Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Blaðsíða 15
9.10. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 samkomubönn voru við lýði í landinu. Fyrst undir nafninu Heima með Helga en síðan Það er komin Helgi. Hugmyndina að þeim þáttum fékk hann á leiðinni frá Akureyri til Reykjavíkur í byrjun mars 2020. Hann hafði þá verið fyrir norðan að spila á Græna hattinum og átti líka að troða upp á árshátíð lögregluembættisins nyrðra en henni var aflýst vegna stöðunnar á faraldrinum. „Þá hugsaði ég með mér: Jæja, núna er allt að lokast. Faraldurinn í Evrópu byrjaði á Ítalíu og við höfðum séð myndir af fólki úti á svölum að syngja hvert fyrir annað. Eins vissi ég af því gegnum vini okkar Vilborgar á Ítalíu að tónlist- armenn voru farnir að senda út tónleika á Face- book. Það var fyrirmyndin, nema hvað mér fannst upplagt að gera þetta í sjónvarpinu en ekki á Facebook. Ég hafði strax samband við Pálma Guðmundsson hjá Sjónvarpi Símans og bókaði fund. Honum leist vel á hugmyndina og nokkrum dögum eftir að öllu var lokað vorum við komin í loftið.“ Lagt var upp með heimilislega stemningu og til tals kom að halda tónleikana heima hjá Helga og Vilborgu Halldórsdóttur, eiginkonu hans. Það var hins vegar of flókið, bæði tækni- lega og út af fjöldatakmörkunum, þannig að skónum var stefnt í Hlégarð í Mosfellsbæ. „Hins vegar var hálf búslóðin og mikið af per- sónulegum munum okkar Vilborgar komið þangað, þannig að okkur leið hálfpartinn eins og við værum heima hjá okkur. Markmiðið var að tengja fólk saman. Allir áttu að horfa saman, hver í sinni stofu og ímynda sér að við værum að spila úti í horni. Ég held að fólk hafi upplifað þetta sterkar fyrir þær sakir að það vissi að fólkið í næsta húsi var líka að horfa. Ég veit að sumir klæddu sig upp fyrir tónleikana og fjöl- skyldur grilluðu.“ Ekki veitti af að lyfta þjóðinni upp á þessum fordæmalausu tímum og viðbrögðin voru strax mjög sterk. „Þakklætið var mikið, ég skynjaði það mjög fljótt. Það er enn þá að koma fólk upp að mér á götu sem segist ekki þekkja mig en megi til að þakka mér fyrir að hafa bjargað lífi sínu í Covid. Maður fer bara hjá sér og verður feiminn þegar maður heyrir svona lagað. Við vissum ekkert út í hvað við vorum að fara enda óvissan um framhald faraldursins algjört; markmiðið var bara að létta fólki lífið, ef þess væri nokkur kostur. Þessi viðbrögð hafa snert mig djúpt.“ Samkomubönn komu og fóru næstu mánuði en ljóst var um haustið að þjóðin vildi meira af Helga, Vilborgu, Reiðmönnum vindanna og gestum þeirra. „Áhorfið fór upp úr þakinu og sjálfsagt að bregðast við kallinu,“ segir Helgi en þegar upp var staðið, tveimur árum síðar, voru þættirnir orðnir 45 og gestasöngvarar á annað hundrað. Þar af komu sumir oftar en einu sinni. Þess utan var svo til eingöngu flutt íslenskt efni og Helgi áætlar að á sjötta hundr- að lög hafi hljómað í þáttunum, sum hver oftar en einu sinni. Kalli selló lífrænt ræktaður „Stemningin var strax með okkur og allir boðn- ir og búnir að koma og leggja okkur lið, ungir sem aldnir. Pródúksjónin vatt líka upp á sig og þátturinn þróaðist jafnt og þétt. Það var til dæmis mjög gaman af fá Halla melló [Hallgrím Ólafsson leikara] inn í þetta með kómískt ele- ment; við þróuðum karakter hans, Kalla selló, saman. Segja má að hann hafi verið lífrænt ræktaður og komið beint úr eldhúsinu. Það var gaman að vinna sketsana með Halla, enda sam- einaði það margt af því sem ég hef gert gegnum tíðina,“ segir Helgi sem leikstýrði þáttunum, framleiddi þá, valdi lögin og sitthvað fleira. – Sástu fyrir þér að þátturinn myndi ganga svona lengi? „Nei, ertu frá þér? Ég var vongóður um að hægt væri að gera þetta nokkrum sinnum en hugsaði ekki lengra. Snjóboltinn hélt bara áfram að rúlla.