Morgunblaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2022 Þ að er löngu tímabært að ráðast í stefnumótun í þessum mikilvægu at- vinnugreinum sem hafa alla möguleika á að verða sterkur þáttur í íslensku efnahags- og atvinnulífi ef gætt er að öllum þáttum með tilliti til sjálfbærni og loftslagssjónarmiða,“ segir Svandís. Hún ákvað í sumar að láta gera skýrslu um stöðu lagareldis á Íslandi. Lagareldi er yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi. Í kjölfar útboðs féll það í hlut ráð- gjafafyrirtækisins Boston Consulting Group Nordic AB að gera ítarlega út- tekt á stöðu lagareldis á Íslandi. Í skýrslunni, sem á að verða tilbúin í nóvember, verða greindir framtíð- armöguleikar og áskoranir grein- arinnar og mun sú vinna nýtast við stefnumótun matvælaráðherra. „Við erum í mikilli stefnumót- unarvinnu með Boston Consulting Group. Þar er horft til hefðbundis sjókvíaeldis, landeldis, úthafseldis og þörungaræktunar. Það er verið að horfa til allra þessara þátta og þeirra áskorana sem eru fyrir hendi í tengslum við vöxt þessara greina. Þær áskoranir felast í sjálfbærni í samfélagslegu, efnahagslegu og ekki síst umhverfislegu tilliti,“ útskýrir Svandís. Skýrslan er mikilvægur liður í að skapa grundvöll fyrir heildarend- urskoðun á umgjörð þeirra greina sem um ræðir og framtíðarstefnu ís- lenskra stjórnvalda. Eðlilega er hennar því beðið með eftirvæntingu. „Ég veit að Boston Consulting er að nálgast endapunkt með þessa kort- lagningu,“ segir Svandís. Hún út- skýrir að í skýrslunni sé meðal ann- ars horft til annarra „samfélaga sem eru komin með miklu meiri reynslu af þessari atvinnugrein. Einnig er tekið tillit til þess að tæknilausnir eru að fæðast, til dæmis í landeldi og úthaf- seldi. Þar er lengra í land, en þar eru áskoranirnar annars eðlis. Við von- umst til að leggja góðan grunn fyrir heildarendurskoðun á þessu reglu- verki, umgjörðinni, gjaldtökunni og framkvæmdinni til framtíðar.“ Nær einnig til gjaldtöku Nýverið tilkynntu norsk stjórnvöld áform um innleiðingu nýs 40% auð- lindagjalds á fiskeldi í sjókvíum frá og með áramótum. Í fjörðum Noregs hafa nýtingarleyfi verið boðin út frá árinu 2018. Á fundi ríkisstjórnar- innar, 14. október síðastliðinn, ræddi Svandís tillögur um breytta tilhögun gjaldtöku af sjókvíaeldi í Noregi og Færeyjum. Spurð, hvort stefnt sé á að breyta gjaldtöku af greinum lagareldis hér á landi, svarar Svandís því játandi. „Það er allt saman undir í þessari skoðun. Þar þurfum við bæði að horfa til þess hver gjaldtakan á að vera, en ekki síður hvernig og hvert er gjald- takan að skila sér? Sveitarfélögin hafa bent á að fiskeldisgjaldið, eins og það er skipulagt núna, í gegnum fiskeldissjóð, sé ekki besta leiðin til að útfæra þetta. Þau hafa líka bent á umgjörð hafnargjalda sem þarf að taka til endurskoðunar. Þetta þarf allt að taka með í reikninginn þegar verið er að skoða umgjörð grein- arinnar í heild.“ Fjölbreytt innviðauppbygging Lagareldi er í eðli sínu flókið við- fangsefni og þarf að samþætta marga ólíka hluti til að allt vinni saman að sögn Svandísar. „ Grein af þessari stærðargráðu útheimtir öfluga inn- viði, skýrt og sterkt regluverk, en líka þekkingaröflun, vísindarann- sóknir, samstarf milli landa og svo framvegis. Við verðum líka að horfa til þess hvaða möguleika við höfum til að mennta ungt fólk á þessu sviði. Þurfum við að gera betur í því? Það er mjög fjölbreytt innviðauppbygg- ing sem þarf að eiga sér stað sam- hliða.“ Svandís telur mikil tækifæri á sviði matvælaframleiðslu en að vanda þurfi til verka. „Það er engin spurn- ing að það er og verður vaxandi eft- irspurn eftir matvælum í heiminum. Í samfélagi þar sem eru öflugar nátt- úruauðlindir, orkan er græn og að- gengi að vatni er gott höfum við mikil sóknarfæri í matvælaframleiðslu og þar með talið lagareldi. En við þurf- um að gæta að því að ramminn sé þannig að greinin fari ekki fram úr samfélaginu. Eins og er liggur ekki fyrir stefnu- mótun fyrir Ísland í tengslum við þessar greinar og við höfum bara þann ramma sem lögin setja okkur, án þess að það sé skýr framtíðarsýn. Greinin kallar líka eftir þeirri stefnu- mótun. Þá getum við líka forgangs- raðað þeim ákvörðunum sem við tök- um um lagaumhverfið, eftirlitið, rannsóknirnar eða aðra innviði sem við þurfum að fylgja eftir.