Morgunblaðið - 18.10.2022, Side 18

Morgunblaðið - 18.10.2022, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2022 Þaufiska sem róa! Sjávarútvegsdagurinn 2022 Dagskrá Setning og fundarstjórn Ásta Dís Óladóttir Dósent við Háskóla Íslands Samantekt og lokaorð Ásta Dís Óladóttir Dósent við Háskóla Íslands Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja ogfiskeldis árið 2021 Jónas Gestur Jónasson Löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte Verðumvið 3%? ÞorsteinnMár Baldvinsson Forstjóri Samherja Ávarp Svandís Svavarsdóttir Matvælaráðherra Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfiDeloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins, verður haldinn áHiltonNordica þriðjudaginn 25. október kl. 8:00–10:00. Boðið verður upp ámorgunverð til kl. 8:30. Skráningargjald er 3.900 kr. og skráning fer fram á deloitte.is. Í sland hefur náttúrulega eiginleika sem styrkja stöðu þess sem ákjósanlegs staðar fyrir landeldi og örþörungarækt. Í því samhengi má nefna aðgengi að fersku vatni, saltvatni, sjó, jarðvarma og ekki síst grænni orku á samkeppnishæfu verði. Lega landsins er einnig talin vera mikilvægur hlekkur til að geta tengst mörkuðum bæði austan- og vestan- hafs. Örþörungar hafa hátt hlutfall af próteinum og omega-3- fitusýrum sem nýtast vel í fæðubótarefni, en einnig eru tæki- færi í slíkri rækt sem vinnur með sjókvía- og landeldi þar sem þessi næringarefni eru nauðsynleg í fiskafóður, eins og bent var meðal annars á í skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjávar- útvegi og fiskeldi sem birt var í maí 2021. Bæði örþörungarækt og landeldi eru ungar greinar og er þó nokkuð þar til þær gefa af sér þau afköst sem áform eru um. Hins vegar er ljóst að háleit áform um stóraukna framleiðslu í þessum greinum sýna að aðstæður hér á landi setja Ísland í fremstu línu í þróun matvælaiðnaðar framtíðarinnar. Auðlindir landsins gefa einnig sjókvíaeldi tækifæri til að stór- eflast þar sem vaxtarhraði seiða ræðst af hitastigi vatnsins og aðgengi að jarðvarma getur því flýtt vaxtartíma seiðanna. Með útsetningu stærri seiða sem vaxið hafa hraðar er hægt að ná betri nýtingu á þeim eldisleyfum sem gefin eru út. Það er því ljóst að kjöraðstæður eru til frekari uppbyggingar greina innan lagareldis hér á landi því allt vinnur þetta saman í átt að aukinni verðmætasköpun og velmegun íslensks sam- félags. gso@mbl.is Morgunblaðið/RAX Ísland náttúrulega ákjósanlegt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.