Morgunblaðið - 18.10.2022, Side 10

Morgunblaðið - 18.10.2022, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2022 ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þ ví miður er útlit fyrir að kræklingarækt á Íslandi muni senn heyra sögunni til. Bergsveinn Reynisson hjá Nesskel segir að þau fáu fyrirtæki sem starfa í þessari grein hafi frá upphafi þurft að standa straum af kostnaðarsömum sýnatökum og mælingum og að ný- lega hafi breytt vinnubrögð og flækjur vegna Brexit gert það ill- mögulegt að sinna þessum hluta starfseminnar þannig að reksturinn nái að ganga eðlilega fyrir sig. Sjálf- ur hefur Berg- sveinn sett neta- pokana á hilluna um sinn og snúið sér að sauðfjár- rækt, a.m.k. þar til rekstrarum- hverfi bláskelja- bænda batnar. „Nú síðast kom upp vandamál tengt styrkleika kadmíns í ís- lenskum kræklingi. Úti í heimi er kadmín flokkað sem mengunarefni en á Íslandi er kadmín í kræklingi náttúrulegt fyrirbæri. Það er breytilegt eftir löndum hversu mik- ið kadmín má mælast í kræklingi, og hér á Íslandi höfum við yfirleitt verið rétt undir evrópskum við- miðum sem eru töluvert strangari en þau viðmið sem gilda í Banda- ríkjunum. Er kadmínhlutfallið yf- irleitt mælt á veturna þegar það er lægst og fá niðurstöðurnar að gilda í tvö ár. En svo gerðist það að eft- irlitsaðili frá Evrópu heimsótti MAST og einhver þar á bæ fékk þá hugmynd að það þyrfti að taka ný sýni í júlí í fyrra, og gáfu sýnin þá niðurstöðu að kadmín væri yfir við- miðunarmörkum.“ Bergsveinn segir margar tengdar greinar í svipuðum vanda og óvíst með framhaldið hjá fyrirtækjum sem nýta sæbjúgu, kúfisk, hörpu- disk, ígulker, þang, þara og krabba. „Allar þessar vörur gætu verið al- veg á mörkunum, og vert að skoða hvort kadmínviðmiðin séu eðlileg í ljósi þess að þetta efni berst út í ís- lenskan sjó með náttúrulegum ferl- um,“ útskýrir Bergsveinn en sjálfur slapp hann vel í síðustu mælingu. „Ég fékk vægt áfall þegar ég sá niðurstöðurnar og sýndist styrk- urinn vera 3,5 en hann var þá 0,35 og leyfilegt hámark er 1,0.“ Sýnin stoppuð í tollinum Það sem fékk Bergsvein til að hætta kræklingarækt voru vand- kvæði tengd þörungamælingum. „Senda þarf sýni af hverju nýting- arsvæði í hverri viku á meðan framleiðsla stendur yfir og kostar tugi þúsunda í hvert skipti. Alls staðar í Evrópu er þessi vöktun fjármögnuð af stjórnvöldum og lit- ið þannig á að um sé að ræða um- hverfisvöktun fyrir neytendur, og þau fyrirtæki sem við keppum við borga því ekki krónu fyrir,“ út- skýrir Bergsteinn. „Hafði tekist að koma á því verklagi á að við send- um sýnin til Bretlands og gátum fengið niðurstöðurnar tiltölulega hratt, en eftir Brexit fór það að gerast að sýnin töfðust í tolli. Var lítið um svör þegar Matvælastofn- un var beðin um að reyna að liðka fyrir og stóðu framleiðendur ítrek- að frammi fyrir því að geta ekki af- hent vöru á réttum tíma þar eð þörungamælingar lágu ekki fyrir. Yfirkokkar eru ekki geðbestu menn í heimi og getur fólk rétt ímyndað sér hversu óskemmtilegt það er að geta ekki staðið við þá afhending- artíma sem viðskiptavinirnir gera ráð fyrir.“ Segir Bergsveinn að hljóðið í ís- lenskum kræklingabændum sé þannig að þeir séu ekki hættir fyrir fullt og allt, en muni ekki byrja starfsemi á ný fyrr en búið er að laga sýnatökumálin. „Það merkilega er að íslensk stjórnvöld fengu á sín- um tíma háan styrk frá Evrópu til að koma upp greiningarbúnaði hér á landi og voru keypt mælitæki og starfsmaður þjálfaður sérstaklega til að sinna þessum mælingum. En svo bilaði tækið og enginn vilji var fyrir hendi að kaupa nýtt.“ Fór frekar til Úkraínu Er leitt að ekki skuli hafa tekist að bæta úr þessum vanda og auðvelda greininni að vaxa og segir Berg- sveinn að ef stjórnvöld tækju sig á myndi það verða lyftistöng fyrir at- vinnulífið í minni byggðum víðs- vegar um landið. „Árið 2017 var er- lendur fjárfestir langt kominn með að koma af krafti inn í íslenska kræklingarækt og voru gerðar metnaðarfullar áætlanir, en eftir ít- arlega skoðun leist þessum fjárfesti ekki á stjórnsýsluumhverfið og þann litla stuðning sem greinin nýt- ur. Hann fann því annað land þar sem rekstrarumhverfið væri betra og öruggara en á Íslandi, og það land var Úkraína. Það segir allt sem segja þarf að honum fannst skynsamlegra að setja sína millj- arða í kræklingarækt í Svartahafi heldur en á Íslandi.“ Þykir Bergsveini leiðinlegt að ekki hafi fyrir löngu verið bætt úr vanköntunum. „Á sínum tíma var starfshópur settur á laggirnar til að fara yfir þessi mál og áttu þar sæti fulltrúar kræklingabænda, Mat- vælastofnunar og ráðuneyta, og var skoðað mjög ítarlega hvernig önnur lönd halda á þessum málum. Niður- stöðurnar af vinnu hópsins liggja fyrir, en síðan hefur ekkert meira verið gert og gæti kræklingarækt samt verið nokkuð öflug atvinnu- grein með rétta umgjörð. Eftir- spurnin er góð og er þetta ein grænasta matvælaframleiðsla í heimi enda nærist kræklingurinn á svifþörungum neðst í fæðukeðjunni. Að þessari atvinnugrein skuli vera leyft að deyja á vakt Vinstri grænna finnst mér alveg afleitt, og efast ég stórlega um að ég láti þann flokk hafa mitt atkvæði aftur.“ Rekstrarumhverfi kræklingaræktar er mun betra í öðrum löndum. Hátt flækju- stig og kostnaður vegna sýnatöku hefur gert út af við greinina. AFP/Boris Horvat Franskur kræklingabóndi hugar að uppskerunni í tjörn skammt frá Montpellier. Bergsveinn segir það vera reglu í evrópskri kræklingarækt að stjórnvöld fjármagni allar þörungamælingar. Morgunblaðið/Sverrir Kræklingur er herramannsmatur og gæti framleiðslan á Íslandi orðið mun meiri ef aðstæður bötnuðu. Bergsveinn Reynisson Fjárfestir fór til Úkraínu frekar en að rækta krækling á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.