Morgunblaðið - 29.11.2022, Side 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2022
✝
Svava Berg
Þorsteinsdóttir
fæddist á Akureyri
22. febrúar 1928.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu Eir í
Reykjavík 11. nóv-
ember 2022
Foreldrar Svövu
Berg voru Emilía
Jónasdóttir leik-
kona, f. 1901, d.
1984 og Þorsteinn
Sigurðsson vélstjóri, f. 1901, d.
1979.
Systkini Svövu: Ágústína
Berg, f. 1929, d. 2017, Jón Ólaf-
ur, f. 1932, d. 2003, Júlí Sæberg,
f. 1935, d. 2018, Marinó, f. 1938
og Sigurður Sæberg, f. 1942, d.
2014.
Svava Berg giftist 21. ágúst
1948 Ágústi Val Guðmundssyni,
f. 26. júní 1926, d. 17. júní 2011.
Foreldrar hans voru Nikólína
Henrietta Katrín Þorláksdóttir
og Guðmundur Guðmundsson.
Svava og Ágúst byggðu sér
hús í Smáíbúðahverfinu á Soga-
vegi 16 og bjuggu þar í um 50
ár, en fluttu svo í nýbyggt fjöl-
Reykjavíkur 14 ára og byrjaði
fljótlega að vinna í versluninni
Nora Magasín í Pósthússtræti.
Hún og samstarfskonur í versl-
uninni stofnuðu þar sauma-
klúbb og vinátta þeirra hefur
haldist ævilangt.
Svava var heimavinnandi
húsmóðir á meðan börnin voru
lítill, en vann einnig hjá
Hanska- og töskugerðinni í
Reykjavík. Hún vann ýmis
verslunarstörf, m.a. í fataversl-
uninni Ásu á Skólavörðustíg,
var verslunarstjóri í Skóverslun
Steinars Waage og vann síðar í
Dömunni í Lækjargötu. Á seinni
árum starfaði Svava svo í mörg
ár sem sjálfboðaliði í verslun
Rauða krossins á Borgarspít-
alanum.
Svava gekk ung í skátahreyf-
inguna og eignaðist þar marga
góða vini og var hún sannur
skáti allt sitt líf. Svava og Ágúst
voru bæði í skátunum og sinntu
útivist tengdri skátastarfinu af
krafti. Mörgum góðum stundum
vörðu þau hjónin uppi á Hellis-
heiði ásamt vinum sínum í
skátaflokknum Hreysiköttum
þar sem hópurinn byggði saman
glæsilega skátaskálann Hreysið
inni í Innstadal.
Útför Svövu Berg fer fram
frá Guðríðarkirkju Grafarholti í
dag, 29. nóvember 2022, og
hefst athöfnin kl. 13.
býlishús í Sóleyja-
rima 3 fyrir 17 ár-
um.
Börn Svövu og
Ágústs eru Guð-
mundur Örn, f. 30.
júlí 1950, d. 5. des-
ember 1995. Börn
Guðmundar eru
Ingólfur Örn, Ingi-
björg, Ágúst Valur
og Brynjar Örn.
Jónas Ágúst, f.
16. júlí 1953, giftur Halldóru
Guðríði Árnadóttur. Dætur
þeirra eru Sigríður Elín og
Svava Björk.
Sólveig Björk, f. 20. apríl
1959, gift Óskari Ísfeld Sigurðs-
syni. Börn þeirra eru Selma Sif
Ísfeld og Ari Freyr Ísfeld.
Þorsteinn Valur, f. 10. ágúst
1965, giftur Írisi Dröfn Heiðu-
dóttir. Börn þeirra eru Aron
Valur, Eva Dröfn og Emilía
Heiða.
Langömmubörnin eru 30
talsins og fyrsta langalang-
ömmubarnið væntanlegt í byrj-
un næsta árs.
Svava flutti frá Akureyri til
Hún heitir Svava Berg,
tengdamóðir mín sem ég nú kveð.
Akureyri var hennar bær
og ætíð henni kær.
