Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
DAGLEGTLÍF12
Hreint loft –betri heilsa
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Láttu þér og þínum
líða vel - innandyra
Loftmengun er hættuleg heilsu og
lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki
eru góð viðmyglugróum, bakteríum,
frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
HFD323E Air Genius 5.
Hægt að þvo síuna.
Verð kr. 39.420
HPA830 Round Air
Purifier. Mjög hljóðlát.
Verð kr. 29.960
S. 555 3100 · donna.is
K
irkjan skiptir Eyjafólk
miklu máli og safnað-
arstarfið er öflugt, ekki
síst fyrir jólin,“ segir
sr. Guðmundur Örn Jónsson,
sóknarprestur við Landakirkju í
Vestmannaeyjum. Þar hafa verið
guðsþjónustur og ýmsar samkomur
nú á aðventunni. Tengslin við sam-
félagið eru sterk og í því sambandi
má meðal annars nefna heimsókn-
ir nemenda úr yngstu bekkjum
Grunnskóla Vestmannaeyja í kirkj-
una nú á aðventunni. Við messu um
síðustu helgi færðu nemendur úr 5.
bekk upp helgileik í kirkjunni, þar
sem fæðing frelsarans var frásagn-
arefni.
Stærsta frétt allra tíma
Svo bar til um þessar mundir,
segir í jólaguðspjalli Lúkasar.
Allir þekkja söguna sem gerðist á
Betlehemsvöllum fyrir 2022 árum,
atburður sem er stærsta frétt allra
tíma hingað til.
„Já, sagan er mögnuð,“ segir
Guðmundur Örn. „Kjarninn er
einfaldlega sá að Guð gerðist maður
sem lítið saklaust barn sem okkur
mannfólkinu var falið að annast.
Og þarna virkar traustið til beggja
átta; okkur er treyst fyrir barninu
en við verðum aftur að treysta
barninu. Svo er líka mikil fegurð í
þeirri sögu að hinir fyrstu sem bar
að eftir að hafa hlustað á skilaboð
englakórsins og sáu barnið voru
fjárhirðar; fátækastir allra manna.
Á eftir þeim komu svo vitringarnir,
sem voru ríkari en flestir aðrir.
Slíkt segir að Jesús er allra.“
Sameiningarkrafturinn birtist
Sr. Guðmundur Örn er tilbúinn
með ræðurnar fyrir messuhald
jólanna. Þær annast hann með sr.
Viðari Stefánssyni, en þeir tveir
eru prestar Landakirkju. Þar hefst
helgihald dagsins kl. 14 með helgi-
stund í kirkjugarðinum. Svo eru
guðsþjónustur dagsins tvær; aftan-
söngur klukkan 18 þar sem jólin eru
hringd inn og svo miðnæturmessa
kl. 23.30. Á jóladag er messa kl. 14
og á öðrum degi jóla er helgistund
á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum.
– Þá eru hjá Eyjaprestum bókaðar
minnst fimm skírnarathafnir nú um
hátíðarnar, sem verða í heimahús-
um og í Landakirkju.
„Hátíðleikinn er eins, alveg sama
hvert er komið um jól. Allir reyna
að gera sér dagamun, hver sem
staða fólks er. Sameiningarkraftur-
inn birtist í því að fólk vill gleðjast
og óskandi væri að fólk héldi þá
út aðeins lengur en bara yfir jólin
að hafa frið og fögnuð í hjarta. Á
jólunum kemur annars vel í ljós og
sannreynist hvað skiptir máli; það
er staða náungans í samfélaginu og
að enginn ætti að gleymast. Hér í
Vestmannaeyjum er eins og annars
staðar fólk sem er eitt, sem getur
verið af ýmsum ástæðum. Samt
veit ég að á aðfangadagskvöld á
þetta fólk yfirleitt vinum að mæta
og er boðið í heimsókn til vinafólks.
Í sumum tilvikum tekur þar hver
kynslóðin við af annarri í gestgjafa-
hlutverki gagnvart þeim sem ein
eru. Þetta finnst mér bæði fallegt
og dýrmætt.“
Sjóferðabæn og fallegur siður
Sextán ár eru síðan sr. Guðmund-
ur Örn kom til starfa í Vestmanna-
eyjum. Strax á upphafsdögum
sínum í starfi segist hann hafa
reynt hvað kirkjan og starf hennar
sé mikilvægt fyrir samfélagið í
Eyjum og hlutverk hennar stórt.
„Lendi fólk hér í einhverjum vanda
andlega höfum við hér ekki sama
aðgengi að til dæmis geðlæknum
og sálfræðingum og sums staðar
annars staðar. Því er hefð fyrir
því meðal Eyjafólks þegar slík mál
koma upp að byrja á því að leita til
okkar prestanna. Vissulega getum
við ekki leyst allan vanda þessa
fólks en vonandi komið einhverju
góðu til leiðar, ef svo ber við, og
stundum veitt þá hjálp sem dugar,“
segir presturinn sem þykir trúarvit-
und Eyjafólks sterk:„Hafinu fylgja
hættur og margir leita því styrks í
trúnni. Hér tíðkast líka, þegar ný
skip koma í Eyjaflotann, að þar er
jafnan settur upp platti með hinni
þekktu sjóferðabæn sr. Odds V.
