Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.10. 2022 MATUR O rðið trattoria á ítölsku þýðir veitinga- staður sem er ekki formlegur, heldur frekar persónulegur og notalegur. Á slíkum stöðum er áhersla lögð á góðan og ein- faldan mat, búinn til úr eðalhráefnum. Mat eins og ítölsk mamma gæti búið til í eldhúsinu heima. Grazie Trattoria, nýr veitingastaður á Hverfisgötu, er einmitt í þessum anda, enda eru kokkarnir þar einmitt tvær ítalskar mömmur. Þær galdra fram pasta, pítsur og kjötrétti og vita fátt skemmtilegra. Blaðamað- ur lagði leið sína í miðbæinn og hitti fyrir eig- andann og rekstrarstjórann sem bjóða upp á kaffi einn rólegan morgun áður en staðurinn fyllist af svöngum viðskiptavinum. Hér var fullt öll kvöld „Við opnuðum fyrsta apríl og það hefur gengið mjög vel. Sumarið var mjög gott og haustið fer vel af stað,“ segir Kristján Nói Sæmundsson rekstrarstjórinn og eigandinn, Jón Arnar Guð- brandsson, sem er enginn nýgræðingur í bransanum, tekur undir það. Hann segir fleiri Íslendinga sækja staðinn en ferðamenn. „Staðurinn var mikið í fréttum í vor þegar ég réð fólk yfir sextugt í þjónustustörf hér. Það vakti svo gríðarlega mikla athygli í þjóð- félaginu að útlendingurinn komst ekki að. Hér var fullt öll kvöld og erlendir ferðamenn sem hingað gengu inn af götunni fengu ekki borð. En svo fóru þeir þá að bóka borð kannski fyrir næsta dag,“ segir Jón Arnar og segir erlenda ferðamenn gjarnan borða snemma kvölds. „Oft detta hér inn 30 til 50 útlendingar milli fimm og sex. Hingað kemur mikið af Amerík- önum sem eru þreyttir eftir daginn eftir ferðir um landið. Ameríkanar eru þyrstir í ítalskt. Þeir eru þá búnir að smakka lambakjötið,“ segir Kristján og brosir. Þetta er þessi týpa! Grazie Trattoria tekur rúmlega hundrað manns í sæti, en þrátt fyrir að vera stór veit- ingastaður, er sjarmi yfir honum. „Hér er stór matseðill og eiginlega allt í boði. Hér eru engin formlegheit, heldur létt yfir. Stemningin hér á kvöldin er alveg geggj- uð! Maturinn er gerður frá grunni, en við erum svo heppnir að við fengum í eldhúsið tvær ítalskar mömmur. Þær hafa eldað mat í tutt- Morgunblaðið/Ásdís Stemningin alveg geggjuð! Jón Arnar og Kristján Nói standa vaktina á veitingastaðnum Grazie Trattoria á Hverfisgötu. Á Grazie Trattoria er áhersla lögð á al- vöru ítalskan mat og notalegheit. Fljót- lega verður þar opnaður pítsuskóli, enda eru Íslendingar sjúkir í pítsur. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Hlaðborð í hádeginu Nýjung á Grazie Trattoria er hádegishlaðborð þar sem finna má pasta, pítsu, brúsettur og annað góðgæti. „Það verða breytingar frá degi til dags en alltaf sami grunnurinn. Þær í eldhúsinu eru of- boðslega duglegar og lifa fyrir þetta,“ segir Jón Arnar og segir hádegin oft fámenn á sumrin en gestagangur eykst á veturna. „Á sumrin eru túristarnir úti á landi að ferðast og Íslendingar líka í sumarfríum. En við höfðum samt opið í hádeginu því við ákváðum að hafa svo hlaðborð með haustinu. Við sjáum þar tækifæri því við erum nálægt Borgartúni,“ segir Jón Arnar og á við að í þeirri götu starfi fjöldi manns sem geti brugðið sér niður á Hverfisgötu í hádeginu. „Þegar fólk hefur ekki mikinn tíma er gott að koma hingað og það er allt tilbúið; súpa, pasta og pítsur dagsins,“ segir Kristján. „Við erum að fara að gera ótrúlega mikið af spennandi hlutum. Við erum að fara að opna búð hérna með vörunum okkar og alls kyns olíum og fleira frá Ítalíu. Við erum að fara af stað með pítsuskóla sem að ég veit að verður fullbókaður strax. Svo erum við að skipuleggja jólamatseðilinn okkar og svo er alls kyns spennandi að gerast eftir áramót,“ segir Jón Arnar. Pítsuæði hjá Íslendingum Jón Arnar segir pítsuskólann hafa verið draumur hjá sér lengi. „Þetta er sturluð hugmynd. Það er búið að vera pítsuæði hjá Íslendingum síðustu tvö, þrjú ár og komnir pítsuofnar á annað hvert heimili. Það eru allir að baka pítsur. Hér verð- um við með mann að nafni Fernando sem er ótrúlega góður í pítsum. Skólinn verður hér á milli fjögur og hálf sex á daginn og komast þrjátíu manns á hvert námskeið. Það byrjar á sýnikennslu en hér er kennt að gera Napólí- pítsu. Hann kennir að gera deig og sósuna og hvernig á að gera pítsuna flotta. Hver og einn fær svo að búa til sína eigin pítsu,“ segir Jón Arnar og segir fólk svo fá að setjast niður og gæða sér á afrakstrinum. Hann nefnir að pítsuskólinn muni byrja um miðjan október en síðar hyggst hann einnig vera með pasta- námskeið. „Það eru allir að fara að mæta!“ Á einum vegg er flennistór mynd sem máluð er eftir frægu verki frá 1838 eftir ítalska málarann Giuseppe Molteni. Viðarhúsgögn virka vel inn á þennan notalega stað. ugu, þrjátíu ár,“ segir Jón Arnar og segir þau hafa fengið ótrúlega góða dóma á Tripadvisor. Blaðamaður ákvað að kanna málið og það er ekki ofsögum sagt; fólk er almennt yfir sig hrifið. „Íslendingarnar sem koma hingað eru líka hrifnir og segja að það sé ekta ítalskt bragð af matnum. Við lögðum upp með ákveðin matseð- il en ítölsku konurnar í eldhúsinu hafa snúið þessu öllu við og hafa sett sitt fingrafar á þetta,“ segir Kristján og hlær. Jón Arnar segist hafa auglýst eftir kokkum og ítölsk kona mætti í viðtal og sagði að systir sín væri líka nýflutt hingað. „Hún spurði hvort þær tvær gætu ekki fengið vinnu. Hún fór að skoða eldhúsið og var strax farin að snúa hugmyndafræðinni við. Ég hugsaði, ok, þetta er þessi týpa!“ segir Jón Arnar og skellihlær. „Hér eru Napólí-pítsur og pasta og geggjað carbonara, gert með guanciale, sem er svína- kinn hanteruð eins og beikon. Fitan af svína- kinn er svo góð,“ segir Kristján og Jón Arnar nefnir að einnig megi finna á matseðlinum osso buco og kálfakjöt Milanese, en kálfakjötið er sérinnflutt frá Bologna. „Ítölsk matargerð er í grunninn svo einföld, en ofboðslega góð. Það eru engar froður eða óþarfa skraut,“ segir Kristján.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.