„Hún er fögur hún Kea,“
átti hún til að kveða.
Gerðist skáti sunnan heiða.
Í árdaga hún ákvað þann veg að leiða.
Kynntist manni mætum.
Henni fannst hann Gústi alltaf sætur.
Hann byggði henni húsið fína,
hugsaði vel um sína.
Hún eignaðist börnin fjögur,
sem nú geyma hennar sögu.
Bakaði skonsur og sandköku
og marengsinn frægi á merka sögu.
Heimili hennar fagurt og hlýtt.
Ætíð blómum prýtt.
Elskuleg heim að sækja.
Engu hægt við það að bæta.
Í eldhúsinu hellurnar glóðu
og með svuntuna hún færði okkur
kræsingarnar góðu.
Leikhúsáhugi henni í blóð borinn,
enda af leikkonu í heiminn komin.
Við kveðjumst nú að þessu sinni,
því nú er lokið göngu þinni.
Vegurinn var stundum með holum og
pollum,
en oftast beinn og fagur með þínum
sporum.
Nú hafa himnarnir opnast þér.
Þú ert ekki lengur hér.
Ný heimkynni á vegi tærleikans,
þar sem ástvinir fagna þér með ást og
kærleika.
Í faðmi þeirra þú nú hvílir.
En minning þín ætíð hjá mér lifir.
Elsku Svava,
Takk fyrir samveruna, mildina
og kærleikann.
Það er gjöfin þín og það er gæf-
an mín.
Þín tengdadóttir,
Halldóra Guðríður
Árnadóttir.
Elsku besta amma Svava, þeg-
ar við hugsum til þín kemur allra
fyrst upp í hugann hversu ynd-
islegt það var alltaf að vera hjá
ykkur afa á Sogaveginum. Við
upplifðum okkur alltaf velkomn-
ar, hvenær sem er og hvernig svo
sem stóð á, og það var alltaf til-
hlökkunarefni að koma til ykkar.
Þegar við komum í heimsókn tók
ósjaldan á móti okkur ilmur af ný-
bökuðum skonsum og tei. Í minn-
ingunni ert þú alltaf í eldhúsinu,
með svuntuna þína, brosandi og
bakandi skonsur og alls kyns góð-
gæti. Það var alltaf svo notalegt
að setjast í eldhúskrókinn, gæða
sér á gómsætum heimabakstri og
spjalla við ykkur afa.
Við systurnar eigum okkar
yndislegu minningar af samveru-
stundum, sumar minningarnar
eigum við saman en aðrar eru ein-
staklingsbundnar enda eru sjö ár
á milli okkar í aldri. En báðar
munum við þegar þú hlustaðir
með okkur á Cats-plötuna,
Kardimommubæinn og Dýrin í
Hálsaskógi. Þá sagðirðu okkur
oft sögur af langömmu, henni
Ömmu Emilíu.
Þú gerðir jólin einstök og
ógleymanleg fyrir okkur barna-
börnin þín með því að skreyta
heimilið með fallegu jólaskrauti,
en allt skrautið átti sinn sérstaka
stað. Minnisstæð er einnig laufa-
brauðsgerðin, jólakökurnar allar,
frómasinn, sjöbotnatertan og
lengi mætti telja. Svo má nú alls
ekki gleyma að minnast á víð-
frægu marengstertuna þína
elsku amma, sem hefur verið
ómissandi í öllum veislum fjöl-
skyldunnar árum saman og alltaf
verið fastur liður á 17. júní.
Elsku amma, þú kenndir okk-
ur að biðja bænirnar okkar og
sagðir okkur frá því hvernig þú
varst vön að biðja alltaf fyrir öðr-
um, enda var kærleikurinn alltaf
þitt aðalsmerki og þú snertir við
öllum sem kynntust þér í gegn-
um árin. Við munum eftir bæj-
arferðum með Ingu frænku í
strætó, þá fórum við á söfn og
kaffihús og komum við í Döm-
unni þar sem þú spjallaðir við
vinkonur og fyrrum samstarfs-
konur. Á unglingsárunum varstu
dugleg að ræða við okkur um líð-
an okkar, um skólagönguna, um
framtíðina og sagðir okkur frá
þínum unglingsárum. Það var
alltaf gott að geta leitað til þín.