Gíslasonar. Slíkt gerist við athöfn
sem við prestarnir hér komum
að. Vissulega er ekki lengur farið
með sjóferðabæn í upphafi hverrar
sjóferðar eins og áður tíðkaðist.
Þó veit ég að margir skipstjórar
bregða fingri á plattann og strjúka
létt þegar haldið er frá bryggju.
Telja að slíkt viti á gott – sem er
fallegur, dýrmætur siður.“
Traust er kjarni sögunnar
Eyjar! Þrjár messur í
Landakirkju um hátíð-
ina. Jólaguðspjallið er
mögnuð saga, segir sr.
Guðmundur Örn Jóns-
son prestur. Enginn sé
einn um hátíðina.
Hátíðleikinn er alveg
sá sami hvert sem
komið er um jól. Allir
reyna að gera sér
dagamun
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Helgileikur Sr. Guðmundur Örnmeðal barna í kirkjunni við fallega athöfn sem þar var haldin um síðustu helgi.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Landakirkja Svipsterkt guðshús og kennileiti í Vestmannaeyjum. Kirkjan
var reist á árunum 1774-1778 en síðar stækkuð. Eitt elsta hús landsins.
Ljúft að fara í laugina
Jólasund er
góð hugmynd
Enginn má fara í jólaköttinn og jafn
mikilvægt er að fólk fari hreint og
strokið inn í hátíðina. Því er tilvalið
að skreppa í sund áður, ef allt er
til reiðu fyrir gleði kvöldsins. Allar
sundlaugar í Reykjavík eru opnar í
dag, aðfangadag, fram til klukkan
13. Þá hafa sundlaugar borgarinnar
líka komið sterkar inn á öðrum degi
jóla, en þá eru þær opnar frá 12-18.
Sundlaugar í öðrum bæjarfélögum
eru víðast hvar opnar á svipuðum
tíma og í höfuðborginni, en þjónustu-
tíma má sjá á vefsíðum viðkomandi
sveitarfélaga.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Dalslaug Nýjasti sundstaður
Reykjavíkur og einn sá besti.
Hátíð um heim allan og margir siðir svipaðir milli landa
Brasilíski jólasveinninn mætti á barnaspítalann
Einu gildir hvar borið er niður
um veröld víða nú í aðdraganda
jólanna: margir siðir eru svipaðir
hvert sem landið er og menning
þar. Í Rio de Janeiro í Brasilíu
birtist jólasveinninn, rauðklæddur
með hvítt skegg, á gjörgæsludeild
barnaspítalans þar í borg. Á bak við
búninginn var tæplega sextugur
starfsmaður sjúkrahússins. Sá hef-
ur síðastliðin tuttugu ár haft með
höndum að gleðja börn sem þurfa
læknishjálp og dvelja á sjúkra-
húsinu um hátíðina.
Í alþjóðlegum fréttaveitum, þaðan
sem Morgunblaðinu berst efni,
mátti í gær finna margar frásagnir
líkar þeirri sem hér að ofan greinir.
Óteljandi lönd og allar álfur heims-
ins voru undir í þeim pakka. Litríkar
og líflegar sögur sem allar hafa í
raun sama inntak: bestu óskir um
gleðileg jól. sbs@mbl.is Gleði Góð heimsókn á spítalann þar sem fallegu bliki í augum barns brá fyrir.
AFP/Mauro Pimentel
Kirkjuhlaupið kætir
Tekið á rás á
Seltjarnarnesi
Eins og hefð er fyrir stendur
Trimmklúbbur Seltjarnarness fyrir
kirkjuhlaupi á öðrum degi jóla. Lagt
verður af stað frá Seltjarnarneskirkju
kl. 10 og þaðan tekinn stór hringur
um borgina þar sem hlaupið er fram
hjá nokkrum kirkjum. Þegar Nesinu
sleppir er fyrst skeiðað fram hjá
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni við
Öldugötu og þaðan að Landakots-
kirkju. Næst koma svo Dómkirkjan,
Fríkirkjan og Aðventkirkjan við
Ingólfsstræti. Síðust er Neskirkja og
endað er aftur á Nesinu, en þá hafa
þau sem treysta sér alla leið lagt að
baki 14 km. Að loknu hlaupi býður
Seltjarnarneskirkja hlaupurum upp á
heitt súkkulaði og smákökur.
Raunar þarf ekki viðburð sem
þennan til að fara megi út að hlaupa.
Ef færi er gott og skórnir þægilegir er
öllum leiðin greið.
Hlauparar Gott og gaman að skokka
um stíga þvers og kruss um bæinn.
Morgunblaðið/Golli