Morgunblaðið - 24.12.2022, Blaðsíða 34
Embætti eins varadómanda
við Endurupptökudóm
laust til umsóknar
Endurupptökudómur er sérdómstóll sem sker úr um hvort heimila skuli endurupptöku dómsmála
sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti. Dómsmálaráðherra skipar fimm dómendur
í Endurupptökudóm, þar af þrjá, ásamt jafnmörgum varamönnum, tilnefnda af hverju hinna þriggja
dómstiga. Embætti tveggja dómenda og jafnmargra varadómenda skulu auglýst og við veitingu þeirra gætt
ákvæða III. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016, og reglna um störf dómnefndar, nr. 970/2020. Dómendur
Endurupptökudóms fá greitt fyrir hvert mál sem þeir taka sæti í samkvæmt tímagjaldi sem ákveðið er af
stjórn dómstólasýslunnar.
Með vísan til framangreinds auglýsir dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti eins varadómanda við
Endurupptökudóm. Skipað verður í embættið til fimm ára frá 1. febrúar 2023 eða hið fyrsta eftir að dómnefnd
um hæfni umsækjenda um embætti dómara skilar ráðherra umsögn sinni.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 13. gr. laga nr. 50/2016, og koma úr röðum annarra en fyrrverandi
eða starfandi dómara eða núverandi starfsmanna dómstóla.
Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun
og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af
stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar
um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af
öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl.,
8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/
núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði
munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr.
970/2020 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli
skiptir fyrir störf dómanda við Endurupptökudóm.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega
fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í
málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda
sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum
umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn
sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem dómandi við Endurupptökudóm.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 9. janúar 2023. Til þess að hraða afgreiðslu
umsókna og bréfaskipta er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða
með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
23. desember 2022 Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Smáauglýsingar 569 1100 569 1100
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingar
Byggingafyrirtæki
getur bætt við sig verkum
Uppslátt á húsum og sökklum.
Þakendurbætur, tek niður
pantanir fyrir næsta ár 202 , geri
tilboð í verk.
Stálgrindarhús, geri tilboð, er í
samstarfi við innflutningsaðila.
Sumarhús, breytingar eða byggja
nýtt hús, geri tilboð.
Nánari upplýsingar , Bjössi
smiður á google, s 893-5374
nybyggd@gmail.com
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning 21x125mm, panill
10x85mm, pallaefni 21x145mm,
21x140, 90x21mm, útihurðir
5,4cmx210cm (80,90 og 100cm) o.fl.
Eurotec skrúfur, Penofin og Arms-
trong Clark harðviðarolíur.
NÝKOMIÐ BANKIRAI
HARÐVIÐUR 21X145MM VERÐ
1.950 KR LENGDARMETERINN
slétt beggja megin fasað og
ofnþurrkað. Lengdir frá 2.44 metrar
upp í 5,50 metrar.
Upplýsingar hjá Magnúsi á
magnus@vidur.is og í símum
6600230 og 5611122, og frá 10-14 á
Indus ,Óseyrarbraut 2 Hafnarfirði.
Húsviðhald
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
Vantar þig
rafvirkja?
FINNA.is
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022