Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL36
Hágæða fóður
fyrir hunda og ketti
L i f and i v e r s lun
fy r i r ö l l gæ ludýr
Kauptúni 3, Garðabæ | Skeifan 9, Reykjavík | Sími 564 3364 | www.fisko.is
Opið virka daga 10-19, laugardag 10-18, sunnudag 12-18
100%
NÁTTÚRULEGAR
AFURÐIR
..kíktu í heimsókn
20%
FERSKT
KJÖT
Til hamingju með daginn
Stjörnuspá
Símon Páll Aðalsteinsson
Símon Páll Aðalsteinsson, eða Símon
í Bæ, verður áttræður á jóladag, 25.
desember. Hann er elstur þriggja
sona Sigurbjargar Pálsdóttur og
Aðalsteins Símonarsonar, sem lengst
af voru garðyrkjubændur á Laufskál-
um í Stafholtstungum. Símon ólst
þar upp en fór ungur í Borgarnes þar
sem hann lærði bifvélavirkjun á BTB
auk þess sem hann ók rútum um
tíma fyrir Sæmund Sigmundsson.
Símon giftist Þuríði Jóhannsdóttur
frá Akranesi árið 1965 og á með
henni fjögur börn og eru afkomendur
þeirra orðnir samtals 28.
Í byrjun árs 1970 fluttist Símon
með konu og þremur ungum börnum
upp í Bæjarsveit þar sem hann tók að
sér rekstur bíla- og búvélaverkstæðis
sem fékk nafnið Vélabær. Þar starf-
aði Símon langt fram á 10 áratuginn sem stjórnandi og afburða viðgerðar-
maður. Starfssvæði verkstæðisins var stórt og ferðaðist Símon m.a. vítt um
land að gera við hinar ýmsu vélar.
Árið 1997 fluttust Símon og Þurý í Borgarnes þar sem hann varð fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness. Þar gekk hann í öll verk og var ekki
síst fyrir hans dugnað og atorku að fljótlega var hafin vinna við að stækka
völlinn að Hamri í 18 holur og er hann í dag einn fallegasti völlur landsins.
Um 1990 greip Símon mikill áhugi á golfi og hefur það átt stóran hluta af
huga hans síðan. Hann hefur fengið allnokkrar viðurkenningar fyrir störf
sín að málefnum tengdum golfi, var t.d. sæmdur silfurmerki Golfsambands
Íslands á 60 ára afmæli sínu árið 2002. Þá var hann gerður að heiðurs-
félaga í Golfklúbbi Borgarness 2007 og árið 2009 fékk hann viðurkenningu
frá Borgarbyggð fyrir mikil og góð störf að félagsmálum og uppbyggingu
golfvallarins að Hamri.
Frá árinu 2008 má segja að Símon og Þurý hafi búið á Spáni, enda dvelja
þau nær alltaf vetrarlangt í húsi sínu í Orihuela nærri Torrevieja, en eru á
Íslandi á sumrin.
21. mars - 19. apríl A
Hrútur Safnaðu saman öllum bestu
hugmyndum þínum og æfðu sölukynningu
á þeim.Varastu samt að láta hugmynda-
flugið hlaupa með þig í gönur.
20. apríl - 20. maí B
Naut Varastu öll gylliboð, sem eiga að
færa þér hamingju og auðæfi í einu
vetfangi. Vertu opin/n fyrir tækifærunum í
kringum þig.
21. maí - 20. júní C
Tvíburar Það er ekki auðvelt að sýna sam-
starfsmönnum þolinmæði þessa dagana.
Hafðu í huga að þótt aðrir séu óánægðir
þarft þú ekki að vera það.
21. júní - 22. júlí D
Krabbi Íhugaðu hvar þú ert staddur í
lífinu og hversu vel þér gengur að uppfylla
andlegar og veraldlegar þarfir þínar. Gerðu
áætlun fyrir næsta ár.
23. júlí - 22. ágúst E
Ljón Þótt þér leiðist að fara ofan í
saumana á málum aftur og aftur er það
nauðsynlegt ef þú vilt hafa allt á hreinu.
Nú þarf heilsan að ganga fyrir öllu öðru.
23. ágúst - 22. september F
MeyjaAðrir ættu að fara að fordæmi þínu
því þú ert bæði hagsýnn og útsjónar-
samur. Ekki taka mikilvægar ákvarðanir
tengdar sameiginlegum eignum.
23. september - 22. október G
Vog Þú einblínir af þráhyggju á eitt
vandamál og það án þess að þreytast á
því. Skrifaðu lista og þú munt koma öllu á
honum í verk.
23. október - 21. nóvember H
Sporðdreki Vertu óhræddur við að gefa
ímyndunaraflinu lausan tauminn þótt
ekki væri nema bara þér til persónulegrar
ánægju. Njóttu skammdegisins.
22. nóvember - 21. desember I
Bogmaður Þér hefur tekist að koma góðu
skikki á þín mál og mátt því næðisins vel
njóta. Farðu með öllu að gát í akstri, göngu
eða hjólreiðum.
22. desember - 19. janúar J
Steingeit Þú þarft að hafa yfirsýn og þess
vegna er betra að þú látir aðra um einstök
atriði. Hvaðeina sem þú tekur þér fyrir
hendur verður ánægjulegt.
