Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Blaðsíða 12
Dmytro við hús í þorpinu Kamjanka. Á hliðinu hefur verið skrifað Hér búa Z. Einnig má sjá stafinn V, sem einnig er tákn innrásarinnar. Skammstöfun Sovétríkjanna, SSSR, er líka sjáanleg. Rússneskir hermenn höfðust við í húsinu. ina, enda voru stanslausar sprengjuárásir á borgina. Okkar blokk hrundi ekki og því kom- umst við lífs af.“ Tetjana sýnir okkur íbúðina sína á annarri hæð. Útveggirnir hafa hrunið og hluti af innbúi er sjáanlegur. „Ég bý núna í sumarhúsinu mínu skammt frá.“ Árásin var gerð 9. mars um kl. 7 að kvöldi. Þeir sem höfðu leitað skjóls í kjallara þess hluta blokkarinnar sem varð fyr- ir beinni árás grófust undir. Átta manns úr einni fjölskyldu, Stolpakov-fjölskyldunni, fjór- ir ættliðir, létust í árásinni. „Við höfðum ekki einu sinni ráðrúm til að grafa fólk undan rúst- unum. Skotárás stórskotaliðs hélt áfram eftir árás flughersins,“ segir Tetjana okkur. Hvaða árásir óttast þú mest?, spyr ég. Árásir skrið- dreka, stórskotaliðs eða flughers? „Flughers- árásir eru þær skelfilegustu. Þú sérð flugvél- ina og heyrir háværar drunur þegar hún flýgur yfir, en þú veist ekki hvert hún snýr og hvar hún gerir árás. Sprengjuvélarnar bera 500 kílóa sprengjur sem valda gífurlegri eyði- leggingu.“ Hvergi annars staðar vil ég búa Við gistum um nóttina ásamt tíu sjálf- boðaliðum í stóru húsi í Ísjúm. Við borðum kvöldmat, svínakjöt úr niðursuðudósum, við kertaljós og sofum í bakpokum á köldu gólfinu. Um morguninn förum við með skipuleggjanda hjálparstarfsins, Dmytro Sentsjúk, til þorps- ins Kamjanka, 2 kílómetra frá Ísjúm. Dmytro er 26 ára og starfaði sem viðskiptafræðingur fyrir stríð. Við ætlum að vitja fjölskylduhúss hans í þorpinu, sem taldi fyrir stríð um 1000 íbúa og 600 hús. Dmytro hefur ekki dvalið í þorpinu í sex mánuði, eða síðan hernámið hófst. Fjölskylda hans flúði á síðustu stundu þegar Rússar voru við útjaðar þorpsins. Dmytro er svartsýnn á að húsið sé óskemmt, en því næst öll hús í þorpinu hafa orðið fyrir tjóni og eru flest fullkomlega óíbúðarhæf. Harðir bardagar geisuðu um þorpið. Rússar beittu stórskotaliði, flugher og þyrlum og náðu þorpinu á sitt vald í byrjun apríl. Dmytro ólst upp í Kamjanka, en flutti síðar til Karkív. Hann reyndi að fara allar helgar heim til fjöl- skyldunnar og segist hvergi annars staðar vilja verja frítíma sínum. Við sjáum yfirgefna skriðdreka og bryn- vagna á leiðinni til Kamjanka, frekari vitnis- burður um óskipulagðan flótta rússneska hersins. Á eftirlitsstöð í útjaðri Ísjúm erum við vöruð við því að sprengjuleitarsveitir hafi ekki farið til þorpsins. Við þurfum að passa okkur sérstaklega á sprengjugildrum (e. booby-trap) og „fiðrildum“. Sprengjugildrur eru oft lagðar við sakleysislega hluti eins og leikföng, hurðar og skápa. Þú opnar t.d. skáp eða hurð og vír dregur öryggispinna úr hand- sprengju. „Fiðrildi“ eru litlar jarðsprengjur sem dreift er úr lofti. Þær eru grænar eða brúnar á litinn til að samlagast gróðri og rusli á vegum. Ef þú stígur á eina slíka missir þú fótinn upp að ökkla. Við keyrum um holóttar malargötur þorps- ins. Á víð og dreif eru græn viðarbox utan af skothylkjum stórskotaliðs rússneska hersins. Hvert einasta hús ber merki sprengjuárása. Við komum að húsi ömmu Dmytros. Húsið er hálfhrunið. Innanstokks eru húsmunir, skáp- ar, bækur og fatnaður á víð og dreif. Dmytro finnur leikfang, bangsa, úr bernsku sinni, lyftir honum varlega upp og horfir á hann angurværum augum. „Mamma mín gaf mér þennan bangsa þegar ég var fimm ára. Ég hef ekki séð hann í mörg ár, en nú finn ég hann hér.