Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 34

Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 34
Embætti eins varadómanda við Endurupptökudóm laust til umsóknar Endurupptökudómur er sérdómstóll sem sker úr um hvort heimila skuli endurupptöku dómsmála sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti. Dómsmálaráðherra skipar fimm dómendur í Endurupptökudóm, þar af þrjá, ásamt jafnmörgum varamönnum, tilnefnda af hverju hinna þriggja dómstiga. Embætti tveggja dómenda og jafnmargra varadómenda skulu auglýst og við veitingu þeirra gætt ákvæða III. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016, og reglna um störf dómnefndar, nr. 970/2020. Dómendur Endurupptökudóms fá greitt fyrir hvert mál sem þeir taka sæti í samkvæmt tímagjaldi sem ákveðið er af stjórn dómstólasýslunnar. Með vísan til framangreinds auglýsir dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti eins varadómanda við Endurupptökudóm. Skipað verður í embættið til fimm ára frá 1. febrúar 2023 eða hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara skilar ráðherra umsögn sinni. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 13. gr. laga nr. 50/2016, og koma úr röðum annarra en fyrrverandi eða starfandi dómara eða núverandi starfsmanna dómstóla. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/ núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 970/2020 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf dómanda við Endurupptökudóm. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem dómandi við Endurupptökudóm. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 9. janúar 2023. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskipta er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 23. desember 2022 Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Smáauglýsingar 569 1100 569 1100 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingar Byggingafyrirtæki getur bætt við sig verkum Uppslátt á húsum og sökklum. Þakendurbætur, tek niður pantanir fyrir næsta ár 202 , geri tilboð í verk. Stálgrindarhús, geri tilboð, er í samstarfi við innflutningsaðila. Sumarhús, breytingar eða byggja nýtt hús, geri tilboð. Nánari upplýsingar , Bjössi smiður á google, s 893-5374 nybyggd@gmail.com Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning 21x125mm, panill 10x85mm, pallaefni 21x145mm, 21x140, 90x21mm, útihurðir 5,4cmx210cm (80,90 og 100cm) o.fl. Eurotec skrúfur, Penofin og Arms- trong Clark harðviðarolíur. NÝKOMIÐ BANKIRAI HARÐVIÐUR 21X145MM VERÐ 1.950 KR LENGDARMETERINN slétt beggja megin fasað og ofnþurrkað. Lengdir frá 2.44 metrar upp í 5,50 metrar. Upplýsingar hjá Magnúsi á magnus@vidur.is og í símum 6600230 og 5611122, og frá 10-14 á Indus ,Óseyrarbraut 2 Hafnarfirði. Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 Vantar þig rafvirkja? FINNA.is 34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.