Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.10. 2022
08.00 Danspartý með Skoppu
og Skrítlu
08.15 Taina og verndarar
Amazon
08.30 Elli og Lóa
08.40 Gus, riddarinn pínu-
pons
08.50 Monsurnar
09.05 Mæja býfluga
09.15 Tappi mús
09.25 Lína langsokkur
09.50 Angelo ræður
10.00 Mia og ég
10.20 Denver síðasta risaeðlan
10.35 Hér er Foli
11.20 K3
11.30 Náttúruöfl
11.35 Are You Afraid of the
Dark?
12.20 Nágrannar
14.10 30 Rock
14.30 B Positive
14.50 City Life to Country Life
15.40 Dementia & Us
16.40 Húgó
16.50 60 Minutes
18.27 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Sportpakkinn
19.00 Gulli byggir
19.45 Grand Designs: Aust-
ralia
20.35 The Heart Guy
21.30 A Very British Scandal
22.30 Blinded
23.15 McDonald and Dodds
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 . 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Amma – Saga Stellu
Stefánsdóttur
20.30 Amma – Saga Stellu
Stefánsdóttur
21.00 Að sunnan (e) – 8. þ.
21.30 Að vestan (e) – 8. þ.
22.00 Að austan (e) – 8. þ.
22.30 Frá landsbyggðunum
(e) – 16. þ.
15.00 Joel Osteen
15.30 Charles Stanley
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.30 Mannamál (e)
19.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
19.30 Útkall (e)
19.30 Fjallaskálar Íslands (e)
20.00 Matur og heimili (e)
Endurt. allan sólarhr.
10.00 Dr. Phil
11.30 Bachelor in Paradise
12.50 Bachelor in Paradise
14.10 Love Island (US)
15.05 Top Chef
15.45 The Block
17.00 90210
17.45 Amazing Hotels: Life
Beyond the Lobby
18.45 Matarboð
19.20 Love Island (US)
20.20 Systrabönd
21.05 Law and Order: Org-
anized Crime
21.55 Yellowstone
22.50 American Rust
23.50 Halo
00.40 Love Island (US)
01.30 FBI: International
02.15 Chicago Med
03.00 The Rookie
03.45 Seal Team
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Upp á nýtt.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Ás-
kirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.10 Síðasta lag fyrir fréttir.
12.20 Hádegisfréttir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Lestin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Sjáandinn á Vesturbrú.
18.50 Veðurfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Heyrt og séð.
20.30 Fólk og fræði.
21.00 Í sjónhending.
21.30 Reykjavík bernsku
minnar.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Hinrik hittir
07.21 Kúlugúbbarnir
07.44 Elías
07.55 Úmísúmí
08.20 Rán og Sævar
08.31 Stuðboltarnir
08.42 Hæ Sámur
08.49 Eðlukrúttin
09.00 Strumparnir
09.11 Bréfabær
09.22 Hvolpasveitin
09.44 Sjóræningjarnir í næsta
húsi
09.55 Rán – Rún
10.00 Serengetí – Örlög
10.55 Landvarðalíf
11.00 Silfrið
12.10 Menningarvikan
12.35 Siggi Sigurjóns
13.20 Söngvaskáld
14.10 Jörðin séð úr geimnum
15.00 Leiðin á HM
15.25 Kveikur
16.10 Fólk og firnindi
17.15 Útúrdúr
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.28 Zorro
18.50 Tónaflóð
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Landinn
20.15 Bæir byggjast
21.05 Sanditon
21.55 Mæðradagurinn
23.25 Silfrið
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Góð
tónlist og létt spjall.
13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring
hækkar í gleðinni og fylgir hlustendum K100 síðustu
metrana í fríi helgarinnar eftir hádegi á sunnudögum.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 Ásgeir Páll Ásgeirsson
fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera
vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við
félag hljómplötuframleiðenda.
Flesta dreymir um
að halda heimilinu
hreinu og vel
skipulögðu. Það
getur þó verið
hægara sagt en
gert en margir
eiga erfitt með að
halda skipulagi.
Skipulagssnill-
ingurinn Cassandra Aarsen þykist hafa fundið lausn-
ina á þessu vandamáli. Hún segir að skipta megi fólki í
fjóra hópa eftir því hvernig skipulag það aðhyllist. Hún
telur afar mikilvægt að fólk þekki sinn eigin skipulags-
stíl áður en það reynir að koma skikki á heimilið. Hún
nefnir þá flokka sem skipulagsstíll fólks fellur í eftir
skordýrum – svokölluðum „draslarapöddum“; í maríu-
hænur, krybbur, fiðrildi og býflugur.
Nánar á K100.is.
Svona kemur þú loks skipu-
lagi á heimilið. Taktu prófið.
