Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 44

Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 44
MENNING44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 S krímslin vakna eftir Evu Rún Þorgeirsdóttur er fantasía fyrir börn og ungmenni sem gerist í framtíðinni, eða árið 2222, en ýmsar breytingar hafa orðið á samfélaginu á þeim tíma sökum hamfarahlýnunar. Lítið er eftir af náttúrunni eins og við þekkjum hana í dag, nema á afmörkuðum svæðum þar sem hún er ræktuð sérstaklega. Nánast engin dýr lifa villt heldur aðeins í dýragörðum mannanna og ekkert nýtt er framleitt, allt er endurunnið. Kötu, aðalsögu- hetjunni, finnst gaman að lesa sögubækur og frásagnir um hvernig lífið var í fortíðinni, okk- ar nútíð, þar sem náttúran þreifst og hlutum var hent og nýtt búið til ef eitthvað vantaði. Árið 2022 er sjórinn aftur á móti orðinn of mengaður af plasti til að hægt sé að synda í honum og ál, sem eitt sinn var bara í dósum sem við hentum í ruslið, er orðinn einn verðmætasti málmur jarðar. Í upphafi sögunnar býr Kata hjá hinum illa Grími, en móðir hennar dó við barnsburð og faðir hennar hvarf við undarlegar aðstæður þegar hún var fimm ára. Grímur, sem jafnframt er forstjóri hinna svokölluðu Hauga þar sem allt er endurunnið og mikið er af verðmætum málmum, er hræði- legur fósturpabbi og tók Kötu raunar bara að sér í þeim tilgangi að líta betur út í samfélaginu. Kata þráir því ekkert heitar en að flýja að heiman – nokkuð sem hún hefur raunar verið að undirbúa í lengri tíma. En þegar Kata rekst á undarlega litla veru í Haugunum breytist allt. Skrímslin vakna er stórgóð barnabók. Þegar um er að ræða ónáttúrulega frásögn, eða fantasíur líkt og í þessari bók, þarf sögu- heimurinn að vera sannfærandi svo að lesandinn samþykki hann. Ekki verður annað sagt en Evu Rún tak- ist það ætlunarverk sitt. En þessi fantasíuheimur er raunar ekki svo fjarlægur okkur og í raun hægt að tala um Skrímslin vakna sem dystópískt verk – frásögn af heimi framtíðinnar sem er ekki ákjós- anlegur. Sagan er kannski bara lýsing á því hvernig jörðin okkar verður ef við förum ekki að grípa til stórtækra ráða til að sporna við hlýnuninni sem þegar hefur átt sér stað, en í henni er dregin upp mynd af heimi þar sem ríkir gríðarlegt ójafnrétti og vesæld. Þessu stóra viðfangsefni, hamfarahlýnun, eru gerð listileg skil í umbúðum fantasíunnar og getur því orkað líkt og gluggi fyrir börn til að sjá inn í framtíðina sem bíður þeirra, barna þeirra, og jafnvel barnabarna. Því miður eru teikningarnar í bókinni og umbrotið að mati gagnrýn- anda ekki nægilega skemmtilegar til að halda í við áhugaverðan söguþráðinn. Teikningarnar eru frekar dimmar og drungalegar, og skila sér ekki sem merkingarauki við sterka frásögnina af þessari vonlausu framtíð. Það virkar meira á gagnrýnanda eins og hönnuðir myndanna og kápunnar hafi tekið höndum saman um að nota bara gráa og jarðartóna, í stað þess að huga betur að smáatriðum í teikningum og litavali. Þetta er að mati gagnrýnanda miður þar sem umbrot bóka, teikningarnar og litirnir eru oft einmitt það sem nær athygli barna og ungmenna í upphafi. Letrið er þó í fínni stærð og kaflaskiptingin góð fyrir unga lesendur. Kápur hjá Bókabeitunni eru oft spennandi og litríkar þó að þessi virki ekki sem skyldi en þeim ber að hrósa fyrir að hafa verið mjög öflug í útgáfu barnabóka hérlend- is. En söguþráður bókarinnar Skrímslin vakna ætti ekki að valda neinum vonbrigðum, svo mikið er víst. Hvaða skrímsli vaknar? BÆKUR INGIBJÖRG IÐA