Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 45

Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 Í nóvember gaf tónlistarkon- an Guðlaug Sóley út aðra breiðskífu sína, 12:48, undir nafninu Gugusar. Guðlaug hóf tónlistarferil sinn 15 ára gömul þegar hún tók þátt í Músíktilraun- um árið 2019 þar sem hún var krýnd rafheili keppninnar. Fyrsta breiðskífa hennar kom svo út ári síðar og bar nafnið Listen to this twice. Ég sá Guð- laugu fyrst koma fram sem Gugusar þegar við deildum sviði í opnunarpartíi tónlistarmið- stöðvar Stelpur rokka í janúar 2020. Síðan þá hef ég fylgst með henni springa út og eftir að hafa hlustað á nýjustu verk þessarar mögnuðu tónlistarkonu get ég ekki annað en fengið stjörnur í augun og er full tilhlökkunar að sjá hvað framtíð hennar ber í skauti. 12:48 er rúmur hálftími af rafrænum draumi þar sem vindhviður úr mörgum ólíkum áttum mætast. Ég heyri Grimes og XXYYXX og dansgólfið á Prikinu með DnB- og drill-innskotum, þar sem bassinn og trommurnar fljúga upp og niður á meðan verkið líður áfram. Í hverju lagi er kafli þar sem melankólískur píanóleikur með „tape effekt“ tekur yfir og gef- ur plötunni heildarmynd og leggur tregafulla dulu yfir söguna. 12:48 hefst á inngangslaginu „Ekki séns“ þar sem rauður þráður plötunnar, melankólíska píanóið, er kynnt til leiks. Svo tekur yfir hljóðaflóð af stingandi syntum sem leiðir á eftir sér leiðandi takt inn í næsta lag, „Annar séns“, sem er örugg- lega poppaðasta lag plötunnar án þess að slá einhverja Eurovision- strengi. Það lyftir hlustendum upp og setur markið hátt fyrir komandi lög. „Glerdúkkan“ tekur við, hrifsar okkur aftur niður og leiðir hlustanda áfram á fleygiferð um brothætta jörð, þar sem raddir breytast, litir brenglast og hjörtu brotna. Næstu tvö lög, „Leið á þessu“ og „Gaddavír“, sýna svipaða mynd en veita okkur betri skilning á veruleikanum. Raf- trommurnar taka sér hlé og djass- skotinn og óræður taktur tekur við og gefur okkur öðruvísi áferðir. Það sem mér finnst skemmtileg- ast á plötunni er hvernig Guðlaug nýtir rödd sína í tónlistinni. Hún er stundum hrá og falleg en svo líka „auto-tune“-uð og brotin upp, „layeruð“ og klippt til svo eyrun heyra ekki hljóðanna skil. Þetta má heyra í mörgum lögum en svo einstaklega vel í sjötta lagi plötunnar, „Þurfum að batna“. Það ásamt sjöunda laginu, „Komdu“, lyftir okkur aftur upp. Þetta eru lög sem fara í allar áttir og eru algjör hápunktur þegar kemur að dansi og djammi og endar í snilldarlega útsettu „drum and bass“-brjálæði. Eftir eltingaleik og dans í miðnætursólinni fáum við að upplifa algjöra berskjöldun í síðustu lögum plötunnar; „Röddin í klettunum“ og „Aleinn“. Þar leyf- ir Guðlaug rödd sinni að blómstra. Svo fullkomlega hreinskilin, trega- full og blíð. Ég gæti endalaust hlustað á rödd hennar brotna. Lokaorð sögunnar eru í tí- unda og seinasta laginu sem ber titilnafn plötunnar, „12:48“. Án nokkurra radda bindur það allt saman og ég sem hlustandi legg frá mér bókina og andvarpa af virðingu og aðdáun á verkinu. Kaflarnir tíu í þessari sögu eru ótrúlega vel pródúseraðir. Halda manni á tánum og taka óvissar beygjur í takti, hljóði og stefnum og gefa hlustendum ekki tækifæri á að stoppa, svo þau neyðast til þess að falla í hljóðheiminn og verða hluti af sögunni. Litir brenglast og hjörtu brotna HLJÓMPLATA SÓLVEIG MATTHILDUR Raftónlist 12:48 Breiðskífa Guðlaugar Sóleyjar Höskuldsdóttur, gugusar. Lög og útsetningar eftir hana. Morgunblaðið/Eggert Hreinskilin „Kaflarnir tíu í þessari sögu eru ótrúlega vel pródúseraðir. Halda manni á tánum og taka óvissar beygjur í takti, hljóði og stefnum,“ segir gagnrýnandi hrifin um plötu Gugusar sem ber heitið 12:48. MayaWidmaier-Picasso, elsta dóttir listmálarans Pablos Picassos, lést í París í vikunni, 87 ára að aldri. Móðir hennar, Marie-ThérèseWalter, var 17 ára þegar hún kynntist Picasso sem var þá 45 ára. Átta árum síðar fæddist Maya. Eins og önnur börn málarans, sem var þekktasti myndlistarmaður síðustu aldar, hefur kastljós