Líka þegar við eignuðumst börn-
in okkar en þá var gaman að
ræða við þig um hvernig þú upp-
lifðir það hlutverk að verða móð-
ir. Aldrei brást það að þú hringd-
ir í okkur á afmælisdaginn og
söngst fyrir okkur afmælissöng-
inn. Það er okkur líka minnis-
stætt að við fengum alltaf póst-
kort frá þér þegar þú fórst
erlendis t.d. til Spánar og Kanarí.
Elsku amma, við verðum þér
ávallt þakklátar fyrir alla ástina
og kærleikann sem þú gafst okk-
ur alla tíð. Þú ert okkar fyrir-
mynd í svo mörgu og við munum
leggja okkur fram um að gefa
þessa ást áfram til okkar fjöl-
skyldu, vina og afkomenda. Við
vitum að nú líður þér vel og við
vitum að það hafa án efa verið
fagnaðarfundir þegar afi Gústi og
allt fólkið þitt hinum megin tók á
móti þér. Við sjáum þig fyrir okk-
ur vera að njóta lífsins núna með
öllu fólkinu þínu sem farið er og
er þér svo kært.
Hafðu ávallt þökk fyrir allt
sem þú gafst okkur elsku besta
amma Svava. Ljósið þitt, kær-
leikurinn þinn, jákvæðni þín og
drifkraftur munu lifa áfram með
okkur um alla tíð.
Þínar alltaf,
Svava Björk og
Sigríður Elín.
Elsku amma, þó líkami þinn
væri líklega feginn að fá hvíldina
var hugurinn kvikur og frjór og
ekki tilbúinn að kveðja. Fyrir
stuttu sagði ég þér að við værum
að koma heim um jólin, bros færð-
ist yfir fallega andlitið þitt, upp að
hlýju augunum þínum. Þú sagðist
ekki geta beðið eftir því að eyða
jólunum með okkur. Ég vildi óska
þess að við fengjum bara ein
ömmujól í viðbót.
Þökk sé þér er barnæska mín
full af hlýju og dásamlegum minn-
ingum um nýbakaðar skonsur og
sandkökur í hrönnum, frystikista
full af íspinnum, klink í buddunni
til þess að kaupa pylsu í sjoppunni
og ef það var ekki nóg var til
meira í Hagkaup! Ófáar næturnar
gisti ég í besta rúminu, kom niður
snemma morguns í ristað brauð
og teið ykkar afa. Það er víst heil-
agur sannleikur að rúmið og mat-
urinn er miklu betri í ömmuhúsi!
Þú kenndir mér að baka, pínu
písl í ömmu eldhúsi að leika í
hveitinu. Þú reyndir þitt besta til
að kenna mér að strauja, settir
mig í straubúðir með öll hand-
klæðin sem fundust á Sogavegin-
um. Ekki gekk það þó betur en
svo að mér er bannað að koma ná-
lægt straujárninu núna! Þar hefur
það samt verið nemandinn sem
slugsaði frekar en kennarinn. En
baksturinn er annað mál, þar bý
ég að ráðum þínum, einn daginn
ætla ég mér jafnvel að reyna við
marengsinn!
Við vorum tengdar sérstökum
böndum, amma og Semilla, skáta-
stelpurnar. Ég gat ekki beðið eftir
því að byrja í skátunum, enda
hafði ég heyrt um frækin ská-
taævintýri ykkar afa og svo
mömmu frá blautu barnsbeini.
Alltaf var ég stolt að eiga ömmu
sem deildi afmæli með Baden Po-
well! Þið afi áttuð ykkar bestu
minningar úr skátunum, af Hellis-
heiðinni, í félagsskap sem entist
ævina á enda. Þegar kom að mér
eignaðist ég líka dýrmæta vini,
lenti í ævintýrum á Hellisheiðinni.