“ Við höldum för okkar áfram og keyrum að húsi Dmytros. Þakið og húsveggir eru ekki sýnileg handan hliðs. Dmytro opnar hliðið og við blasa rústir einar. Það eina sem er heillegt er múrsteinshlaðinn arinn. Dmytro stendur fyrir framan rústirnar og tárast. Hann gengur út um hliðið til að eiga stund með sjálfum sér. Þegar hann kemur aftur segir hann okkur að fjölskyldan hafi rétt fyrir stríð lokið meirihátt- ar viðgerðum á húsinu. „Ég ólst upp hérna og tók virkan þátt í samfélagi þorpsins. Ég söng hérna á hátíðardögum í menningarhúsinu. Ég kom hingað eins oft og ég gat. Nú þarf að bretta upp ermarnar og endurbyggja.“ Þetta er viðhorf sem við heyrum oft í Úkra- ínu. Fólk er ekki reiðubúið að leggja árar í bát. Það er bjartsýnt á sigur í þessu stríði, jafnvel þótt fólk viti ekki á þessari stundu hvaðan peningarnir koma til að endurreisa fyrra líf. Við heyrum oft viðkvæðið: „Við lifð- um góðu lífi.“ Þetta heyrir maður, jafnvel frá fátæku fólki sem hefur glatað því litla sem það átti. Við stöndum við rústir heimilis Dmytros. Vindurinn blæs að okkur. Nálykt leggur að vit- um okkar, annað hvort frá dýrum eða mönn- um, sem eru grafin undir rústunum. Sam- kvæmt þorpsbúum bjuggu rússneskir hermenn í húsi Dmytros. Mögulegt er að úkra- ínski herinn hafi skotið á húsið í leiftursókn- inni og að rússneskur hermaður eða hermenn hafi fallið og liggi undir rústunum. Það eru engir nasistar hér Við höldum ferð okkar áfram um þorpið Kamj- anka. Við rekumst á Vasíl, sem er að safna heyi. Hann var allt hernámið í Kamjanka, seg- ir hann okkur. Um 1000 manns bjuggu í þorp- inu fyrir stríð, en aðeins 11 höfðust við þorpinu allt hernámið. Aðrir flúðu þegar árás Rússa hófst. „Ég ætlaði líka að yfirgefa þorpið ásamt eiginkonu minni, rak kýrnar mínar og svín úr fjósinu út á akur. Morguninn eftir voru dýrin komin aftur heim og ég ákvað að fara ekki neitt, ég gat einfaldlega ekki skilið dýrin eftir.“ Vasíl er fyrrverandi ökukennari á landbún- aðartæki og vann sem slíkur í 25 ár. Hann er kominn á eftirlaun, 64 ára að aldri. Hann og eiginkona hans, Tetjana, stunda núna bú- skap. Húsið þeirra hefur orðið fyrir spreng- juskaða. Það stendur enn, en þakið er hrip- lekt og allir gluggar eru brotnir. Tetjana er jafngömul eiginmanni sínum og vann áður sem kennari í landbúnaðarskóla. Hún brest- ur í grát þegar hún sýnir okkur ástand húss- ins innandyra. Það eru skálar úti um allt þar sem þakið lekur á mörgum stöðum. Húsið er óíbúðarhæft. Tetjana hefur sofið í húsi frænku sinnar skammt frá. Vasíl sefur í kjall- ara við húsið. Hann segir að hernámið hafi tekið á hann, hann hafi orðið gráhærður á meðan á því stóð. „Þeir spurðu mig hvar nasistarnir væru í fel- um. Ég sagði þeim að það hefðu ekki verið neinir nasistar í þorpinu síðan 1943.“ En hvernig kom rússneski herinn fram við íbúana? „Verstir voru hermennirnir frá Lúg- ansk-héraði (LDNR – hluti Lúgansk-héraðs hefur verið á valdi aðskilnaðarsinna síðan 2014). Þeir stálu öllum verðmætum, þvotta- vélum, örbylgjuofnum, ísskápum. Aðrir her- menn tóku símann minn og skiluðu honum ekki. Þeir tóku einnig vatnspumpuna við brunninn okkar. Almennt var lítill heragi.“ Rússneskir hermenn stálu og drápu sér til matar, yfir 120 nautgripi og svín, sem voru skilin eftir í þorpinu. „Þetta var ekki vegna matarskorts, þeir höfðu yfirleitt nóg að bíta og brenna, en þá langaði að grilla teinasteikur.“ Þeir tóku svín Vasíls, en létu nautgripina hans vera, sex að tölu. Þær töluverðu matarbirgðir sem bárust frá Rússlandi seldu hermennirnir í Ísjúm. Síðan komu þeir til Vasíls og báðu um mat og heimabruggaðan vodka. „Ég skipti á Konur að spjalli á torgi í Ísjúm við eyðilagt stórskotaliðskerfi Rússlands, TOS-1A Solntsepjok (Sólarbjarmi). Kerfið er eitt hið nýjasta og fullkomnasta í vopnabúri Rússa, stolt rússneska stórskotaliðsins. Eyðilögð og yfirgefin hergögn eru víðs vegar um borgina. Herprestur heldur guðþjónustu við fjöldagrafirnar. Hann er fyrir framan leiði Stolpakov-fjölskyldunnar. Fjórir ættliðir hennar, átta manns, létust í loftárás rússneska hersins á íbúðarblokk í Ísjúm í mars. STRÍÐ Í EVRÓPU 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.10. 2022

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.