Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 42
MENNING42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
Jülevenner Emmsjé Gauta á líflegum viðburðum í Háskólabíói
Emmsjé Gauti
stóð síðustu daga
fyrir nokkum fjörugum
aðventuviðburðum í
Háskólabíói og kallaði
þá Jülevenner Emm-
sjé Gauta 2022. Ásamt
Gauta komu meðal
annars fram Ragga
Gísla, Club Dub, Saga
Garðars og Úlfur Úlfur.
Þá var inn-á-leiðarinn
Emil Alfreð á sínum
stað með rapparanum
vinsæla.
Gestafjöld Gauti fékk kollega úr rappheimum með sér á svið að skemmta.
Í stemningu Berglind Ingólfsdóttir og Hreggviður Ársælsson.
Lukkulegar Meðal gesta á tónleikum Gauta á fimmtudag voru þær Gunn-
hildur Hjörleifsdóttir, Dagrún Lóa Einarsdóttir og Sólveig Hjörleifsdóttir.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Ljósadýrð Emmsjé Gauti var jólalegur í rauðri skikkju og vel studdur á sviðinu af öflugri hljómsveit.
A
vatar: Vegur vatnsins
eftir leikstjórann James
Cameron er framhalds-
mynd Avatars sem kom
út árið 2009 og hafa því aðdáendur
þurft að bíða í 13 ár. En fljótlega
eftir að Avatar setti met í sölu
seldra miða greindi Cameron frá
því að framhald væri í vændum
og að Avatar 2 ætti að frumsýna
árið 2014 og Avatar 3 ári síðar en
það varð ekki raunin. Það er ekki
annað hægt að segja en aðdáenda-
hópurinn sé þolinmóður en það
er rýnir ekki, hvorki þolinmóður
né mikill aðdáandi. Satt að segja
á rýnir erfitt með að skilja þessa
rosalegu aðdáun á þessum stóru
strumpum, en getur þó ekki neitað
því að myndirnar eru tæknilegt
afrek.
Þegar fyrsta Avatar-myndin
kom út var hún brautryðjandi
fyrir tæknibrellur og hlaut teymið
Óskarinn árið 2010 fyrir bestu
tæknibrellurnar en þau verðlaun
voru vel verðskulduð. Margar kvik-
myndir sem koma út í dag, eins
og t.d. Marvel-myndirnar, komast
ekki með tærnar þar sem Avatar
hefur hælana tæknilega.
Aðalatriðið er hins vegar ekki að
sýna fram á kraft CGI eða tækni-
brellna heldur sýna áhorfendum
eitthvað sem er alltof raunverulegt
í okkar heimi. Manneskjurnar í
Avatar-heiminum virtust flestar
geta réttlætt það fyrir sér að
þvinga fram endurstaðsetningu
eða eyðileggingu þessara bláu
skepna til að afla sér auðs. Til
að rökstyðja þessa ómannúð-
legu meðferð merkja þeir bláu
verurnar sem „villimenn“. Fyrsta
Avatar-myndin hefur verið túlkuð
sem endursögn á sögu Norð-
ur- og Suður-Ameríku í upphafi
nýlendutímans og blóðsúthell-
ingum á frumbyggjum. Aðrir
halda því fram að sú mynd fjalli í
raun um Víetnamstríðið en hún
er greinileg ádeila á hið kapítal-
íska samfélag þar sem peningar
hefa fengið meira vægi en allt
líf á jörðu. Avatar: Vegur vatns-
ins heldur sig við sama þema. Í
raun er myndin frekar svipuð
fyrri myndinni; niðurdrepandi
áminning um græðgi mannver-
unnar nema í þetta sinn þurfa
bláu aðalpersónurnar að læra að
synda. Í Avatar: Vegur vatnsins
fylgjum við hjónunum Jake Sully
(Sam Worthington) og Neytiri
(Zoe Saldana) og börnum þeirra
fjórum. Fjölskyldan neyðist til þess
að flýja heimili sitt þegar ofurstinn
Miles Quaritch (Stephen Lang) er
endurlífgaður og eltir þau uppi.