“ Löngu tímabær stefnumótun Ljósmynd/Stjórnarráðið Íslensk stjórnvöld hefur skort skýra framtíðarsýn fyrir eldis- og ræktunargreinar hér á landi að mati Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. Hún segir ekki síður mikilvægt fyrir öll fyrirtæki undir hatti lagareldis að stjórnvöld hafi skýra framtíðar- sýn og sterkt regluverk í málaflokknum. Svandís Svavarsdóttir segir mótun heildrænnar stefnu fyrir lagareldi hjálpa stjórnvöldum að forgangsraða. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is H alldór segir áhugann á ráðstefnunni sífellt aukast og sérstaklega sé áberandi hve mikill áhugi sé meðal þjónustuaðila. „Ráðstefnan Lagarlíf er orðin mjög mikilvægur vettvangur til að hittast og koma því á framfæri sem verið er að gera í eldi og ræktun og hjá þjón- ustuaðilum. Það segi ég að sé mikill styrkleiki ráðstefnu að hún sé komin á þann stall að þjónustuaðilar séu farnir að merkja í dagatalið ári fyrir fram, því þá er augljóst að það skipt- ir máli fyrir þá að vera þarna,“ út- skýrir hann. „Þessi ráðstefna er komin til að vera árlega,“ fullyrðir Halldór. Hún hefur vaxið í takti við umsvif eldis- og ræktunargreina en það verður ekki komist hjá því að umsvif fisk- eldis hefur vaxið ört á undanförnum árum. „Strandbúnaður er ekki bara stofnað sem vettvangur fyrir fiskeldi heldur líka fyrir skelrækt, þang og þörunga. Hraður vöxtur fiskeldisins, hvort sem er á landi eða í sjó, sést á ráðstefnunni. Það er bara eðlilegt að tekið sé mið af þróuninni í þessum geira á hverjum tíma. Langstærsti hluti ráðstefnunnar er helgaður eldinu og Nordic Salmon vinnufundurinn í Þorlákshöfn, daginn fyrir hana, er helgaður fiskeldinu eingöngu.“ Þetta hefur haft áhrif á samsetn- ingu fundargesta og málstofurnar. „Hlutfallslega fleiri koma úr eldinu en á upphafsárunum, en þeir sem tengjast öðrum greinum eins og skelrækt – sem hefur því miður ekki gengið nógu vel á Íslandi – og þör- ungarækt, sem er vaxandi atvinnu- vegur eins og örþörungar og þör- unganýting – hafa haldið sínu og eiga sitt pláss. Ég tel mikilvægt að þessar atvinnugreinar verði áfram saman í þessu,“ segir Halldór, en hann er jafnframt framkvæmda- stjóri Kalkþörungafélagsins. Vægi ráðstefnunnar eykst „Markmiðið með ráðstefnunni er að leiða saman þá sem eru í bransanum og skiptast á upplýsingum,“ segir Halldór, en tilgangur félagsins Strandbúnaðar er að stuðla að fag- legri og fræðandi umræðu og styðja við menntun, rannsóknir og stefnu- mótun. Í takti við aukið vægi eldis- og ræktunargreina vaxi nauðsyn þess að halda úti starfsemi sem þessari, að sögn Halldórs. „Þessar greinar auka tekjur sam- félagsins. Það eru miklar útflutn- ingstekjur að verða til og þó fisk- eldið beri þar höfuð og herðar yfir þang- og þörungarækt, þá veltir sú grein nokkrum milljörðum á hverju ári og það mun aukast. Þetta skapar fjölda starfa fyrir fólk og svo er þetta allt mjög bundið landsbyggð- inni. Mörg þessara starfa verða til þar. Það er mjög mikilvægt því landsbyggðina hefur heldur betur vantað aukna fjölbreytni í störfum og meiri festu í atvinnulífinu.“ Spurður hvort ráðstefnan gæti orðið fyrir eldis- og ræktunar- greinar það sem sjávarútvegssýn- ingin sé fyrir sjávarútveginn, svarar Halldór að þar sé ákveðinn eðl- ismunur á. Ekki sé um sýningu að ræða. Þjónustuaðilar hafi þó í aukn- um mæli óskað eftir því að vera með bása á Lagarlífs-ráðstefnunni og tel- ur hann að þeim gæti fjölgað á kom- andi árum. Þá hefur hann fulla trú á að ráðstefnan muni halda áfram að stækka en grundvallaratriðið sé þó ávallt að skipulagðar séu fræðandi málstofur sem auka þekkingu gesta. Þá höfða sýningar almennt meira til almennings en ráðstefna af þess- um toga. „Þetta er mjög bransa- bundið. Ef þú ert í þessu hefurðu eðlilega mikinn áhuga á þessu. Það væri hins vegar áhugavert – því það er svolítið mikil umræða um kosti og galla fiskeldisins, sérstaklega í sjó – að vera með opna málstofu þar sem umræðuefnið væri þessi staða. Hverjir væru kostir og hverjir væru gallar? Umræðan er svolítið bundin við fyrirsagnir og uppslætti,“ segir Halldór. Markmiðið að auka þekkingu Ráðstefnan Lagarlíf hefur vaxið fiskur um hrygg frá því hún fór fram í fyrsta sinn 2017, að sögn Halldórs Halldórssonar, stjórnarformanns Strandbúnaðar – sem skipuleggur Lagarlíf. Hann telur mikilvægt fyrir eldis- og ræktunargreinar að koma saman og deila þekkingu sinni og upplifun. Ljósmynd/Strandbúnaður Morgunblaðið/Árni Sæberg Halldór Halldórsson, stjórnarformaður Strandbúnaðar, segir áhugan á Lagarlífs- ráðstefbnunni hafa vaxið fiskur um hrygg og er búist við fjölda gesta, Eldis- og ræktunarfólk mun hittast á Lagarlífi í fimmta sinn. Um er að ræða mikilvægan vettvang stefnumótunar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.