Morgunblaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.10.2022, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2022 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Laxeldisfyrirtækið Arctic Fish hefur þegar leyfi fyrir 21 þúsund tonna lífmassa í sjókvíum á Vestfjörðum og eru bundnar vonir við að leyfi fáist fyrir 10 þúsund tonnum til viðbótar í Ísafjarðardjúpi. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is S tein Ove bendir á að hjá ungum fyrirtækjum sé það stöðugt viðfangsefni að efla reksturinn og mörg flókin verkefni sem þurfi að takast á við samhliða vexti í framleiðslu. „Hér hjá Arctic Fish erum við með í gangi mjög um- fangsmikið fjárfestingaverkefni, bæði í sambandi við seiðaeldisstöð á Tálknafirði og í tengslum við sláturhúsið á Bolungarvík. Bæði þessi verkefni snúa að því að skapa stöðugri rekstrargrundvöll. Við viljum framleiða stærri seiði til að draga úr afföll- um og þannig minnka áhættu og hafa slát- urhús með af- kastagetu sem mætt getur áföll- um, eins og til að mynda sjúkdóm- um. Við þurfum einnig að byggja upp reynslu og þekkingu hjá starfsfólki okkar en ekki síður þróa viðeigandi fag- menntun bæði fyrir þá sem þegar starfa fyrir okkur og þá sem koma nýir inn. Auk þess þarf að vinna hvíldarlaust að bættu öryggi hvað varðar fisksjúkdóma og ekki síst öryggi starfsmanna. Allt þarf þetta síðan að hanga saman hjá vaxandi fyrirtæki. Það er af nógu að taka. Langtímasýn og fyrirsjáanleiki eru grundvallaratriði í fiskeldi,“ út- skýrir hann. Flest íslensk fyrirtæki Arctic Fish keypti fyrr á þessu ári hús við höfnina í Bolungarvík und- ir nýtt sláturhús félagsins og var hafist handa við að stækka það í tæplega 5.000 fermetra. „Verk- efnið er tvískipt, annars vegar er það sá þáttur sem snýr að húsnæð- inu sjálfu og hins vegar allur vinnslubúnaðurinn. Við erum búin að ljúka nánast öllum samningum hvað varðar tæki og búnað og í tengslum við húsnæðið. Við teljum að við séum að ná þeim mark- miðum sem við höfum sett okkur,“ segir Stein Ove. Hann segir enn fremur ánægju- Drifkraftur aukinna lífsgæða Undanfarin misseri hafa að mörgu leyti verið mjög góð fyrir laxeldisfyrirtækin. Stöðugur vöxtur í greininni, vaxandi eftirspurn og ekki síst hagstætt afurðaverð á mörkuðum. Það hefur þó ekki gert það að einföldu verki að reka fyrirtæki af þessum toga. „Þetta hefur aldrei verið dans á rósum,“ segir Stein Ove Tveiten, framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish á Vestfjörðum. Tölvuteikning/Arctic Fish Fjöldi íslenskra fyrirtækja sinna uppsetngu búnaðar í nýju sláturhúsi Arctic Fish á Bolungarvík. legt að flestir þeirra samninga sem gerðir hafa verið um kaup á búnaði hafi náðst við íslensk fyrirtæki. En lá að baki markviss ákvörðun um að sækjast eftir íslenskum lausn- um fyrir sláturhúsið? „Nei. Við höfum gert alla okkar samninga af kostgæfni og á við- skiptalegum grundvelli. Þannig á það líka að vera. Við getum ekki valið innlend fyrirtæki bara vegna þess að okkur finnst það skemmti- legra. Heilbrigð samkeppni er mikilvæg. Það er þó ljóst að ef við værum með tvö eins tilboð mynd- um við telja best að velja það ís- lenska, því innlent fyrirtæki er lík- legra til þess að geta aðstoðað í auknum mæli á staðnum ef þörf er á. Sú staðreynd að íslensk fyrir- tæki hafa orðið fyrir valinu segir okkur að Ísland er mjög öflugt og samkeppnishæft á þessu sviði. Jafnframt hefur verið eftirsókn- arvert fyrir íslensk fyrirtæki að landa samningum um sölu á búnaði í nýtt hátæknisláturhús á Íslandi.