Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 14
FRÉTTIR
Innlent14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu hafa samþykkt að setja á fót
Áfangastaðastofu höfuðborgar-
svæðisins. Undirbúningur er í
fullum gangi og mun stofan taka til
starfa á næsta ári. Í dag eru áfanga-
staðastofur í öllum landshlutum á
Íslandi nema á höfuðborgarsvæð-
inu. Nýjustu tölur sýna að 93%
erlendra ferðamanna heimsækja
höfuðborgarsvæðið.
Drög að samningi Garðabæjar,
Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfells-
bæjar, Reykjavíkur, Seltjarnarnes-
bæjar, Samtaka sveitarfélaga
höfuðborgarsvæðisins (SSH) og
Ferðamálasamtaka höfuðborgar-
svæðisins um stofnun áfanga-
staðastofu hafa verið kynnt. Með
samningnum er skrifstofu SSH,
ásamt verkefnastjóra verkefnis um
áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið,
falið að undirbúa stofnun Áfanga-
staðastofu höfuðborgarsvæðisins
sem verði rekin sem sjálfseignar-
stofnun á grundvelli laga nr.
33/1999. Áfangastaðastofa höfuð-
borgarsvæðisins verður stofnuð á
árinu 2023.
Samningur um samstarf
Unnið hefur verið að verkefninu
frá upphafi árs 2021 og skrifaði
samstarfsvettvangur um áfanga-
staðinn höfuðborgarsvæðið í
upphafi árs 2022 undir samstarfs-
samning. Þar voru helstu verkefnin
m.a. að vinna áfangastaðaáætlun,
stefnumótun og framtíðarsýn fyrir
áfangastaðinn og aðgerðaáætlun
(til 3-5 ára) og að greina tölfræði og
vinna markmið og mælikvarða fyrir
áfangastaðinn.
Tilgangur og markmið eru enn
þau sömu og dregin voru fram í
samningi samstarfsvettvangsins:
Að efla vitund og þekkingu um
áfangastaðinn og allt það sem
svæðið hefur upp á að bjóða, jafnt
fyrir ferðamenn og íbúa. Ennfrem-
ur að þróa, móta og efla samstarf
og samlegð um málefni ferðaþjón-
ustunnar á höfuðborgarsvæðinu
milli sveitarfélaga, atvinnulífs og
stjórnvalda.
Miðað skal við að stofnfundur
skuli haldinn eigi síðar en 15. mars
2023. Í áætlunum um starfsemina
er gert ráð fyrir að einn starfs-
maður, þá væntanlega fram-
kvæmdastjóri, verði ráðinn strax
við stofnun stofunnar og að um mitt
ár 2023 verði ráðnir tveir starfs-
menn til viðbótar og formleg starf-
semi hafin. Framtíðaráætlanir gera
þá ráð fyrir að áfangastaðastofan
verði komin í fulla starfsemi á árinu
2024 en þá verði tveir starfsmenn
til viðbótar ráðnir til starfa.
Kostnaður sem skiptist milli
sveitarfélaga á árinu 2023 nemur
39.590.000 krónum. Kostnaður
miðast við hlutfall íbúa á svæðinu.
Reykjavík mun leggja fram 22,3
milljónir, Kópavogur 6,5, Hafnar-
fjörður 4,9, Garðabær 3, Mosfells-
bær 21,2 og Seltjarnarnesbær 776
þúsund krónur.
Áfangastaðastofa
stofnuð fyrir höf-
uðborgarsvæðið
lNýjustu tölur sýna að 93% ferða-
mannaheimsækja svæðið árlega
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn Langflestir koma á höf-
uðborgarsvæðið á hverju ári.
Flugvélarfarmur af hlýjum
vetrarfatnaði er kominn í notkun
úkraínskra hermanna á vígstöðv-
unum. Kanadísk herflugvél flutti
varninginn frá Íslandi hinn 12.
desember sl. og í vikunni fékk
utanríkisráðuneytið sent mynd-
band frá úkraínska hernum sem
sýnir þegar farmurinn er tekinn í
notkun á vígstöðvunum, í miklum
vetrarkulda.
Um var að ræða annars vegar
afrakstur íslensks hannyrðafólks
sem hefur prjónað margvíslegar
ullarvörur og hins vegar innkaup
utanríkisráðuneytisins á vörum
hérlendis.
Ísland hefur þar að auki lagt
ríflega 1,6 milljónir evra í sjóð á
vegum Atlantshafsbandalagsins
sem kaupir m.a. vetrarfatnað.