Þau finna griðastað hjá ættbálk-
inum Metkayina en sá hópur lifir
með vatninu og býr yfir sérstökum
tengslum við íbúa þess eins og
hvali. Kvikmyndin er greinileg
gagnrýni á ofveiði í sjónum og þá
sérstaklega hvalveiði. Einnig kem-
ur fram að ágangur manneskjunn-
ar á jörðinni hefur verið svo mikill
að íbúar hennar stefna að því að
gera plánetuna Pandoru að næsta
heimili sínu. Fórnarlömb þessarar
myndar eru því ekki einungis bláu
verurnar eða frumbyggjar heldur
náttúran, en illmennið er það
sama; mannkynið. Leikarahópur-
inn stendur sig og skilar sögunni
ágætlega.
Yfirleitt eru kvikmyndir sýndar
á 24 römmum á sekúndu. Þegar
Hobbitinn (2012) var frumsýndur
reyndi leikstjórinn Peter Jackson
að breyta viðminu í 48 ramma á
sekúndu þar sem hann hélt því
fram að það væri nær því hvernig
við sjáum heiminn. Það festist ekki
þar sem myndir eru enn sýndar í
24 römmum. Árið 2019 reyndi Ang
Lee að gera svipað með Gemini
Man (2019) sem var sýnd í 120
römmum á sekúndu.
James Cameron ákvað að sýna
Avatar: Vegur vatnsins í bæði 24
og 48 römmum. Þar fellur hann
í gryfju. Þar sem staðallinn er
24 rammar á sekúndu tekur það
smá tíma að venjast því að horfa
á mynd í 48 römmum. Það að
klippa á milli atriða og stundum
milli skota sem sýna mismunandi
fjölda ramma á sekúndu getur
verið ruglandi og tekur mann
út úr myndinni. Þegar myndin
er sýnd í 48 römmum líkist hún
einnig tölvuleik, sem getur virkað
fráhrindandi.
Í stórsmellinum Avatar: Vegur
vatnsins er nýjasta og merkilegasta
kvikmyndatækni samtímans notuð
til að sýna hvernig græðgi manns-
ins hefur náð svo langt að hún er
tortímandi og á meðan halar kvik-
myndin inn gríðarlega peninga.
Það borgar sig greinilega að segja
áhorfendum hvað þeir eru að gera
í óþökk náttúrunnar með því að
fela það í yfirgengilegum tækni-
brellum, búningum, tónlist o.s.frv.;
því meiri skynveisla, því betra.
Skynveisluna mun rýnir hins vegar
ekki hafa þolinmæði til að horfa
aftur á enda myndin rúmar þrjár
klukkustundir. Þótt rýnir sé ekki
heillaður verða aðdáendur mynd-
anna ekki fyrir vonbrigðum, þetta
er ekta James Cameron-mynd.
Niðurdrepandi skynveisla
KVIKMYNDIR
JÓNAGRÉTA
HILMARSDÓTTIR
Laugarásbíó, Smárabíó,
Háskólabíó og Sambíóin
Avatar: The Way of Water / Avatar:
Vegur vatnsins
Leikstjórn: James Cameron. Handrit:
James Cameron, Rick Jaffa og Amanda
Silver. Aðalleikarar: SamWorthington,
Zoe Saldana, SigourneyWeaver, Kate
Winslet, Stephen Lang, Cliff Curtis,
Jamie Flatters, Britain Dalton, Trinity
Jo-Li Bliss og Jack Champion. Banda-
ríkin, 2022. 192 mín.
Ekta „Þótt rýnir sé ekki heillaður verða aðdáendur myndanna ekki fyrir vonbrigðum, þetta er ekta James
Cameron-mynd,“ segir í rýni um Avatar: Vegur vatnsins, nýjustu kvikmynd leikstjórans.