“ Væntingar um bættar samgöngur Það er auðsætt að veðurskilyrði og staða samgangna á Vestfjörðum geta haft áskoranir í för með sér. Spurður hvort innviðirnir séu full- nægjandi fyrir sláturhúsrekstur með 25 þúsund tonna framleiðslu- getu svarar Stein Ove: „Það er tvennt sem innviðirnir hafa áhrif á; fyrst og fremst flutningur á fiski til sláturhússins af eldissvæðunum og svo flutningurinn á afurðunum frá sláturhúsinu. Við höfðum gert mjög umfangsmiklar kannanir á þessu áður en ákvörðunin var tek- in um að byggja upp starfsemina á þessum stað. Með tilliti til beggja þessara þátta er rökrétt að hafa sláturhúsið á Bolungarvík.“ Hann kveðst þó hafa væntingar um umbætur á vegakerfinu og aukinn fyrirsjáanleika í tengslum við samgöngurnar. „Þetta skiptir okkur miklu máli. Ég hef kynnst vetri og óveðri á Íslandi og þekki á eigin skinni um hvað málið snýst, en á sama tíma höfum við sýnt að það er vel hægt að vinna við þessar aðstæður.“ Bendir hann meðal annars á að vegna skipulags framleiðsluferilsins er ekki hætta á að vonskuveður skapi flöskuhálsa, þar sem ekki verður við slíkar að- stæður hægt að nota brunnbáta til að sækja lax í kvíarnar. Til framtíðar er stefnt að því að stærri hluti af afurðunum verði fluttur með skipi frá framleiðslu- stöð í stað vörubíla, að sögn Steins Oves. „Þetta er háð magni. Ef maður spyr Samskip, Eimskip eða Smyril Line er þetta ávallt spurn- ing um fjölda gáma til að þetta gangi upp. Það er einnig markmið okkar að minnka losun koltvísýr- ings sem tengist rekstrinum með því að færa flutning fisksins af vegum landsins og yfir í skip.“ Hámarka nýtingu leyfa Ör vöxtur hefur verið í framleiðslu Arctic Fish á undanförnum árum og er fyrirtækið með leyfi fyrir 21 þúsund tonnum af laxi í sjó og von- ast er til að leyfi verði gefið út fyr- ir 10 þúsund tonna eldi í Ísafjarð- ardjúpi. Gert er ráð fyrir að takist að koma 13 þúsund tonnum í slátr- un á næsta ári. Beðinn að rýna í framtíðarvöxt félagsins segir Stein Ove að á næstu þremur til fimm árum verði áherslan á að ná að fullnýta leyfin sem fyrirtækið þegar er með sem og mögulegt leyfi í Ísafjarðardjúpi. „Við áætlum að ná 24 þúsund tonna framleiðslu árið 2024, en sjáum einnig fyrir okkur frekari framleiðsluvöxt með því að ná betri nýtingu leyfanna innan þess lagaramma sem nú er. Það felst í því að nýta stærri seiði í kvíarnar og þannig stytta vaxtartíma í sjó. Í framhaldinu verður frekari vöxtur háður því hvernig stjórn- völd sjá fyrir sér þróun grein- arinnar, hvar mörk sjálfbærninnar eru með tilliti til líffræðilegrar áhættu og hvernig tekst til með að hámarka nýtingu leyfanna með til- liti til róterandi lífmassa.“ Hann segir Arctic Fish finna fyrir miklum stuðningi meðal íbúa á Vestfjörðum, ekki síst vegna þess hve mikilvæg uppbygging at- vinnurekstrar er fyrir landshlut- ann. „Það er mikill áhugi á að sjá uppbyggingu félagsins raungerast. Samhliða því að vera fyrirtæki vilj- um við einnig taka þátt í uppbygg- ingu samfélags og það er mjög gef- andi. Að því sögðu eru væntingarnar mjög miklar og það hefur sínar áskoranir, en við sjáum fyrir okkur að við getum verið drifkraftur aukinna lífsgæða fólks á þessu svæði.“ Stein Ove Tveiten Fjöldi innlendra samninga Arctic Fish hefur gert fjölda samninga við íslensk fyrirtæki um búnað í nýtt sláturhús sitt á Bolungarvík. Í september var til að mynda undirritaður samn- ingur við Iðnver um uppsetningu lágþrýstiþvottakerfis fyrir vélar, færibönd og kassa. Kerfið er bæði hægt að nota handvirkt og sjálfvirkt. Á sjávarútvegssýningunni sem fram fór í júní síðastliðnum var undirritaður samningur við Samey Robotics um uppsetningu á kerfi sem getur staflað allri framleiðslu Arctic Fish á bretti með tveimur sjálfvirkum róbótakerfum. Sama dag var gengið frá samningi við Micro ehf. um sölu, framleiðslu og uppsetn- ingu á flokkunar- og pökkunarlínu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.