“ Það er komin Helgi verður ekki á dagskrá í vetur. „Þetta er orðið ágætt, alla vega í bili. Hvað sem síðar verður. Það hefur verið mikið framboð af okkur og ágætt að taka sér smá hvíld. Þetta var líka rosaleg vinna. Þátturinn var varla búinn þegar maður var kominn á fullt að huga að þeim næsta; fá gesti, velja lög, semja sketsa og þar fram eftir götunum.“ – En hefurðu áhuga á að vinna meira við sjónvarp, jafnvel að öðrum skemmtiþætti? „Já, ég gæti vel hugsað mér það. Það er gam- an að fást við þetta form. Ekkert er fast í hendi en ég er með hugmyndir sem ekki er tímabært að fara út í hér.“ Hann segir Heima með Helga og Það er komin Helgi hafa sýnt og sannað að línuleg dagskrá sé fráleitt að dauða komin. „Það er engin spurning. Það fara ekki allir út að djamma á laugardagskvöldum, sumum finnst bara ljómandi huggulegt að koma sér vel fyrir í sófanum og horfa á skemmtilegt efni í sjón- varpinu og ekki skemmir fyrir ef það er ís- lenskt. Auðvitað byrjuðum við í Covid og allt það en það var mjög áhugavert að fylgjast með því hvernig þetta þróaðist er á leið.“ Ný tónlist á næsta ári Spurður hvað sé nú framundan svarar Helgi því til að hann hlakki til að senda frá sér nýja tón- list; til þess hafi ekki gefist tími í tvö og hálft ár vegna skuldbindinga við þáttagerð. „Maður er svolítið að endurstilla sig eftir þessa miklu törn en núna er ég að byrja að fara yfir sólóefni sem ég hef verið að semja og vinsa úr því ásamt Hrafni Thoroddsen. Það ætti að bera ávöxt á næsta ári. Það er alltaf nóg á skrifborðinu.“ Helgi og Reiðmenn vindanna voru með beint streymi um verslunarmannahelgina sem lukk- aðist vel og hann hefur áhuga á að halda því áfram; næst um páskana og svo aftur um versl- unarmannahelgina 2023. „Það er greinilega markaður fyrir það enda ekki allir sem fara á útihátíðir. Ég sé líka fyrir mér að vera með alla vega eina stóra tónleika á ári. Svo verð ég gest- ur á einhverjum jólatónleikum og mín bíður lít- ið hlutverk í sjónvarpsseríu. Það leggst alltaf eitthvað til.“ Ekki er komin nægileg fjarlægð á heimsfar- aldurinn og áhrif hans til að gera það allt saman upp, hvorki fyrir Helga Björnsson né okkur hin. Hann gerir sér þó grein fyrir því að hann var þátttakandi í einhverju alveg sérstöku. „Mér þykir þegar mjög vænt um þetta tímabil og þegar frá líður á sú væntumþykja ábyggi- lega bara eftir að aukast. Þetta var rosalega sérstakt og stórkostlegt að hafa upplifað þetta og að geta fært fólki einhverja smá birtu í öllu myrkrinu. Ég er þannig gerður að ég reyni allt- af að gera mitt besta og nái maður að hrífa ein- hvern um leið er það bara blessun. Tónlistin er í eðli sínu sáluhjálp sem tengir okkur mannfólkið saman í gleði og sorg. Þegar við byrjuðum með þættina var algjör óvissa fram undan og það hefur ábyggilega hjálpað fólki að heyra öll gömlu góðu lögin og því fyrir vikið liðið aðeins betur. Við höfum greinilega hitt á einhvern streng og fyrir það er ég óendanlega þakklátur. Það er gjöf að geta gefið!“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ’ Við vissum ekkert út í hvað við vorum að fara enda óvissan um framhald faraldurs- ins algjört; markmiðið var bara að létta fólki lífið, ef þess væri nokkur kostur. Þessi viðbrögð hafa snert mig djúpt. Helgi Björnsson rifjar upp gamla takta fyrir Kristin ljós- myndara. Hann hefur alla tíð verið ólíkindatól á sviði. Morgumblaðið/Golli Helgi í banastuði með SSSól á sveitaballi í Njálsbúð sumarið 1994. Morgunblaðið/Þorkell Hljómsveitin Síðan skein sól eins og hún birtist okkur í árdaga.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.