Þessi skátagen eru sterk, margir
þessara vina eru barnabörn
skátavina ykkar afa. Og nú er
langömmubarnið byrjað í skátun-
um hinum megin við hafið! Svona
gengur lífið í hringi við Undra-
landið blátt.
Ferðalögin okkar eru dýrmæt.
Akureyrarferðirnar, húsin þín á
Eyrinni, Brynjuís og hún er fögur
hún Kea! Afmælisferðin þín til
Glasgow og „afternoon tea“ eins
og drottningin. Við skoðuðum Ed-
inborg og þú komst að heimsækja
okkur litlu fjölskylduna til Stock-
ton. Ég bjó um þig í rúminu okkar
og við borðuðum morgunmat úti.
Mér þótti svo vænt um að sýna
þér lífið okkar í útlandinu. Og þú
ert með okkur í Brussel þó þú haf-
ir aðeins séð ævintýrið hér í gegn-
um skjáinn.
Ég held við höfum báðar vitað
það innst inni að knúsið okkar 17.
júní væri það síðasta, þess vegna
var kveðjustundin svona sár.
Skrýtið að hugsa til þess að það
var á dánardegi afa.
Nú ertu komin í fangið á afa
aftur. Elsku Gústa þínum. Eftir
stöndum við sem elskum þig með
tárin í augunum en hlýtt í hjart-
anu, því það eru áhrifin sem þú
hafðir á alla sem á vegi þínum
urðu. Þú varst hlýjan og gleðin og
ljósið mitt, elsku amma mín.
Mikið sakna ég þín, elsku
amma.
Sofnar drótt, nálgast nótt,
sveipast kvöldroða himinn og sær.
Allt er hljótt, hvíldu rótt.
Guð er nær.
Þín dótturdóttir,
Selma Sif.
Elsku langamma Svava.
Takk fyrir alla hlýjuna og kær-
leikann sem þú hefur gefið okkur.
Við söknum þín og munum
aldrei gleyma þér.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.
Úr furutré, sem fann ég út við sjó,
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.
Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
og hlustið, englar guðs í Paradís.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)
Þín barnabarnabörn,
Halldóra Valdís, Ágústa
Vigdís, Þórkatla Rún og
Jónas Jökull.
Elsku amma, eftirfarandi
minningar eru okkur efst í huga
þegar við rifjum upp tímann okk-
ar saman.
Þú varst einstök, hjartahlý og
ávallt var hægt að treysta á stál-
minni þitt. Við gátum alltaf stólað
á að fá nýjustu fréttir af fjölskyld-
unni yfir kaffinu með þér. Þú
hvattir okkur alltaf til að vera við
sjálf og fyrir það erum við þakk-
lát.
Þú fórst alltaf þínar eigin leiðir
og lést engan segja þér hvernig
þú ættir að vera. Þú fórst með
harðfisk sem nesti í bíó, hélst upp
á 91 árs afmælið þitt með pítsu og
bjór, tókst strætó hvert sem þú
þurftir að fara og lést ekki skort á
ökuréttindum stoppa þig.
Sogavegur 16 var miðstöð
minninga sem við munum aldrei
gleyma. Gleðin sem fylgdi hverri
heimsókn til ykkar afa mun lifa
lengi í minningum okkar. Í þau
skipti þegar við laumuðumst í
kexskúffuna þóttust þið ekki
verða vör við neitt eins og góðum
ömmum og öfum sæmir. Einnig
eru ævintýraferðirnar niður í
kjallara að ná í íspinna úr frysti-
kistunni, brasa á verkstæðinu
hans afa, sjónvarpsgláp og kökuát
dýrmætar minningar.
Við systkinin fengum alltaf
símhringingu frá þér hvern af-
mælisdag þar sem þú söngst af-
mælissönginn í fullri lengd. Þessi
símtöl voru hápunkturinn á hverj-
um afmælisdegi.
