Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
25
Eftir tveggja ára hlé frá
samkomuhaldi vegna kórónu-
veirunnar hafa landsmenn tekið
gleði sína á ný og komið saman
við mann og annan. Börnin eru
þar engin undantekning, en
þau hafa fjölmennt á jólaböll
í skólum sínum á aðventunni,
dansað í kringum jólatréð,
sungið jólalög og heilsað upp á
jólasveinana.
Jólasveinarnir sem birtast
úr fylgsnum sínum til fjalla eru
af öllum stærðum og gerðum.
Sumir klæða sig enn upp á
gamla mátann en aðrir mæta
rauðklæddir. Allir eiga þeir þó
sameiginlegt að vera fúlskeggj-
aðir, enda ekki rakað sig um
árhundruð, og hafa hátt.
Annríkið er mikið þegar
þeytast þarf á milli húsa alla
aðventuna, koma fram á jóla-
böllum og öðrum samkomum
þar sem trallað er og sungið.
Sveinkar snúa síðan heim í híði
sín, til Grýlu og Leppalúða, og
hvílast fram að næstu jólum.
Jólunum fagnað án samkomubanns
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Uppi á stól stendur mín kanna, syngja hér krakkar í Borgarhólsskóla þegar yngsta
stigið hélt litlu jólin. Dansað var í kringum tréð með jólasveinum úr Dimmuborgum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjóðminjasafnið Stekkjarstaur mætti fyrstur bræðra sinna á safnið og messaði yfir börnum úr Urriðaholtsskóla og frá leikskólunumKrikaskóla og Vesturborg.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Árbæjarsafn Jólasveinar sem létu sjá sig á safninu voru eðlilega vinsælt myndefni hjá krökk-
unum og forráðamönnum þeirra. Lýstu sveinkarnir gömlu aðdáun sinni á símtækninni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Smáralind Tveir kátir sveinkar kíktu í verslunarmiðstöðina í vikunni og sprelluðu með krökkunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KópavogurHér reynir stirður Stekkjar-
staur að klifra upp í ljósastaur.