20. janúar - 18. febrúar K
VatnsberiMinniháttar árekstur getur leitt
til erfiðleika ef þú tekur ekki strax af skarið
og leysir málið. Það er ekki slæmt að
þarfnast smá meiri ástar en vanalega.
19. febrúar - 20. mars L
Fiskar Brýnustu verkefnin bíða þín nú
heima við. Sambönd þrífast þegar það
finnst ekki efi í hjartanu eða gagnrýni á
vörunum.
Erna Indriðadóttir fjölmiðlakona – 70 ára
Gæfa að fæðast undir jólastjörnu
E
rna Indriðadóttir er fædd
25. desember 1952 og verð-
ur því 70 ára á morgun,
jóladag. Hún fæddist á
Akureyri en ólst upp í
Laugarneshverfinu í Reykjavík hjá
móður sinni og uppeldisföður.
Erna gekk í Laugarnesskólann
og lauk stúdentsprófi frá MH árið
1972. Síðan lá leiðin í Háskólann í
Lundi í Svíþjóð þar sem hún lærði
samfélagsfræði og enn síðar tók hún
meistarapróf í opinberri stjórnsýslu í
Washington háskóla í Seattle.
Erna vann lengst af hjá Ríkisútvarp-
inu og var bæði fréttamaður í útvarpi
og sjónvarpi og einnig deildarstjóri
Ríkisútvarpsins á Akureyri um
skeið. Hún hætti þar þegar hún
var ráðin upplýsingafulltrúi Alcoa
Fjarðaáls þegar álverið á Reyðarfirði
var í byggingu og þar starfaði hún í
nokkur ár. „Það var mikið ævintýri að
taka þátt í uppbyggingu álversins á
Reyðarfirði. Það var á við háskólanám
í efnahags-, iðnaðar- og orkumálum.
Bygging álversins var umdeild, en
ánægja meðal heimamanna mikil,
enda sáu margir fram á betri tíð og
ungt fólk sem hafði flutt í burtu til
að stunda nám og sá ekki fram á að
geta snúið aftur heim, gat nú gert það
og fengið störf við hæfi, en í álverinu
voru þá yfir 100 manns með háskóla-
menntun.“
Erna stofnaði vefritið Lifðu núna,
sem fjallar um lífið eftir miðjan aldur,
árið 2014 og hefur unnið við það síðan.
„Ég stofnaði Lifðu núna eftir að ég
varð sextug. Mér fannst forvitnilegt að
fjalla um þetta aldursskeið á vefnum
því fjölmiðlar almennt gera ekki mikið
af því. Það helgast trúlega af því að
langflestir sem þar vinna eru tiltölu-
lega ungir. Ég hafði ekki mikinn áhuga
á lífi eldra fólks þegar ég var að byrja
í fréttamennskunni og skil þetta þess
vegna vel. En það er líf eftir sextugt og
það er alveg jafn fjölbreytt og lífið áður
en fólk verður sextugt og alveg jafn
mikil ástæða til að gera því skil, eins
og öðru efni fyrir fólk á ýmsum aldri.
Það hefur verið frábærlega skemmti-
legt að fjalla um þetta og líka þarft, því
eldra fólki á eftir að fjölga gríðarlega á
næstu áratugum.”
Erna hefur átt sæti í nokkrum
nefndum á vegum hins opinbera,
ýmist sem aðalmaður eða varamaður
og setið í stjórnum félagasamtaka, svo
semNáttúrulækningafélags Akureyr-
ar og Félags eldri borgara í Reykjavík.
„Ég átti stuttan og mjög farsælan
þingmannsferil þegar ég var vara-
þingmaður fyrir Samfylkinguna í
Norðurlandskjördæmi eystra, kjör-
tímabilið 2013-2016. En ég tók sæti á
Alþingi í eina viku, í fjarveru Kristjáns
Möllers alþingismanns. Það er með
því skemmtilegra sem ég hef gert um
dagana. Ég hef alltaf haft brennandi
áhuga á þjóðmálum og sagnfræði.“
Ernu finnst ferðalög sömuleiðis heill-
andi. „Sérstaklega til framandi landa
sem eru mjög frábrugðin því sem
maður á að venjast. Indland, Japan
ogMexikó koma upp í hugann. Það er
samt fátt sem jafnast á við íslensk fjöll
sem ég hef verið óþreytandi að klífa
síðustu áratugina. Mér finnst gaman
að taka ljósmyndir, hef yndi af lestri
góðra bóka, leiklist og kvikmyndum.
Það verður svo enn mikilvægara með
aldrinum að verja tíma með vinum og
vandamönnum og eru barnabörnin
þar í algerum sérflokki.
Jóladagur er býsna erfiður afmæl-
isdagur, ekki margir sem komast í
afmæli á þeim degi. En gömul kona
sem átti sama afmælisdag og ég sagði
Ljósmynd/Björg Vigfúsdóttir
Með barnabörnunumÁ fermingardag Evu. Aftari röð f.v.: Andrés, Pétur Goði, ErnaMaría, Eva, Erna og Þór.
Fremri röð f.v.: Valdimar Darri, Björk Elísabet, Fanný Hólmfríður og Elfar. Á myndina vantar Breka Þór og Ara.
Fjallaferð Erna og Guðný Gerður
Gunnarsdóttir á Heljardalsheiði.Afmælisbarnið Erna Indriðadóttir.