L
eikstjórinn Francis Ford Cop-
pola, sem leikstýrði Guðföð-
urnum og Apocalypse Now,
er að gera sig kláran í enn eitt stór-
virkið. Hann er þegar búinn að raða í
kringum sig stórleikurum til að
koma fram í myndinni og er nýjasta
viðbótin Dustin Hoffman. Myndin
ber nafnið Megalopolis og er gert
ráð fyrir að tökur hefjist í nóvember.
Einnig hafa verið nefndir til sög-
unnar leikararnir Adam Driver, Nat-
halie Emmanuel, Aubrey Plaza,
Laurence Fishburne, Jon Voight,
Forest Whitaker, Shia La Beouf,
Jason Schwartzman og Kathryn
Hunter. Að auki ætlar Coppola, sem
skrifar handrit auk þess að leikstýra,
að fá systur sína, Taliu Shire, til að
leika á ný.
Rúm 20 ár með myndina í
maganum
Coppola talaði fyrst um að gera
myndina Megalopolis á tíunda ára-
tugnum. Myndin á að gerast í New
York einhvern tímann í framtíðinni
og hefur Coppola sagt að hugmynd-
ina megi bera saman við rómverska
epík á borð við Ben Húr. Sagan snýst
um baráttu tveggja karla um sömu
konuna, en um leið hyggst Coppola
velta upp spurningum um samfélags-
form og vekja til umhugsunar. Í
opinberri lýsingu á efni myndarinnar
er lítið gefið upp: „Örlög Rómar hvíla
á nútímaheimi, sem er ófær um að
leysa sín eigin félagslegu vandamál, í
þessari epísku sögu um pólitískan
metnað, snilligáfu og ástir í upp-
námi.“
Gert er ráð fyrir að myndin kosti
120 milljónir dollara í framleiðslu.
Coppola hefur sagt að hann ætli að
fjármagna hana úr eigin vasa. Í sam-
tali við tímaritið GQ sagði Coppola
að sér „gæti ekki staðið meira á
sama“ um fjárhagshlið myndarinnar,
svo lengi sem hún yrði í samræmi við
þá sýn sem hann hefði um hana.
Myndin verður tekin á Prysm-
sviðum kvikmyndaversins Trilith í
Atlanta í Georgíu. Notuð verður nýj-
asta sýndarveruleikatækni og er tal-
að um að boðið verði upp á nýjungar í
kvikmyndagerð, sem ekki hafi sést
áður.
Þetta er fyrsta kvikmyndin í fullri
lengd sem þarna verður tekin. Tök-
urnar verða á ljóssviði, sem á ensku
nefnist LED volume stage.
Fortíð og framtíð
Í fréttatilkynningu var haft eftir
Coppola að hann hygðist vera með
„annan fótinn í fortíðinni og hinn í
framtíðinni“. Í Megalopolis myndi
hann sameina klassíska kvikmynda-
gerð nýjustu framleiðslutækni.
Coppola er einn nafntogaðasti
leikstjóri allra tíma. Hann er nú 83
ára gamall og hálf öld er liðin síðan
hann sló í gegn með mafíumyndinni
Guðföðurnum, sem gerð var eftir
sögu Marios Puzos. Tveimur árum
síðar kom framhald, Guðfaðirinn II,
og var þeirri mynd jafnvel sungið
meira lof en hinni fyrri. Þriðji hlut-
inn kom svo 1990 og þótti sístur, en
stendur vel fyrir sínu.
Kvikmyndin Apocalypse Now kom
út 1979. Hún var gerð eftir sögu Jo-
sephs Conrads, Innstu myrkur eða
Heart of Darkness, en sögusviðið
fært frá Kongó til Víetnam-stríðsins.
Myndin er magnað verk og átaka-
mikið, en ekki gekk minna á við gerð
hennar, sem tafðist verulega vegna
ýmissa ófara.
Nú er farið að tala um að Megal-
opolis verði magnum opus Coppola,
hans mesta verk. Það eru ekki litlar
væntingar, slík stórvirki liggja eftir
hann þegar.
Francis Ford Coppola lætur
ekki deigan síga. Í nóvember
hefjast tökur á nýrri mynd
hans, sem hann ætlar að
fjármagna úr eigin vasa.
REUTERS
FRAMTÍÐARSÝN MEÐ BERGMÁLI FRÁ RÓMARVELDI
Coppola hyggur
á nýja stórmynd
Dustin Hoffman er í þeim fansi leikara, sem munu koma fram í Megalopolis,
nýrri mynd leikstjórans Francis Ford Coppola. Hoffman varð 85 ára í ágúst.
AFP/Alberto Pizzoli
Aldrei eins
gaman
að taka inn
VÍTAMÍN
D3000 munnúða vítamín
Sniðgengur
meltingarveginn
Fer beint í
blóðrásina
Náttúrulegt
piparmyntubragð
Þegar sólarljósið
fer minnkandi