Hermennirnir sem koma fram
í myndbandinu senda þakkir til
Íslands og segja að klæðnaðurinn
muni koma að góðum notum á
vígstöðvunum.
lVel tekið af hermönnum íÚkraínu
Hlý föt frá Íslandi
komin til Úkraínu
Úkraína Hermenn taka hlýju fötin frá Íslandi upp úr kössunum.
að gistiskýlið á Lindargötu yrði opið
yfir daginn. Þar er aðstaða betri en
á Grandagarði og kaffistofan getur
tekið við þeim fjölda sem dvelur
í neyðarskýlinu að Grandagarði.
Þetta væri þó bráðabirgðaúrræði
þar til hægt væri að finna varanlegri
lausnir fyrir gesti neyðarskýla karla.
Ástandið er betra í Konukoti, þar
sem eftirspurnin hefur ekki vaxið
jafnmikið.
Aðsókn heimilislausra sem hafa
miklar og flóknar þjónustuþarfir, í
neyðarskýli hefur aukist gífurlega
að undanförnu. Því hefur rekstrar-
kostnaður meira en tvöfaldast frá
2018. Aðsóknin í neyðarskýli karla
er þannig að flesta mánuði ársins
er farið langt yfir 100% þjónustu-
getu skýlanna. Mikið hefur mætt á
starfsfólki sem borgin hættir á að
missa frá sér vegna þessa.
Langt yfir 100% nýting
Nýtingarhlutfallið á Lindargötu og
Grandagarði var á milli 110-120% í
mars- og aprílmánuði í ár. Við slík-
ar aðstæður er erfitt að tryggja ör-
yggi gesta og starfsfólks, eins og sjá
mátti á fleiri atvikaskráningum og
var samþykkt fjárheimild fyrir einu
viðbótarstöðugildi á báðum neyðar-
skýlunum út árið vegna þessa. Að-
sókn jókst enn meira með sumr-
inu og í ágúst var nýtingin 146% í
Grandagarði og 117% á Lindargötu.
Þá var samþykkt á fundi velferð-
arráðs að komið yrði á neyðarhús-
næði fyrir 6-8 heimilislausa karla.
Afgreiðslu tillögunnar var frestað
og síðan vísað til fjárhagsáætlun-
argerðar 2. nóvember sl.
Í minnisblaðinu segir að þetta
verkefni sé orðið of stórt til að
borgin geti sinnt því án aðkomu
eða fjárhagsstuðnings ríkis, annarra
sveitarfélaga eða hjálparstofnana.
Nauðsynlegt sé að finna lausnir á
vandanum.
Kuldatíðin að undanförnu hefur
beint athygli Íslendinga að málefn-
um heimilislausra og sér þess stað
á samfélagsmiðlum. Neyðarskýli
fyrir karla á Lindargötu og Granda-
garði eru að jafnaði lokuð frá 10-17
á daginn og gestir skýlanna því á
götunni yfir daginn í öllum veðr-
um. Neyðaráætlun var sett í gang
19. desember á fundi neyðarstjórnar
velferðarsviðs. Ástæðan var að spáð
var fádæma frosthörkum seinni
hluta mánaðarins og var ákveðið að
neyðarskýlin yrðu opin allan daginn
fram til 28. desember. Deildarstjóri
málaflokks heimilislausra sendir út
upplýsingar til allra forstöðumanna
skýlanna, bráðamóttöku Landspít-
ala, lögreglu, Rauða krossins og
forsvarsmanna tjaldsvæða.
Kostnaður tvöfaldast
Hins vegar er málið flóknara
en svo að það nægi að hafa skýlin
opin allan sólarhringinn. Í fyrsta
lagi henta skýlin misvel til slíkrar
opnunar vegna skorts á starfsfólki
og aðstæðna í hverju skýli. Á fundi
velferðarráðs 21. desember var lagt
fram minnisblað þar sem lagt var til
lLokað yfir miðjan daginnlHætta fyrir starfsfólk og gesti
lBorgin ræður ekki við kostnaðinnlAukin ásókn karla
Yfirfull neyðarskýli
Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
Nýting rýma í neyðarskýlum fyrir karla og Konukoti árið 2022*
Gistiskýlið Lindargötu Gistiskýlið Grandagarði Konukot**
160%
140%
120%
100%
80%
60%
40%
160%
140%
120%
100%
80%
60%
40%
Heimild: Reykjavíkurborg
*Til og með 19. des. 2022
**Jan.-nóv. 2022, tölur fyrir
des. liggja ekki fyrir
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv.
Meðalnýting 2022: 108%
Okt.-des. 2022: 116%
Meðalnýting 2022: 129%
Meðalnýting 2022: 86%
Júlí.-nóv. 2022: 106%
121% 124%
147% 146%
117%
93%
90%
106%
117%
Meðalnýting 2020: 56%
Meðalnýting 2020: 62%
Meðalnýting 2021: 68%
Meðalnýting 2021: 76%
Meðalnýting 2021: 97%
Meðalnýting 2020: 76%
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lindargata Nýting hefur farið yfir
100% í níu mánuði af tólf á árinu.