Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 41

Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO KOMIN Í BÍÓ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI N Ý T T ÆV IN T Ý R I Ú R HE IM INUM FRUMSÝND 26. DESEMBER 71% REEL VIEWS EMPIRE AV CLUBNEW york post indie wire entertainmentweekly the atlantic chicaco sun-times the playlist Þeir Björgvin og Bjóla eru báðir goðsagn- ir en ég ætla ekki að fara sérstaklega í reifun á því hér. Það liggur allt saman fyrir og hægt að fletta því upp á alnetinu. Mig langar frekar til að einbeita mér að þessu verki hér, fjalla um það sem er hér og nú. „Andartak- ið er æði“ eins og ég segi í fyrirsögn og hún er jafnframt vísun í upphafslag plötunnar. Jarðarbunga er til á vínil, í 300 eintökum, og ekkert liggur fyrir enn um stafrænan veruleika. Platan er listaverk, að utan sem innan. Vínillinn er kjörgripur í forláta opnanlegu umslagi. Áferð umslags gróf og góð, plötumiðar flottir og allt upp í topp. Spilarar eru heldur ekki af verri endan- um; Ásgeir Óskars, Halli Þorsteins, Tómas Jónsson, Pétur Hjaltested og Jens Hansson. Söngvarar Einar Örn Benedikts- son, Mugison og Bryndís Jakobsdóttir ásamt höfundum. Vindum okkur nú í plötuna. Hvað er í gangi? Hvernig er þetta? Báðir höfundar sitja nefnilega þægilega utangarðs getum við sagt. Sigurður Bjóla er höfundur nokkurra fallegustu en um leið undirfurðulegustu dægurlaga Íslandssögunnar og Björgvin Gíslason er gítarhetja frá sjöunda og áttunda áratugnum en losaði sig við hippíska drauga á níunda áratugnum á nokkuð naskan hátt. Lék t.d. á gítar í Friðryk sem átti hið dá- samlega pönkaða lag „Í kirkju“ og svo umfaðm- aði hann nýbylgjuna á sólóplötunum Glettum (1981) og Örugglega (1983) og þá sérstaklega á þeirri síðastnefndu. Þreifingar tónlistarmanna sem voru guðir á meðal manna á áttunda ára- tugnum í nýjum veruleika sem við blasti í upp- hafi þess níunda hafa verið skjalfestar nokkuð rækilega og flestir féllu á milli þilja, hér heima sem erlendis. Þursum reiddi hins vegar sérstak- lega vel af hér á landi elds og ísa og Björgvini sömuleiðis. Og Bjólan gerði sömuleiðis gott mót, þó að hann hyrfi nánast alfarið af radarnum lengi, lengi, varð hálfgerður Syd Barrett Íslands. En nóg um það! Jarðarbunga er, í ljósi þessa, ekki verk sem horfir til baka. Þetta er „ný“ tónlist, hvar glögglega má heyra höfundarein- kenni beggja. Sjá téð upphafslag. Skringilegar gítarlykkjur og -riff opna lagið og um miðbikið kemur sjálfur Einar Örn Benediktsson með „æsilegt“ innslag og lagið umverpist í hálfgert síðpönk. Grimm keyrsla og afdráttarlaus. Næsta lag, „engilbert M“, er í hefðbundnari blústakti … en samt. Það leynast furður í hverju stefi, hverjum kafla. Mugison sjálfur syngur og gefur laginu vigt, er kominn inn á Mugiboogie-lendur. Gestagangur er allnokkur á hlið A, Bryndís Jak- obsdóttir syngur „vatN“ dulúðlega og hliðinni er lokað með hinu skringilega en mjög svo andríka „á klapparnöf“. Bryndís snýr aftur til að syngja titillagið sem leiðir okkur inn í hlið B. Enn og aftur knýja þeir félagar fram magnað andrúmsloft og stemningu. Lagið er langt, sex mínútur, og leiðist út í nokkurs konar súrkálsrokksorgíu („kraut-rock“), stefnu sem þeir félagar ættu að kannast við (Can, NEU! og það allt). „Blæs í lúður efinn“ er Bjólulegt, sýrt nokkuð og lagt þessum einstaka galdri sem einkennir þessi ballöðukenndu draumalög hans, hvar stemning skiptir meira máli en einhver hljómasamsetning. Hrein og óræð fegurð sem sker í gegnum allt (sjá t.d. titillag Sumars á Sýrlandi, „Á fleytifullu tungli“, „Dagur ei meir“ o.fl.). Platan endar með „hvað varð um hann?“, þar sem sérstæðar söngraddir þeirra beggja bítast um pláss innan um dásamlega „björgvinsk“ gítarstef og annan yndis-óskunda. Semsagt: vel heppnað verk tveggja skapandi tónlistarmanna sem mætti heyrast meira í og af. En það væri samt á einhvern hátt stílbrot. Nánari upplýsingar eru á www.jardarbunga.is. Andartakið er æði Sigurður Bjóla er höfund- ur nokkurra fallegustu en um leið undirfurðulegustu dægurlaga Íslandssögunnar og Björgvin Gíslason er gítarhetja frá sjöunda og áttunda áratugn- um en losaði sig við hippíska drauga á níunda áratugnum á nokkuð naskan hátt. Félagarnir Björgvin Gísla- son og Sigurður Bjóla gáfu út plötuna Jarðarbungu í sameiningu í ár. Hér verður djúprýnt í tónlistina sem þar er að finna. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Félagar Tónlistarmennirnir Björgvin Gíslason og Sigurður Bjóla standa að plötunni Jarðarbungu. Bandaríska leikkonan Jane Fonda hefur á undanförnum árum komið sér upp afar góðu safni af myndlist einfara í banda- rískri myndlist, svokallaðra naívista, einkum hörundsdökkra listamanna frá suðurríkjun- um. Greint er frá því í The Art Newspaper að í næsta mánuði verði stór hluti safnsins seldur á uppboði. Fonda varð 85 ára á mið- vikudaginn var og greindi þá frá því að eitlakrabbamein sem hún hefur glímt við væri í rénun. Meðal verkanna sem Fonda selur eru 14 myndverk eftir bræðurna Thornton og Arthur Dial, og Thornton Dial yngri. Fonda hefur safnað verkum eftir þá í meira en tvo áratugi og er verðmæti stakra verka metið á frá 2.000 til 100.000 dali, eða allt að 14 milljónir króna. Fonda hefur sagst telja þá Dial-frændur meðal stórmeistara bandarískrar myndlistar. Hún hefur einnig safnað mörgum landslagsverkum eftir konur en meðal annarra ein- fara sem hún á safn myndverka eftir má nefna Mary L. Proctor, Purvis Young og Ronald Lockett en verk þeirra allra hafa notið sífellt meiri athygli á undanförn- um árum. lJane Fonda safnar listaverkum AFP/Jim Watson Leikkonan Jane Fonda safnar verk- um sjálfmenntaðra listamanna. Selur úr safninu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.