Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 DÆGRADVÖL36 Hágæða fóður fyrir hunda og ketti L i f and i v e r s lun fy r i r ö l l gæ ludýr Kauptúni 3, Garðabæ | Skeifan 9, Reykjavík | Sími 564 3364 | www.fisko.is Opið virka daga 10-19, laugardag 10-18, sunnudag 12-18 100% NÁTTÚRULEGAR AFURÐIR ..kíktu í heimsókn 20% FERSKT KJÖT Til hamingju með daginn Stjörnuspá Símon Páll Aðalsteinsson Símon Páll Aðalsteinsson, eða Símon í Bæ, verður áttræður á jóladag, 25. desember. Hann er elstur þriggja sona Sigurbjargar Pálsdóttur og Aðalsteins Símonarsonar, sem lengst af voru garðyrkjubændur á Laufskál- um í Stafholtstungum. Símon ólst þar upp en fór ungur í Borgarnes þar sem hann lærði bifvélavirkjun á BTB auk þess sem hann ók rútum um tíma fyrir Sæmund Sigmundsson. Símon giftist Þuríði Jóhannsdóttur frá Akranesi árið 1965 og á með henni fjögur börn og eru afkomendur þeirra orðnir samtals 28. Í byrjun árs 1970 fluttist Símon með konu og þremur ungum börnum upp í Bæjarsveit þar sem hann tók að sér rekstur bíla- og búvélaverkstæðis sem fékk nafnið Vélabær. Þar starf- aði Símon langt fram á 10 áratuginn sem stjórnandi og afburða viðgerðar- maður. Starfssvæði verkstæðisins var stórt og ferðaðist Símon m.a. vítt um land að gera við hinar ýmsu vélar. Árið 1997 fluttust Símon og Þurý í Borgarnes þar sem hann varð fram- kvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness. Þar gekk hann í öll verk og var ekki síst fyrir hans dugnað og atorku að fljótlega var hafin vinna við að stækka völlinn að Hamri í 18 holur og er hann í dag einn fallegasti völlur landsins. Um 1990 greip Símon mikill áhugi á golfi og hefur það átt stóran hluta af huga hans síðan. Hann hefur fengið allnokkrar viðurkenningar fyrir störf sín að málefnum tengdum golfi, var t.d. sæmdur silfurmerki Golfsambands Íslands á 60 ára afmæli sínu árið 2002. Þá var hann gerður að heiðurs- félaga í Golfklúbbi Borgarness 2007 og árið 2009 fékk hann viðurkenningu frá Borgarbyggð fyrir mikil og góð störf að félagsmálum og uppbyggingu golfvallarins að Hamri. Frá árinu 2008 má segja að Símon og Þurý hafi búið á Spáni, enda dvelja þau nær alltaf vetrarlangt í húsi sínu í Orihuela nærri Torrevieja, en eru á Íslandi á sumrin. 21. mars - 19. apríl A Hrútur Safnaðu saman öllum bestu hugmyndum þínum og æfðu sölukynningu á þeim.Varastu samt að láta hugmynda- flugið hlaupa með þig í gönur. 20. apríl - 20. maí B Naut Varastu öll gylliboð, sem eiga að færa þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi. Vertu opin/n fyrir tækifærunum í kringum þig. 21. maí - 20. júní C Tvíburar Það er ekki auðvelt að sýna sam- starfsmönnum þolinmæði þessa dagana. Hafðu í huga að þótt aðrir séu óánægðir þarft þú ekki að vera það. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Íhugaðu hvar þú ert staddur í lífinu og hversu vel þér gengur að uppfylla andlegar og veraldlegar þarfir þínar. Gerðu áætlun fyrir næsta ár. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Þótt þér leiðist að fara ofan í saumana á málum aftur og aftur er það nauðsynlegt ef þú vilt hafa allt á hreinu. Nú þarf heilsan að ganga fyrir öllu öðru. 23. ágúst - 22. september F MeyjaAðrir ættu að fara að fordæmi þínu því þú ert bæði hagsýnn og útsjónar- samur. Ekki taka mikilvægar ákvarðanir tengdar sameiginlegum eignum. 23. september - 22. október G Vog Þú einblínir af þráhyggju á eitt vandamál og það án þess að þreytast á því. Skrifaðu lista og þú munt koma öllu á honum í verk. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Vertu óhræddur við að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn þótt ekki væri nema bara þér til persónulegrar ánægju. Njóttu skammdegisins. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Þér hefur tekist að koma góðu skikki á þín mál og mátt því næðisins vel njóta. Farðu með öllu að gát í akstri, göngu eða hjólreiðum. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Þú þarft að hafa yfirsýn og þess vegna er betra að þú látir aðra um einstök atriði. Hvaðeina sem þú tekur þér fyrir hendur verður ánægjulegt. 