Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 8
FRÉTTIR Innlent8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 Við erum í næsta nágrenni! www.apotekarinn.is 9–18 24. des 9–23 25. des 9–23 26. des 9–18 31. des 9–23 1. jan Opið alla virka daga 8-24 og 9–24 um helgar OPIÐ ALLA DAGA YFIR HÁTÍÐARNAR Í AUSTURVERI Sendum þér og þínum bestu óskir um gleðilega hátíð STAKSTEINAR Hyggilegar ábendingar Ragnar Önundarson vill að „gullóðir“ viti að réttindum fylgja skyldur. Samhliða beri að ræða hreinsun fjalla og firn- inda landsins eftir að fárviðri og ísing hafa fellt himin- há möstrin og hlutafélag um „gullgröftinn“ er orðið gjald- þrota. Búnað úr óendurvinnanlegum efnum þurfi því að urða. Nú þegar flytja á sjálft landið út, grús, sand og vikur, sé óhjákvæmilegt að leggja á námu- eða auðlindagjald. Við eigum ekki að eyða tímanum í rifrildi, heldur hafa gjaldið hóflegt, t.d. 2% af veltu. Ragnar vill ekki að menn geti í krafti eignarréttar eignast jarðefni, sem víst er að munu í jarðeldum framtíðarinn- ar falla á land þeirra, og flutt út gjaldfrjálst, sem sýnir fárán- leika ótakmarkaðs eignarréttar. Sú regla gildir, að ef eitthvað er of gott til að vera satt, þá er það ekki satt. Flestir land- eigendur ganga út frá því að uppsetning og rekstur vindorku- garða sé einkamál þeirra. Málið er ekki svo einfalt. Hvinur, höggbylgjur og fugladauði eru ekki einkamál. Sjónmengun ekki heldur. Ekki er þörf fyrir þessa orku enn og eðlilegt að virkja fyrst þau jökulvötn sem henta best. Sennilega er besti staður- inn fyrir vindmyllur úti á sjó og þá sem næst markaðnum sem nýtir orkuna. Hann er ekki hér. Ragnar Önundarson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni www.mbl.is/mogginn/leidarar Grenndargámar eru á um 90 stöðum á höfuðborgarsvæðinu, flestir í Reykjavík eins og gefur að skilja. Oft eru þeir fljótir að fyllast en eftir fannfergi síðustu helgar voru þeir enn fljótari að fyllast og víða mynduðust hrúgur af pappír og öðru rusli við gámana, líkt og meðfylgjandi mynd af Bústaðavegi ber með sér. Sveitarfélögin sjá um rekstur gámanna en fyrirtækið Terra sér um að tæma þá og koma inni- haldinu til Sorpu til endurvinnslu. Fjölmargar ábendingar hafa borist í vikunni um yfirfulla gáma en vegna fannfergis var aðkoma að þeim erfið framan af vikunni. Ofan á allt saman bættist að annar þeirra bíla bilaði sem Terra notar við að tæma gámana. Stefnt var að því að tæma alla gáma fyrir jól og þeir verða einnig tæmdir á milli jóla og nýárs. Í gámana er hægt að losa sig við plast, pappír og gler, auk þess sem RKÍ er með gám undir föt og skát- ar taka við flöskum og dósum. lTæmaátti alla gáma fyrir jól Grenndargámarnir yfirfyllast fljótt Morgunblaðið/Árni Sæberg Yfirfullt Pappakassar og fleira rusl hafði safnast saman við gáma við Bústaðaveg í vikunni, líkt og við marga fleiri gáma í Reykjavík. Áfram í gæsluvarð- haldi til 17. janúar Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem liggur undir grun vegna stunguárásar á skemmti- staðnum Bankastræti Club í Reykjavík 17. nóvember sl. hefur verið framlengt til 17. janúar. Þetta staðfesti Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is. Maðurinn er sá eini sem enn er í varðhaldi vegna málsins en um tíma sat á annan tug einstaklinga í gæsluvarðhaldi. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.