Morgunblaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 2
Á Íslandi er laxeldið vel þekkt, sem og eldi annarra laxfiska. Um heim allan er þó umfangsmikið eldi annarra tegunda svo sem tilapíueldi og styrjueldi sem framleiðir dýrasta kavíar heims. Þrátt fyrir að á heimsvísu sé verið að fram- leiða gríðarlegt magn eldisafurða er staðreyndin sú að líklega hefur mann- kynið aðeins verið að kroppa í yfirborð tækifæranna á sviði eldis og ræktunar. Hér á landi hafa verið gerðar ýmsar prófanir og er meðal annars starfsfólk Matís að gera tilraunir í eldi á seiðum fengrana í kerjum í Grafarvogi og stefn- ir Sæbýli ehf. á að koma ræktun sæeyrna í Grindavík í 200 tonn. Sæeyru, eins og er hér á mynd, eru meðal merkilegustu dæma um framtíðarhlutverk eldis og ræktunar. Sæeyrnaveiðar eru í dag bannaðar um allan heim en ofveiðar útrýmdu stofn- inum næstum. Víða er gengið á ýmiss konar nytjastofna langt umfram ráðgjöf vísindamanna og gefur eldi og ræktun von um að hægt verði að bjóða matvæli og annan mikilvægan varning með sjálf- bærum hætti í aukinni sátt við náttúr- una. gso@mbl.is Ljósmynd/Sæbýli Grundvöllur aukinnar sjálfbærni Silfurstjarnan er á ákjósanlegum stað fyrir landeldi. Þar er bæði nægt ferskt vatn, salt vatn, sjór og jarðhiti. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason 26 2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2022 Útgefandi Árvakur Umsjón Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Unnið í samstarfi við Strandbúnað ehf. Blaðamenn Ásgeir Ingv- arsson asgeir@mbl.is, Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Auglýsingar Bjanri Ólafur Guðmundsson daddi@k100.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Þorgeir Baldursson Það er stöðugt viðfangsefni að efla reksturinn. Takast þarf á við mörg flókin verkefni, sam- hliða vexti í framleiðslu, að sögn Stein Ove Tveiten, framkvæmdastjóri Arctic Fish. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason 6 Í skoðun er að bæta við fjórða skipinu vegna eftirspurnar eftir flutningi á ferskum laxi sjóleiðina vestur um haf, að sögn Sigurðar Orra Jónssonar hjá Eimskip. Ljósmynd/Eimskip 30 Það er löngu orðið tímabært að ráðast í heildræna stefnumótun fyrir eldis- og ræktunargreinar hér á landi, að mati Svandísar Svavars- dóttur matvælaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið 4 Það sem byrjaði sem tilraunaverkefni 2012 er nú með um 50 starfsmenn og veltir 1,5 milljörðum króna. Orri Björns- son, forstjóri Algalífs, segir vöxtinn nema 15% á ári. Morgunblaðið/Eggert 24 Það er enginn vafi um að eldið sé komið til að vera og eru umsvif eldis- greinanna allra, svokallaðs lagareldis, orðin slík að styttist í að til verði fjórða stoðin í íslenska hagkerfinu. Langtum stærst er fiskeldið, sér- staklega laxeldið, sem gæti árlega skilað yfir 200 milljörðum króna í út- flutningsverðmæti á komandi árum. Þá hefur ekki verið nefndur sá vöxt- ur greina er nýta örþörunga og stórþörunga eða framfarir í rækt ann- arra sjávardýra. Lagareldið hefur skapað fjölda starfa og fært líf í byggðir sem áður voru taldar vera á köldum svæðum, brotthættar byggðir þar sem voru takmörkuð tækifæri og íbúum fækkaði ár eftir ár. Eldi og ræktun hefur gefið byggðum víða um land mikilvæga viðspyrnu auk þess sem störf hafa orðið til í hliðar- og stoðgreinum. Um er að ræða sérhæfð störf og hátæknistörf, sem um sinn kalla á starfsfólk með rétta menntun og þekkingu. Í þessu blaði er gerð tilraun til að gera sem flestum greinum lagareld- is skil og sést bersýnilega að tækifærin eru nánast óteljandi. Því verður hins vegar ekki haldið fram að áskoranirnar séu áberandi færri en tækifærin. Jafn- framt er lagareldið tiltölulega ungt hér á landi og má búast við því að enn sé langt í land með að fullmóta umgjörð grein- anna. Það er því gríðarlega mikilvægt að stuðlað sé að faglegri og fræðandi um- fjöllun um lagareldi sem getur orðið bættur grundvöllur að menntun, rann- sóknum, þróun og stefnumótun. Það er einmitt tilgangur Lagarlífs- ráðstefnunnar sem fram fer á Grand hóteli 20. og 21. október og því ánægjulegt að fá að gefa út þetta blað í samstarfi við skipuleggj- endur hennar. Lagareldi verður brátt fjórða stoð íslenska hagkerfisins Morgunblaðið/Eggert Gríðarleg uppbygging hefur átt sér stað í öllum greinum lagareldis á undan- förnum árum og má búast við enn frekari uppbyggingu á komandi árum. Gunnlaugur Snær Ólafsson Aukin sjálfvirknivæðing er framtíð í fóðrun, segir Höskuldur Steinarsson, framkvæmdastjóri Scale AQ á Íslandi. Morgunblaði/Arnþór Birkisson 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.