfræðingar á morgun [í dag] og kíkja á skipið til að sjá hvað hafi gerst,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri Vilhelms Þorsteinssonar EA. Skipið strandaði á leið sinni til hafnar í Neskaupstað í gær og þurfti að draga það að bryggju rétt eftir hádegið. Svo virðist sem einhver bilun hafi orðið í skrúfugangi skipsins sem olli því að skipið fór stjórn- laust aftur á bak og varð síðan vélarvana sem endaði með því að skipið strandaði á bröttum sandkanti rétt sunnan við hafnar- mynnið. Vilhelm Þorsteinsson EA var að koma af veiðum og var með 900 tonn þegar óhappið varð. Haft var strax samband við björgunarsveit og Landhelgisgæsluna, en ekki þótti ástæða til að senda þyrlu, enda slysið rétt í hafnarmynninu. Björgunarskipið Hafrún kom fyrst á staðinn og aðstoðaði skipverja við að losa skipið af sandrifinu og Barði NK 120, skip Síldarvinnsl- unnar, kom síðan til aðstoðar og dró Vilhelm að bryggju. Það kom sér vel að mikil blíða var, sem gerði allt björgunarstarf auðveldara. Í dag mun væntanlega koma í ljós hvað gerðist nákvæm- lega. „Ég er bjartsýnn á að við- gerðin gangi fljótt og vel fyrir sig,“ sagði skipstjórinn Guðmundur Þ. Jónsson. Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Tog Systurskipin Vilhelm Þorsteinsson EA 11 og Börkur NK 122 á togi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.