Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 14

Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 14
FRÉTTIR Innlent14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð- inu hafa samþykkt að setja á fót Áfangastaðastofu höfuðborgar- svæðisins. Undirbúningur er í fullum gangi og mun stofan taka til starfa á næsta ári. Í dag eru áfanga- staðastofur í öllum landshlutum á Íslandi nema á höfuðborgarsvæð- inu. Nýjustu tölur sýna að 93% erlendra ferðamanna heimsækja höfuðborgarsvæðið. Drög að samningi Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfells- bæjar, Reykjavíkur, Seltjarnarnes- bæjar, Samtaka sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins (SSH) og Ferðamálasamtaka höfuðborgar- svæðisins um stofnun áfanga- staðastofu hafa verið kynnt. Með samningnum er skrifstofu SSH, ásamt verkefnastjóra verkefnis um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið, falið að undirbúa stofnun Áfanga- staðastofu höfuðborgarsvæðisins sem verði rekin sem sjálfseignar- stofnun á grundvelli laga nr. 33/1999. Áfangastaðastofa höfuð- borgarsvæðisins verður stofnuð á árinu 2023. Samningur um samstarf Unnið hefur verið að verkefninu frá upphafi árs 2021 og skrifaði samstarfsvettvangur um áfanga- staðinn höfuðborgarsvæðið í upphafi árs 2022 undir samstarfs- samning. Þar voru helstu verkefnin m.a. að vinna áfangastaðaáætlun, stefnumótun og framtíðarsýn fyrir áfangastaðinn og aðgerðaáætlun (til 3-5 ára) og að greina tölfræði og vinna markmið og mælikvarða fyrir áfangastaðinn. Tilgangur og markmið eru enn þau sömu og dregin voru fram í samningi samstarfsvettvangsins: Að efla vitund og þekkingu um áfangastaðinn og allt það sem svæðið hefur upp á að bjóða, jafnt fyrir ferðamenn og íbúa. Ennfrem- ur að þróa, móta og efla samstarf og samlegð um málefni ferðaþjón- ustunnar á höfuðborgarsvæðinu milli sveitarfélaga, atvinnulífs og stjórnvalda. Miðað skal við að stofnfundur skuli haldinn eigi síðar en 15. mars 2023. Í áætlunum um starfsemina er gert ráð fyrir að einn starfs- maður, þá væntanlega fram- kvæmdastjóri, verði ráðinn strax við stofnun stofunnar og að um mitt ár 2023 verði ráðnir tveir starfs- menn til viðbótar og formleg starf- semi hafin. Framtíðaráætlanir gera þá ráð fyrir að áfangastaðastofan verði komin í fulla starfsemi á árinu 2024 en þá verði tveir starfsmenn til viðbótar ráðnir til starfa. Kostnaður sem skiptist milli sveitarfélaga á árinu 2023 nemur 39.590.000 krónum. Kostnaður miðast við hlutfall íbúa á svæðinu. Reykjavík mun leggja fram 22,3 milljónir, Kópavogur 6,5, Hafnar- fjörður 4,9, Garðabær 3, Mosfells- bær 21,2 og Seltjarnarnesbær 776 þúsund krónur. Áfangastaðastofa stofnuð fyrir höf- uðborgarsvæðið lNýjustu tölur sýna að 93% ferða- mannaheimsækja svæðið árlega Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Ferðamenn Langflestir koma á höf- uðborgarsvæðið á hverju ári. Flugvélarfarmur af hlýjum vetrarfatnaði er kominn í notkun úkraínskra hermanna á vígstöðv- unum. Kanadísk herflugvél flutti varninginn frá Íslandi hinn 12. desember sl. og í vikunni fékk utanríkisráðuneytið sent mynd- band frá úkraínska hernum sem sýnir þegar farmurinn er tekinn í notkun á vígstöðvunum, í miklum vetrarkulda. Um var að ræða annars vegar afrakstur íslensks hannyrðafólks sem hefur prjónað margvíslegar ullarvörur og hins vegar innkaup utanríkisráðuneytisins á vörum hérlendis. Ísland hefur þar að auki lagt ríflega 1,6 milljónir evra í sjóð á vegum Atlantshafsbandalagsins sem kaupir m.a. vetrarfatnað. Hermennirnir sem koma fram í myndbandinu senda þakkir til Íslands og segja að klæðnaðurinn muni koma að góðum notum á vígstöðvunum. lVel tekið af hermönnum íÚkraínu Hlý föt