Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
Við erum í næsta nágrenni! www.apotekarinn.is
9–18
24. des
9–23
25. des
9–23
26. des
9–18
31. des
9–23
1. jan
Opið alla virka daga 8-24 og 9–24 um helgar
OPIÐ ALLA DAGA
YFIR HÁTÍÐARNAR
Í AUSTURVERI
Sendum þér og þínum bestu óskir
um gleðilega hátíð
STAKSTEINAR
Hyggilegar
ábendingar
Ragnar Önundarson vill að
„gullóðir“ viti að réttindum
fylgja skyldur. Samhliða beri að
ræða hreinsun
fjalla og firn-
inda landsins
eftir að fárviðri
og ísing hafa
fellt himin-
há möstrin og
hlutafélag um
„gullgröftinn“
er orðið gjald-
þrota. Búnað
úr óendurvinnanlegum efnum
þurfi því að urða.
Nú þegar flytja á sjálft landið
út, grús, sand og vikur, sé
óhjákvæmilegt að leggja á námu-
eða auðlindagjald. Við eigum
ekki að eyða tímanum í rifrildi,
heldur hafa gjaldið hóflegt, t.d.
2% af veltu. Ragnar vill ekki að
menn geti í krafti eignarréttar
eignast jarðefni, sem víst er að
munu í jarðeldum framtíðarinn-
ar falla á land þeirra, og flutt út
gjaldfrjálst, sem sýnir fárán-
leika ótakmarkaðs eignarréttar.
Sú regla gildir, að ef eitthvað
er of gott til að vera satt, þá
er það ekki satt. Flestir land-
eigendur ganga út frá því að
uppsetning og rekstur vindorku-
garða sé einkamál þeirra. Málið
er ekki svo einfalt. Hvinur,
höggbylgjur og fugladauði eru
ekki einkamál. Sjónmengun ekki
heldur.
Ekki er þörf fyrir þessa orku
enn og eðlilegt að virkja
fyrst þau jökulvötn sem henta
best. Sennilega er besti staður-
inn fyrir vindmyllur úti á sjó og
þá sem næst markaðnum sem
nýtir orkuna.
Hann er ekki hér.
Ragnar
Önundarson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Grenndargámar eru á um 90
stöðum á höfuðborgarsvæðinu,
flestir í Reykjavík eins og gefur að
skilja. Oft eru þeir fljótir að fyllast
en eftir fannfergi síðustu helgar
voru þeir enn fljótari að fyllast og
víða mynduðust hrúgur af pappír
og öðru rusli við gámana, líkt og
meðfylgjandi mynd af Bústaðavegi
ber með sér.
Sveitarfélögin sjá um rekstur
gámanna en fyrirtækið Terra sér
um að tæma þá og koma inni-
haldinu til Sorpu til endurvinnslu.
Fjölmargar ábendingar hafa borist
í vikunni um yfirfulla gáma en
vegna fannfergis var aðkoma að
þeim erfið framan af vikunni. Ofan
á allt saman bættist að annar
þeirra bíla bilaði sem Terra notar
við að tæma gámana.
Stefnt var að því að tæma alla
gáma fyrir jól og þeir verða einnig
tæmdir á milli jóla og nýárs. Í
gámana er hægt að losa sig við
plast, pappír og gler, auk þess sem
RKÍ er með gám undir föt og skát-
ar taka við flöskum og dósum.
lTæmaátti alla gáma fyrir jól
Grenndargámarnir
yfirfyllast fljótt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Yfirfullt Pappakassar og fleira rusl hafði safnast saman við gáma við
Bústaðaveg í vikunni, líkt og við marga fleiri gáma í Reykjavík.
Áfram í gæsluvarð-
haldi til 17. janúar
Gæsluvarðhald yfir karlmanni
sem liggur undir grun vegna
stunguárásar á skemmti-
staðnum Bankastræti Club í
Reykjavík 17. nóvember sl. hefur
verið framlengt til 17. janúar.
Þetta staðfesti Margeir
Sveinsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu í samtali
við mbl.is.
Maðurinn er sá eini sem enn
er í varðhaldi vegna málsins
en um tíma sat á annan tug
einstaklinga í gæsluvarðhaldi.
Allt um sjávarútveg