Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 DAGLEGTLÍF12 Hreint loft –betri heilsa Honeywell gæða lofthreinsitæki Láttu þér og þínum líða vel - innandyra Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglugróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. HFD323E Air Genius 5. Hægt að þvo síuna. Verð kr. 39.420 HPA830 Round Air Purifier. Mjög hljóðlát. Verð kr. 29.960 S. 555 3100 · donna.is K irkjan skiptir Eyjafólk miklu máli og safnað- arstarfið er öflugt, ekki síst fyrir jólin,“ segir sr. Guðmundur Örn Jónsson, sóknarprestur við Landakirkju í Vestmannaeyjum. Þar hafa verið guðsþjónustur og ýmsar samkomur nú á aðventunni. Tengslin við sam- félagið eru sterk og í því sambandi má meðal annars nefna heimsókn- ir nemenda úr yngstu bekkjum Grunnskóla Vestmannaeyja í kirkj- una nú á aðventunni. Við messu um síðustu helgi færðu nemendur úr 5. bekk upp helgileik í kirkjunni, þar sem fæðing frelsarans var frásagn- arefni. Stærsta frétt allra tíma Svo bar til um þessar mundir, segir í jólaguðspjalli Lúkasar. Allir þekkja söguna sem gerðist á Betlehemsvöllum fyrir 2022 árum, atburður sem er stærsta frétt allra tíma hingað til. „Já, sagan er mögnuð,“ segir Guðmundur Örn. „Kjarninn er einfaldlega sá að Guð gerðist maður sem lítið saklaust barn sem okkur mannfólkinu var falið að annast. Og þarna virkar traustið til beggja átta; okkur er treyst fyrir barninu en við verðum aftur að treysta barninu. Svo er líka mikil fegurð í þeirri sögu að hinir fyrstu sem bar að eftir að hafa hlustað á skilaboð englakórsins og sáu barnið voru fjárhirðar; fátækastir allra manna. Á eftir þeim komu svo vitringarnir, sem voru ríkari en flestir aðrir. Slíkt segir að Jesús er allra.“ Sameiningarkrafturinn birtist Sr. Guðmundur Örn er tilbúinn með ræðurnar fyrir messuhald jólanna. Þær annast hann með sr. Viðari Stefánssyni, en þeir tveir eru prestar Landakirkju. Þar hefst helgihald dagsins kl. 14 með helgi- stund í kirkjugarðinum. Svo eru guðsþjónustur dagsins tvær; aftan- söngur klukkan 18 þar sem jólin eru hringd inn og svo miðnæturmessa kl. 23.30. Á jóladag er messa kl. 14 og á öðrum degi jóla er helgistund á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum. – Þá eru hjá Eyjaprestum bókaðar minnst fimm skírnarathafnir nú um hátíðarnar, sem verða í heimahús- um og í Landakirkju. „Hátíðleikinn er eins, alveg sama hvert er komið um jól. Allir reyna að gera sér dagamun, hver sem staða fólks er. Sameiningarkraftur- inn birtist í því að fólk vill gleðjast og óskandi væri að fólk héldi þá út aðeins lengur en bara yfir jólin að hafa frið og fögnuð í hjarta. Á jólunum kemur annars vel í ljós og sannreynist hvað skiptir máli; það er staða náungans í samfélaginu og að enginn ætti að gleymast. Hér í Vestmannaeyjum er eins og annars staðar fólk sem er eitt, sem getur verið af ýmsum ástæðum. Samt veit ég að á aðfangadagskvöld á þetta fólk yfirleitt vinum að mæta og er boðið í heimsókn til vinafólks. Í sumum tilvikum tekur þar hver kynslóðin við af annarri í gestgjafa- hlutverki gagnvart þeim sem ein eru. Þetta finnst mér bæði fallegt og dýrmætt.“ Sjóferðabæn og fallegur siður Sextán ár eru síðan sr. Guðmund- ur Örn kom til starfa í Vestmanna- eyjum. Strax á upphafsdögum sínum í starfi segist hann hafa reynt hvað kirkjan og starf hennar sé mikilvægt fyrir samfélagið í Eyjum og hlutverk hennar stórt. „Lendi fólk hér í einhverjum vanda andlega höfum við hér ekki sama aðgengi að til dæmis geðlæknum og sálfræðingum og sums staðar annars staðar. Því er hefð fyrir því meðal Eyjafólks þegar slík mál koma upp að byrja á því að leita til okkar prestanna. Vissulega getum við ekki leyst allan vanda þessa fólks en vonandi komið einhverju góðu til leiðar, ef svo ber við, og stundum veitt þá hjálp sem dugar,“ segir presturinn sem þykir trúarvit- und Eyjafólks sterk:„Hafinu fylgja hættur og margir leita því styrks í trúnni. Hér tíðkast líka, þegar ný skip koma í Eyjaflotann, að þar er jafnan settur upp platti með hinni þekktu sjóferðabæn sr. Odds V. Gíslasonar. Slíkt gerist við athöfn sem við prestarnir hér komum að. Vissulega er ekki lengur farið með sjóferðabæn í upphafi hverrar sjóferðar eins og áður tíðkaðist. Þó veit ég að margir skipstjórar bregða fingri á plattann og strjúka létt þegar haldið er frá bryggju. Telja að slíkt viti á gott – sem er fallegur, dýrmætur siður.