AUÐUNARDÓTTIR Barnabók Skrímslin vakna Eftir Evu Rún Þorgeirsdóttur. Bókabeitan 2022. Innbundin, 168 bls Eva Rún „Skrímslin vakna er stórgóð barnabók“ að sögn rýnis. Nazca-línurnar eru víðfrægar, teikningar af alls kyns flennistór- um dýrum og mörg hundruð metra löngum línum sem þjóð sem bjó á því þurra landsvæði í sunnanverðri Perú sem kallast Nazca mótaði í eyðimörkinni fyrir 1.800 til 2.500 árum. Teikningarnar voru endurupp- götvaðar fyrir tæpri öld og hafa verið mikið rannsakaðar og rýnt í sögu þeirra og form, með alls kyns tilgátum um tilganginn. Myndirnar voru gerðar með því að fjarlægja hrjúft efsta lagið og þá blasir við ljósara undirlag. Þótt nýjar myndir og línur hafi af og til fundist var lengi talið að myndirnar væru innan við 200. Það hefur breyst á síð- ustu árum því vísindamenn frá Yamagata-háskólanum í Japan hafa myndað svæðið ítarlega með flygildum og beitt gervigreind á myndirnar. Með þeirri aðferð hafa þeir nú fundið og kynnt 168 nýjar myndir, af rottum, slöngum og alls kyns öðrum verum, sem eru frá um tveimur metrum á stærð upp í fleiri tugi metra. Fjöldi mynda finnst í eyðimörkinni í Nazca Ljósmynd/Yamagata-háskóli Furðuverur Tvíhöfða slanga í eyðimörkinni er um 20metrar á lengd. Sara á stuttlista til Óskarsverðlauna Leikstjórinn Sara Gunnarsdóttir er á svokölluð- um stuttlista til Óskarsverðlauna í flokki stuttra teiknaðra kvikmynda, fyrir My Year of Dicks sem hún gerði ásamt handritshöfundinum Pamelu Ribon. Sara er þriðja íslenska konan sem er á stuttlista til Óskarsverðlauna í ár, ásamt Hildi Guðnadóttur tónskáldi sem er tilnefnd fyrir tónlistina í Women Talking og Hebu Þórisdóttur förðunarmeistara sem er tilnefnd fyrir vinnu sína við kvikmyndina Babylon. Sara lauk BA-námi við Listaháskóla Íslands og er meðMFA-gráðu í tilraunakenndri kvikun (e. experimental animation) frá CalArts í Kaliforníu. Lokaverkefni hennar þar í námi var tilnefnt fyrir 13 árum til sérstakra Óskarsverðlauna nemenda. Sara hefur síðan starfað vestanhafs og My Year of Dicks hefur unnið til verðlauna á kvikmyndahátíðum. Sara Gunnarsdóttir Margir eru ósáttir við afrakstur þriggja ára viðgerðar forvarða á einu dáðasta málverkinu í þjóðarlistasafni Breta, National Gallery í London. Ítalski meistar- inn Piero della Francesca málaði verkið árið 1475 en það sýnir hvar fæðingu Jesú er fagnað. Verkið var afar illa farið strax þegar National Gallery keypti það árið 1874; forsætisráðherrann á þeim tíma, Benjamin Disraeli, þurfti að verja kaupin í þinginu þar sem ástandið á dýru málverkinu var þá þegar það slæmt. Lagfæringar fyrri alda höfðu leikið það illa og stórar skellur af málningu fallið af. Verst voru myndir af tveimur fjárhirðum aftan við Maríu mey leiknar og þurftu forverðirnir nú að reyna að bjarga og endurgera þann hluta. Kunnur gagnrýnandi The Guardian, Jonathan Jones, er afar ósáttur við árangurinn, segir safnið hafa „eyðilagt jólin“ með endurgerð fjárhirðanna sem sé „klunnaleg“ og „hlægileg“. Forverðirnir þurftu að mála höfuð fjárhirðanna nánast frá grunni en gátu byggt á sýni- legri undirteikningu Pieros. Fjárhirðarnir voru upphaflega brúnleitari en aðrar persónur í verkinu en deilt er á að þeir séu nú nánast appelsínugulir og eins og aðskotahlutir á myndfletinum. Deilt um afrakstur við- gerðar dáðs málverks Ljósmynd/National Gallery, London Misheppnað?Hluti málverks Pieros della Francesca frá árinu 1874. For- verðir unnu að viðgerð í þrjú ár, einkum þó endurgerð fjárhirðanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.