Morgunblaðið - 18.10.2022, Síða 9
Ísfell rekur átta þjónustu- og framleiðsluein-
ingar um land allt: Akureyri, Hafnarfirði,
Húsavík, Ólafsfirði, Patreksfirði, Sauðárkróki,
Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn. Höfuðstöð-
var Ísfells eru í Hafnarfirði þar sem skrifstofur,
sölumenn, vörulager og verkstæði eru til
húsa. Árið 2019 reisti Ísfell eina fullkomnustu
þjónustustöð fyrir þvott og yfirferð á fisk-
eldispokum við höfuðstöðvar sínar.
Þjónustustöðin uppfyllir kröfur fyrir fiskeldi
NS9415. Starfsemin er úttekin og vottuð af
DNV-GL. Þar tekur fyrirtækið við fiskeldis-
pokum þegar þeir eru búnir að vera í sjó og
notkun lokið. Eftir þvott og sótthreinsun eru
pokar og íhlutir þess skoðaðir gaumgæfilega,
slitpróf framkvæmd og pokarnir viðgerðir
ef þörf þykir. Möguleiki er á böðun með
sæfivörnum til að verja net og lengja líftíma.
Að lokum er pokinn pakkaður og ástands-
mat útgefið fyrir afhendingu eða pokinn
settur í geymslu fyrir áframhaldandi notkun.
Í fiskeldi er afar mikilvægt að halda netunum
í kvíunum hreinum, þannig að slý og annar
sjávargróður safnist ekki upp og skerði ekki
flæði súrefnis.
Ísfell er í nánu samstarfi við Selstad AS sem
er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í Noregi og eru
höfuðstöðvar í Maloy. Fyrirtækið var stofnað
árið 1951 og rekur fjórar fiskeldisþjónustu-
stöðvar í Noregi, ásamt því að vera í samstarfi
við fjölmörg önnur fyrirtæki í greininni, jafnt
innanlands og erlendis. Selstad þjónustar
sjávarútveg og fiskeldi á sama hátt og Ísfell
gerir hér á landi, ásamt því að þjónusta
olíuiðnaðinn. Fyrirtækið framleiðir þar að
auki sitt eigið tóg, Selstad rope.
Samstarfsaðili Ísfells og Selstad er neta- og
tógframleiðandinn, Garware Technical Fibres
á Indlandi. Gaware er meðal stærstu neta-,
tóg- og textílvöruframleiðendum í heimi.
Farsælt samstarf fyrirtækjanna hefur verið í
meira en tvo áratugi. Í samstarfinu er lögð
áhersla á samkeppnishæfni, hönnun og
þróun á efni sem valið er í fullbúinn búnað,
allt að óskum og kröfum notenda, sem skilar
virðisaukningu fyrir alla hlutaðeigandi aðila.
Á ráðstefnunni„Lagarlíf – Aqua Ice“ sem
haldin verður 20.-21. október nk. mun
Steinar Hansen sérfræðingur hjá Selstad
kynna val á neti fyrir eldispoka, sögu þess
og þróun. Þegar farið er yfir þróun sem átt
hefur sér stað, þá þarf að fjalla um hvernig
hlutir voru gerðir áður fyrr, hvernig þeir
eru gerðir í dag og hvernig hlutir gætu
þróast í framtíðinni.
Rannsóknar- og þróunardeild Garware er í
nánu samstarfi við fyrirtæki þegar kemur
að nýsköpun fyrir fiskeldi, sérstaklega á
notkun á HDPE„high-density polyeth-
ylene“ eða plastefna, sem hér eftir verður
kallað PE. Undanfarin ár hefur notkun á
nylon verið útbreidd um allan heim. Efnið
er hagkvæmt hráefni í eldispoka á margan
hátt og auðvelt til endurvinnslu, en þó
með vissum annmarka. Aukin alþjóðleg
eftirspurn eftir PE neti í pokum hentar á
margan hátt betur fyrir fiskeldi. PE netin
eru harðgerðari fyrir reglulegan þvott,
í stað notkun sæfivarna. Væntingar og
umræða á markaði á hverjum tíma kallar
á meiri sjálfbærni í framleiðslu, notkun,
meðferð og endurnýtingu.
Notkun á PE fiskeldisnetum
getur stuðlað að:
• Meiri sjálfbærni
• Kröfum neytenda og markaðarins
• Vali á öðru en notkunar á sæfivörnum
• Núningsþolnari efnum og lengri líftíma
neta
• Möguleikum til endurvinnslu
Fyrir íslenskt fiskeldi gilda ákveðnar
reglur og er eftirlit með greininni. Hraður
vöxtur og ör þróun í tækni kallar á að
framleiðendur taki virkan þátt í þeirri
uppbyggingu, þar sem fylgt er eftir
reglum og stöðlum.
Ísfell er leiðandi í þjónustu við sjávarútveginn. Þjónustan markast
helst af góðu úrvali af gæðavörum, áreiðanleika gagnvart við-
skiptavinum og framúrskarandi hópi starfsfólks með víðtæka
þekkingu. Áhersla er lögð á hraðar afgreiðslur af vörulager
fyrirtækisins.
Nýsköpun í hönnun, þróun og
efnisvali á neti í eldispokum
Möguleikar á minni notkun sæfiefna, meiri sjálfbærni