Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 42

Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 42
MENNING42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 Jülevenner Emmsjé Gauta á líflegum viðburðum í Háskólabíói Emmsjé Gauti stóð síðustu daga fyrir nokkum fjörugum aðventuviðburðum í Háskólabíói og kallaði þá Jülevenner Emm- sjé Gauta 2022. Ásamt Gauta komu meðal annars fram Ragga Gísla, Club Dub, Saga Garðars og Úlfur Úlfur. Þá var inn-á-leiðarinn Emil Alfreð á sínum stað með rapparanum vinsæla. Gestafjöld Gauti fékk kollega úr rappheimum með sér á svið að skemmta. Í stemningu Berglind Ingólfsdóttir og Hreggviður Ársælsson. Lukkulegar Meðal gesta á tónleikum Gauta á fimmtudag voru þær Gunn- hildur Hjörleifsdóttir, Dagrún Lóa Einarsdóttir og Sólveig Hjörleifsdóttir. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ljósadýrð Emmsjé Gauti var jólalegur í rauðri skikkju og vel studdur á sviðinu af öflugri hljómsveit. A vatar: Vegur vatnsins eftir leikstjórann James Cameron er framhalds- mynd Avatars sem kom út árið 2009 og hafa því aðdáendur þurft að bíða í 13 ár. En fljótlega eftir að Avatar setti met í sölu seldra miða greindi Cameron frá því að framhald væri í vændum og að Avatar 2 ætti að frumsýna árið 2014 og Avatar 3 ári síðar en það varð ekki raunin. Það er ekki annað hægt að segja en aðdáenda- hópurinn sé þolinmóður en það er rýnir ekki, hvorki þolinmóður né mikill aðdáandi. Satt að segja á rýnir erfitt með að skilja þessa rosalegu aðdáun á þessum stóru strumpum, en getur þó ekki neitað því að myndirnar eru tæknilegt afrek. Þegar fyrsta Avatar-myndin kom út var hún brautryðjandi fyrir tæknibrellur og hlaut teymið Óskarinn árið 2010 fyrir bestu tæknibrellurnar en þau verðlaun voru vel verðskulduð. Margar kvik- myndir sem koma út í dag, eins og t.d. Marvel-myndirnar, komast ekki með tærnar þar sem Avatar hefur hælana tæknilega. Aðalatriðið er hins vegar ekki að sýna fram á kraft CGI eða tækni- brellna heldur sýna áhorfendum eitthvað sem er alltof raunverulegt í okkar heimi. Manneskjurnar í Avatar-heiminum virtust flestar geta réttlætt það fyrir sér að þvinga fram endurstaðsetningu eða eyðileggingu þessara bláu skepna til að afla sér auðs. Til að rökstyðja þessa ómannúð- legu meðferð merkja þeir bláu verurnar sem „villimenn“. Fyrsta Avatar-myndin hefur verið túlkuð sem endursögn á sögu Norð- ur- og Suður-Ameríku í upphafi nýlendutímans og blóðsúthell- ingum á frumbyggjum. Aðrir halda því fram að sú mynd fjalli í raun um Víetnamstríðið en hún er greinileg ádeila á hið kapítal- íska samfélag þar sem peningar hefa fengið meira vægi en allt líf á jörðu. Avatar: Vegur vatns- ins heldur sig við sama þema. Í raun er myndin frekar svipuð fyrri myndinni; niðurdrepandi áminning um græðgi mannver- unnar nema í þetta sinn þurfa bláu aðalpersónurnar að læra að synda. Í Avatar: Vegur vatnsins fylgjum við hjónunum Jake Sully (Sam Worthington) og Neytiri (Zoe Saldana) og börnum þeirra fjórum. Fjölskyldan neyðist til þess að flýja heimili sitt þegar ofurstinn Miles Quaritch (Stephen Lang) er endurlífgaður og eltir þau uppi. Þau finna griðastað hjá ættbálk- inum Metkayina en sá hópur lifir með vatninu og býr yfir sérstökum tengslum við íbúa þess eins og hvali. Kvikmyndin er greinileg gagnrýni á ofveiði í sjónum og þá sérstaklega hvalveiði. Einnig kem- ur fram að ágangur manneskjunn- ar á jörðinni hefur verið svo mikill að íbúar hennar stefna að því að gera plánetuna Pandoru að næsta heimili sínu. Fórnarlömb þessarar myndar eru því ekki einungis bláu verurnar eða frumbyggjar heldur náttúran, en illmennið er það sama; mannkynið. Leikarahópur- inn stendur sig og skilar sögunni ágætlega. Yfirleitt eru kvikmyndir sýndar á 24 römmum á sekúndu. Þegar Hobbitinn (2012) var frumsýndur reyndi leikstjórinn Peter Jackson að breyta viðminu í 48 ramma á sekúndu þar sem hann hélt því fram að það væri nær því hvernig við sjáum heiminn. Það festist ekki þar sem myndir eru enn sýndar í 24 römmum. Árið 2019 reyndi Ang Lee að gera svipað með Gemini Man (2019) sem var sýnd í 120 römmum á sekúndu. James Cameron ákvað að sýna Avatar: Vegur vatnsins í bæði 24 og 48 römmum. Þar fellur hann í gryfju. Þar sem staðallinn er 24 rammar á sekúndu tekur það smá tíma að venjast því að horfa á mynd í 48 römmum. Það að klippa á milli atriða og stundum milli skota sem sýna mismunandi fjölda ramma á sekúndu getur verið ruglandi og tekur mann út úr myndinni. Þegar myndin er sýnd í 48 römmum líkist hún einnig tölvuleik, sem getur virkað fráhrindandi. Í stórsmellinum Avatar: Vegur vatnsins er nýjasta og merkilegasta kvikmyndatækni samtímans notuð til að sýna hvernig græðgi manns- ins hefur náð svo langt að hún er tortímandi og á meðan halar kvik- myndin inn gríðarlega peninga. Það borgar sig greinilega að segja áhorfendum hvað þeir eru að gera í óþökk náttúrunnar með því að fela það í yfirgengilegum tækni- brellum, búningum, tónlist o.s.frv.; því meiri skynveisla, því betra. Skynveisluna mun rýnir hins vegar ekki hafa þolinmæði til að horfa aftur á enda myndin rúmar þrjár klukkustundir. Þótt rýnir sé ekki heillaður verða aðdáendur mynd- anna ekki fyrir vonbrigðum, þetta er ekta James Cameron-mynd. Niðurdrepandi skynveisla KVIKMYNDIR JÓNAGRÉTA HILMARSDÓTTIR Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó og Sambíóin Avatar: The Way of Water / Avatar: Vegur vatnsins Leikstjórn: James Cameron. Handrit: James Cameron, Rick Jaffa og Amanda Silver. Aðalleikarar: SamWorthington, Zoe Saldana, SigourneyWeaver, Kate Winslet, Stephen Lang, Cliff Curtis, Jamie Flatters, Britain Dalton, Trinity Jo-Li Bliss og Jack Champion. Banda- ríkin, 2022. 192 mín. Ekta „Þótt rýnir sé ekki heillaður verða aðdáendur myndanna ekki fyrir vonbrigðum, þetta er ekta James Cameron-mynd,“ segir í rýni um Avatar: Vegur vatnsins, nýjustu kvikmynd leikstjórans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.