frá Íslandi komin til Úkraínu Úkraína Hermenn taka hlýju fötin frá Íslandi upp úr kössunum. að gistiskýlið á Lindargötu yrði opið yfir daginn. Þar er aðstaða betri en á Grandagarði og kaffistofan getur tekið við þeim fjölda sem dvelur í neyðarskýlinu að Grandagarði. Þetta væri þó bráðabirgðaúrræði þar til hægt væri að finna varanlegri lausnir fyrir gesti neyðarskýla karla. Ástandið er betra í Konukoti, þar sem eftirspurnin hefur ekki vaxið jafnmikið. Aðsókn heimilislausra sem hafa miklar og flóknar þjónustuþarfir, í neyðarskýli hefur aukist gífurlega að undanförnu. Því hefur rekstrar- kostnaður meira en tvöfaldast frá 2018. Aðsóknin í neyðarskýli karla er þannig að flesta mánuði ársins er farið langt yfir 100% þjónustu- getu skýlanna. Mikið hefur mætt á starfsfólki sem borgin hættir á að missa frá sér vegna þessa. Langt yfir 100% nýting Nýtingarhlutfallið á Lindargötu og Grandagarði var á milli 110-120% í mars- og aprílmánuði í ár. Við slík- ar aðstæður er erfitt að tryggja ör- yggi gesta og starfsfólks, eins og sjá mátti á fleiri atvikaskráningum og var samþykkt fjárheimild fyrir einu viðbótarstöðugildi á báðum neyðar- skýlunum út árið vegna þessa. Að- sókn jókst enn meira með sumr- inu og í ágúst var nýtingin 146% í Grandagarði og 117% á Lindargötu. Þá var samþykkt á fundi velferð- arráðs að komið yrði á neyðarhús- næði fyrir 6-8 heimilislausa karla. Afgreiðslu tillögunnar var frestað og síðan vísað til fjárhagsáætlun- argerðar 2. nóvember sl. Í minnisblaðinu segir að þetta verkefni sé orðið of stórt til að borgin geti sinnt því án aðkomu eða fjárhagsstuðnings ríkis, annarra sveitarfélaga eða hjálparstofnana. Nauðsynlegt sé að finna lausnir á vandanum. Kuldatíðin að undanförnu hefur beint athygli Íslendinga að málefn- um heimilislausra og sér þess stað á samfélagsmiðlum. Neyðarskýli fyrir karla á Lindargötu og Granda- garði eru að jafnaði lokuð frá 10-17 á daginn og gestir skýlanna því á götunni yfir daginn í öllum veðr- um. Neyðaráætlun var sett í gang 19. desember á fundi neyðarstjórnar velferðarsviðs. Ástæðan var að spáð var fádæma frosthörkum seinni hluta mánaðarins og var ákveðið að neyðarskýlin yrðu opin allan daginn fram til 28. desember. Deildarstjóri málaflokks heimilislausra sendir út upplýsingar til allra forstöðumanna skýlanna, bráðamóttöku Landspít- ala, lögreglu, Rauða krossins og forsvarsmanna tjaldsvæða. Kostnaður tvöfaldast Hins vegar er málið flóknara en svo að það nægi að hafa skýlin opin allan sólarhringinn. Í fyrsta lagi henta skýlin misvel til slíkrar opnunar vegna skorts á starfsfólki og aðstæðna í hverju skýli. Á fundi velferðarráðs 21. desember var lagt fram minnisblað þar sem lagt var til lLokað yfir miðjan daginnlHætta fyrir starfsfólk og gesti lBorgin ræður ekki við kostnaðinnlAukin ásókn karla Yfirfull neyðarskýli Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. Nýting rýma í neyðarskýlum fyrir karla og Konukoti árið 2022* Gistiskýlið Lindargötu Gistiskýlið Grandagarði Konukot** 160% 140% 120% 100% 80% 60% 40% 160% 140% 120% 100% 80% 60% 40% Heimild: Reykjavíkurborg *Til og með 19. des. 2022 **Jan.-nóv. 2022, tölur fyrir des. liggja ekki fyrir jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. Meðalnýting 2022: 108% Okt.-des. 2022: 116% Meðalnýting 2022: 129% Meðalnýting 2022: 86% Júlí.-nóv. 2022: 106% 121% 124% 147% 146% 117% 93% 90% 106% 117% Meðalnýting 2020: 56% Meðalnýting 2020: 62% Meðalnýting 2021: 68% Meðalnýting 2021: 76% Meðalnýting 2021: 97% Meðalnýting 2020: 76% Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lindargata Nýting hefur farið yfir 100% í níu mánuði af tólf á árinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.