fjölmiðla beinst að henni frá fæðingu. Picasso málaði og teiknaði líka af henni margar þekktar myndir. Eftir lát föður síns árið 1973 varðMaya sérfræðingur í verkum hans og tók að sér að staðfesta uppruna þeirra. Að sögn barna hennar rannsakaði hún þúsund- ir verka föður síns og þurfti oft að skera út um hvort þau væru mögulega fölsuð. Um þessar mundir eru í Picasso-safninu í París tvær sýningar sem Diana dóttir Mayu hefur sett upp og eru helgaðar lífi hennar. lVar elsta dóttir Pablos Picassos AFP/Valery Hache DóttirMayaWidmaier-Picasso var sérfræðingur í verkum Picassos. Maya látin Virkjaður hljóðheimur orkuvera lPanThorarensen tekur þátt í fjölþjóðlegu samstarfilTónlist smíðuð úr umhverfishljóðum Tónlistarmaðurinn Pan Thorarensen hefur verið virkur í raftónlist í mörg ár, þar á meðal sem einn liðsmanna ambienttríósins Stereo Hypnosis, auk- inheldur sem hann hefur starfað með ýmsum listamönnum öðrum, á milli þess sem hann rekur tónlistarhátíðina Extreme Chill, rekur plötubúð og gefur út snældur með ýmislegum raftónlistarspuna. Nýverið hóf Pan samstarf við tékknesku tónlistarmennina Václav Havelka og Kryštof Krícek, sem skipa sveitina Please The Trees. Samstarfið kalla þeir fyield og fyrsta breiðskífan, Future Landscapes, kom út fyrir viku. Hljóðrannsóknaleiðangur Aðdragandi að plötunni var rann- sóknarleiðangur þeirra Pans, Havelka og Kríceks með fleiri tónlistarmönn- um og umhverfishljóðateymi, sem skipað var upptökumeisturunum Söru Pinheiro frá Portúgal og Magnúsi Bergssyni. Haldið var á slóðir tékk- neskra og íslenskra orkuvera til að taka upp umhverfishljóð, skrásetja hljóðaheim orkuframleiðslu landanna, hvort sem orkan kom úr iðrum jarðar, sem fallvötn eða kolaver, en einnig hljóðrituðu þau Pinheiro og Magnús umhverfishljóð í vatnsrækt, koltvísýr- ingsniðurdælingu, jökullóni og olíulind. Hér á landi voru umhverfishljóð hljóð- rituð við Fjallsárlón, Búðarhálsvirkjun, Fagradalsfjall og á Hellisheiði. Úr þessum efnivið smíðuðu þeir fyi- eld-félagar plötuna Future Landscapes, en þess má geta að heimildarmynd Ivos Bystricans um upptökuleiðangur- inn, Invisible Landscapes, var frumsýnd fyrir stuttu. Textar á plötunni eru eftir heimspekinginn Lukáš Likavcan sem tók þátt í upptökuátakinu. Að sögn framkvæmdastjóra verkefnisins, Terezu Swadoschová, fjallar það um loftslagsvandann, en er þó fyrst og fremst hvatning til að hlusta á umhverfið á nýjan hátt og þá hugsanlega miða fólki á rétta braut í baráttunni gegn hlýnun loftslagsins. Á flakkimilli landanna Pan segir að það hafi verið frábært að vera valinn í þetta verkefni, „en það var víst einhver tékknesk lista- kona sem mælti með mér í þetta. Svo höfðu þeir Vaclav og Ivo samband við mig og vildu fá mig út til að fara yfir þetta. Við byrjuðum á upptökum víða í Tékklandi sumarið 2021. Hópurinn kom svo til Íslands í ágúst 2021 og við ferðuðumst víða um land; Fjallsárlón, Hellisheiði, Fagradallsfjall, Búðar- hálsvirkjun og víðar. Náðum þar frábærum upptökum. Ég hef svo verið á flakki milli Tékklands og Íslands frá haustinu 2021 í stúdíóupptökum og tónleika- haldi. Myndin var frumsýnd á Ji.hlava-heimildarmyndahátíðinni í Jihlava í október sl. og við lékum líka á tónleikum þar. Eiginlegir útgáfutónleikar voru svo haldnir á hinum sögufræga stað meetFact- ory í Prag seinna í október. Næst á dagskrá er tónleikaferðalag um Evrópu og Bandaríkin á næsta ári þar sem heimildarmyndin fer einnig í dreifingu.“ Félagarnir í fyield spiluðu hér á landi á Extreme Chill í haust en Pan segir að ekkert sé ákveðið með frek- ari spilamennsku á Íslandi í bili. „Það er þó aldrei að vita hvað maður gerir, það kemur þá í ljós.“ Ljósmynd/Lukáš Skála Loftslagshlýnun Pan Thorarensen með félögum sínum í fyield, Václav Havelka og Kryštof Krícek. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ljósmynd/I. Cerna HljóðrannsóknirVáclav Havelka og Pan Thorarensen, upptökumaðurinn Magnús Bergsson og heimspekingurinn Lukáš Likavcan við Fjallsárlón.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.