20. janúar - 18. febrúar K VatnsberiMinniháttar árekstur getur leitt til erfiðleika ef þú tekur ekki strax af skarið og leysir málið. Það er ekki slæmt að þarfnast smá meiri ástar en vanalega. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Brýnustu verkefnin bíða þín nú heima við. Sambönd þrífast þegar það finnst ekki efi í hjartanu eða gagnrýni á vörunum. Erna Indriðadóttir fjölmiðlakona – 70 ára Gæfa að fæðast undir jólastjörnu E rna Indriðadóttir er fædd 25. desember 1952 og verð- ur því 70 ára á morgun, jóladag. Hún fæddist á Akureyri en ólst upp í Laugarneshverfinu í Reykjavík hjá móður sinni og uppeldisföður. Erna gekk í Laugarnesskólann og lauk stúdentsprófi frá MH árið 1972. Síðan lá leiðin í Háskólann í Lundi í Svíþjóð þar sem hún lærði samfélagsfræði og enn síðar tók hún meistarapróf í opinberri stjórnsýslu í Washington háskóla í Seattle. Erna vann lengst af hjá Ríkisútvarp- inu og var bæði fréttamaður í útvarpi og sjónvarpi og einnig deildarstjóri Ríkisútvarpsins á Akureyri um skeið. Hún hætti þar þegar hún var ráðin upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls þegar álverið á Reyðarfirði var í byggingu og þar starfaði hún í nokkur ár. „Það var mikið ævintýri að taka þátt í uppbyggingu álversins á Reyðarfirði. Það var á við háskólanám í efnahags-, iðnaðar- og orkumálum. Bygging álversins var umdeild, en ánægja meðal heimamanna mikil, enda sáu margir fram á betri tíð og ungt fólk sem hafði flutt í burtu til að stunda nám og sá ekki fram á að geta snúið aftur heim, gat nú gert það og fengið störf við hæfi, en í álverinu voru þá yfir 100 manns með háskóla- menntun.“ Erna stofnaði vefritið Lifðu núna, sem fjallar um lífið eftir miðjan aldur, árið 2014 og hefur unnið við það síðan. „Ég stofnaði Lifðu núna eftir að ég varð sextug. Mér fannst forvitnilegt að fjalla um þetta aldursskeið á vefnum því fjölmiðlar almennt gera ekki mikið af því. Það helgast trúlega af því að langflestir sem þar vinna eru tiltölu- lega ungir. Ég hafði ekki mikinn áhuga á lífi eldra fólks þegar ég var að byrja í fréttamennskunni og skil þetta þess vegna vel. En það er líf eftir sextugt og það er alveg jafn fjölbreytt og lífið áður en fólk verður sextugt og alveg jafn mikil ástæða til að gera því skil, eins og öðru efni fyrir fólk á ýmsum aldri. Það hefur verið frábærlega skemmti- legt að fjalla um þetta og líka þarft, því eldra fólki á eftir að fjölga gríðarlega á næstu áratugum.” Erna hefur átt sæti í nokkrum nefndum á vegum hins opinbera, ýmist sem aðalmaður eða varamaður og setið í stjórnum félagasamtaka, svo semNáttúrulækningafélags Akureyr- ar og Félags eldri borgara í Reykjavík. „Ég átti stuttan og mjög farsælan þingmannsferil þegar ég var vara- þingmaður fyrir Samfylkinguna í Norðurlandskjördæmi eystra, kjör- tímabilið 2013-2016. En ég tók sæti á Alþingi í eina viku, í fjarveru Kristjáns Möllers alþingismanns. Það er með því skemmtilegra sem ég hef gert um dagana. Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á þjóðmálum og sagnfræði.“ Ernu finnst ferðalög sömuleiðis heill- andi. „Sérstaklega til framandi landa sem eru mjög frábrugðin því sem maður á að venjast. Indland, Japan ogMexikó koma upp í hugann. Það er samt fátt sem jafnast á við íslensk fjöll sem ég hef verið óþreytandi að klífa síðustu áratugina. Mér finnst gaman að taka ljósmyndir, hef yndi af lestri góðra bóka, leiklist og kvikmyndum. Það verður svo enn mikilvægara með aldrinum að verja tíma með vinum og vandamönnum og eru barnabörnin þar í algerum sérflokki. Jóladagur er býsna erfiður afmæl- isdagur, ekki margir sem komast í afmæli á þeim degi. En gömul kona sem átti sama afmælisdag og ég sagði Ljósmynd/Björg Vigfúsdóttir Með barnabörnunumÁ fermingardag Evu. Aftari röð f.v.: Andrés, Pétur Goði, ErnaMaría, Eva, Erna og Þór. Fremri röð f.v.: Valdimar Darri, Björk Elísabet, Fanný Hólmfríður og Elfar. Á myndina vantar Breka Þór og Ara. Fjallaferð Erna og Guðný Gerður Gunnarsdóttir á Heljardalsheiði.Afmælisbarnið Erna Indriðadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.