Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 25

Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 25 Eftir tveggja ára hlé frá samkomuhaldi vegna kórónu- veirunnar hafa landsmenn tekið gleði sína á ný og komið saman við mann og annan. Börnin eru þar engin undantekning, en þau hafa fjölmennt á jólaböll í skólum sínum á aðventunni, dansað í kringum jólatréð, sungið jólalög og heilsað upp á jólasveinana. Jólasveinarnir sem birtast úr fylgsnum sínum til fjalla eru af öllum stærðum og gerðum. Sumir klæða sig enn upp á gamla mátann en aðrir mæta rauðklæddir. Allir eiga þeir þó sameiginlegt að vera fúlskeggj- aðir, enda ekki rakað sig um árhundruð, og hafa hátt. Annríkið er mikið þegar þeytast þarf á milli húsa alla aðventuna, koma fram á jóla- böllum og öðrum samkomum þar sem trallað er og sungið. Sveinkar snúa síðan heim í híði sín, til Grýlu og Leppalúða, og hvílast fram að næstu jólum. Jólunum fagnað án samkomubanns Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Húsavík Uppi á stól stendur mín kanna, syngja hér krakkar í Borgarhólsskóla þegar yngsta stigið hélt litlu jólin. Dansað var í kringum tréð með jólasveinum úr Dimmuborgum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þjóðminjasafnið Stekkjarstaur mætti fyrstur bræðra sinna á safnið og messaði yfir börnum úr Urriðaholtsskóla og frá leikskólunumKrikaskóla og Vesturborg. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Árbæjarsafn Jólasveinar sem létu sjá sig á safninu voru eðlilega vinsælt myndefni hjá krökk- unum og forráðamönnum þeirra. Lýstu sveinkarnir gömlu aðdáun sinni á símtækninni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Smáralind Tveir kátir sveinkar kíktu í verslunarmiðstöðina í vikunni og sprelluðu með krökkunum. Morgunblaðið/Árni Sæberg KópavogurHér reynir stirður Stekkjar- staur að klifra upp í ljósastaur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.