Við nutum þess alltaf að koma
til þín og afa á Þorláksmessu þar
sem jólatréð var skreytt og borð-
uð var pítsa að verki loknu.
Við vitum að þið afi eruð loks-
ins sameinuð eftir langa bið og
veitir það okkur hugarró og gefur
okkur hlýju í hjartað. Nú getið þið
dansað saman um ókomna tíð á
Þingvöllum sem var alltaf ykkar
uppáhalds staður.
Við elskum þig amma.
Þín barnabörn
Aron, Eva og Emilía.
Vinkona mín hún Svava Berg
er látin. Vinátta okkar Svövu
hófst fyrir meira en hálfri öld,
sennilega fyrir um 70 árum, og
hefur haldist óslitin síðan.
Hún Svava myndi muna hve
mörg árin voru því hún var stál-
minnug.
Svava var traustur vinur og
alltaf reiðubúin að greiða götu og
rétta hjálparhönd þeim sem
þurftu á að halda.
Þær eru margar minningarnar
sem hrannast upp að leiðarlokum,
í áratugi vorum við í saumaklúbb
þar sem fyrstu áratugina var unn-
ið af kappi, síðan var samveran
orðin aðalatriði, fyrst og fremst
ánægjan af að hittast og gleðjast
saman. Frá þeim stundum eru
ómetanlegar minningar. Fyrir all-
ar þessar stundir vil ég þakka þér,
Svava mín.
Ferðalög með klúbbnum hvort
heldur innanlands eða utan og
þorrablótin, þar sem makarnir
fengu að vera með, eru ógleyman-
legar ánægjustundir sem aldrei
bar skugga á.
Það er sárt að sjá á eftir góðum
vini en söknuðurinn er þó mestur
hjá þeim sem næst henni stóðu,
ég votta þeim öllum innilega sam-
úð mína.
Sigurrós (Rósa)
Sigurðardóttir.
Svava Berg
Þorsteinsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐNÝ HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR,
hjúkrunarheimlinu Eir 3N,
áður til heimilis á Framnesvegi 33,
lést mánudaginn 21. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
1. desember klukkan 13.
Helga Björk Birgisdóttir Guðmundur Guðbrandsson
Óskar Ingi Stefánsson Katarzyna Jakubowska
Kjartan G. Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BENEDIKT ANDRÉSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn
26. nóvember.
Guðrún Benediktsdóttir Halldór Jónsson
Árni Hjaltason
Auður Benediktsdóttir Guðni Karl Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
ERLA VIGDÍS KARLSDÓTTIR
Hæðargarði 29,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 14. nóvember.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Aðstandendur
Elsku Essý. Við
minnumst með hlý-
hug vináttu okkar
og áranna í Stjörnugrófinni. Við
þrjár vorum gott teymi saman og
erum við ævinlega þakklátar fyrir
það samstarf. Þín er sárt saknað.
Jarðvist á enda,
lífsgöngu lokið.
Ljósið þitt slokknað,
fölnuð brá.
Virðing og þökk,
vegferðin öll,
vel í huga geymd.
Sigurbjörg Stefanía
Sverrisdóttir (Essý)
✝
Sigurbjörg
Stefanía
Sverrisdóttir, Essý,
fæddist 6. júní
1965. Hún lést 19.
nóvember 2022.
Útför Essýjar fór
fram 28. nóvember
2022.
Syrgjendur kveðja,
söknuðinn finna,
sárasta harminn,
tregans tár.
Virðing og þökk,
vegferðin öll,
vel í huga geymd.
Faðmi þig ljósið,
friðarins engill
fylgi þér nú
á æðra stig.
Virðing og þökk,
vegferðin öll,
vel í huga geymd.
(Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson)
Elski Gylfi, Daníel og Eyþór,
missir ykkar er mikill og hugur
okkar er hjá ykkur á þessum erf-
iðu tímum. Fjölskyldu Essýjar
vottum við okkar dýpstu samúð.
Minning um góða konu lifir.
Bryndís og Heba.