“ Traust er kjarni sögunnar Eyjar! Þrjár messur í Landakirkju um hátíð- ina. Jólaguðspjallið er mögnuð saga, segir sr. Guðmundur Örn Jóns- son prestur. Enginn sé einn um hátíðina. Hátíðleikinn er alveg sá sami hvert sem komið er um jól. Allir reyna að gera sér dagamun Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Helgileikur Sr. Guðmundur Örnmeðal barna í kirkjunni við fallega athöfn sem þar var haldin um síðustu helgi. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Landakirkja Svipsterkt guðshús og kennileiti í Vestmannaeyjum. Kirkjan var reist á árunum 1774-1778 en síðar stækkuð. Eitt elsta hús landsins. Ljúft að fara í laugina Jólasund er góð hugmynd Enginn má fara í jólaköttinn og jafn mikilvægt er að fólk fari hreint og strokið inn í hátíðina. Því er tilvalið að skreppa í sund áður, ef allt er til reiðu fyrir gleði kvöldsins. Allar sundlaugar í Reykjavík eru opnar í dag, aðfangadag, fram til klukkan 13. Þá hafa sundlaugar borgarinnar líka komið sterkar inn á öðrum degi jóla, en þá eru þær opnar frá 12-18. Sundlaugar í öðrum bæjarfélögum eru víðast hvar opnar á svipuðum tíma og í höfuðborginni, en þjónustu- tíma má sjá á vefsíðum viðkomandi sveitarfélaga. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dalslaug Nýjasti sundstaður Reykjavíkur og einn sá besti. Hátíð um heim allan og margir siðir svipaðir milli landa Brasilíski jólasveinninn mætti á barnaspítalann Einu gildir hvar borið er niður um veröld víða nú í aðdraganda jólanna: margir siðir eru svipaðir hvert sem landið er og menning þar. Í Rio de Janeiro í Brasilíu birtist jólasveinninn, rauðklæddur með hvítt skegg, á gjörgæsludeild barnaspítalans þar í borg. Á bak við búninginn var tæplega sextugur starfsmaður sjúkrahússins. Sá hef- ur síðastliðin tuttugu ár haft með höndum að gleðja börn sem þurfa læknishjálp og dvelja á sjúkra- húsinu um hátíðina. Í alþjóðlegum fréttaveitum, þaðan sem Morgunblaðinu berst efni, mátti í gær finna margar frásagnir líkar þeirri sem hér að ofan greinir. Óteljandi lönd og allar álfur heims- ins voru undir í þeim pakka. Litríkar og líflegar sögur sem allar hafa í raun sama inntak: bestu óskir um gleðileg jól. sbs@mbl.is Gleði Góð heimsókn á spítalann þar sem fallegu bliki í augum barns brá fyrir. AFP/Mauro Pimentel Kirkjuhlaupið kætir Tekið á rás á Seltjarnarnesi Eins og hefð er fyrir stendur Trimmklúbbur Seltjarnarness fyrir kirkjuhlaupi á öðrum degi jóla. Lagt verður af stað frá Seltjarnarneskirkju kl. 10 og þaðan tekinn stór hringur um borgina þar sem hlaupið er fram hjá nokkrum kirkjum. Þegar Nesinu sleppir er fyrst skeiðað fram hjá rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni við Öldugötu og þaðan að Landakots- kirkju. Næst koma svo Dómkirkjan, Fríkirkjan og Aðventkirkjan við Ingólfsstræti. Síðust er Neskirkja og endað er aftur á Nesinu, en þá hafa þau sem treysta sér alla leið lagt að baki 14 km. Að loknu hlaupi býður Seltjarnarneskirkja hlaupurum upp á heitt súkkulaði og smákökur. Raunar þarf ekki viðburð sem þennan til að fara megi út að hlaupa. Ef færi er gott og skórnir þægilegir er öllum leiðin greið. Hlauparar Gott og gaman að skokka um stíga þvers og kruss um bæinn. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.