Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.10.2022, Síða 32
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2022
Snyrtivöruframleiðandinn Rock And Roll Beauty hefur kynnt
samstarf sitt við mann úr ólíklegri átt, málmlistamanninn Ozzy
Osbourne. Um er að ræða takmarkað upplag af snyrtivörulínu
sem innblásin er af Myrkrahöfðingjanum sjálfum, eins og kunn-
ingjar hans og aðdáendur kalla Ozzy gjarnan.
Snyrtivörurnar taka mið af einstökum stíl og útliti Ozzys og
eru að sögn talsmanna Rock And Roll Beauty löðrandi í rokki.
Við erum að tala um 21 vörutegund, svo sem augnskugga sem
heita eftir vinsælum lögum kappans á borð við Iron Man, Zom-
bie Stomp og Crazy Train, kerti, svartan málmvaralit, snyrti-
buddur, skammtímahúðflúr og spegil með goþþbrag.
Ozzy er ekki fyrsti rokkarinn sem gengur til samstarfs við
Rock And Roll Beauty en þar voru fyrir á mála hljómsveitin Def
Leppard og Jimi nokkur Hendrix enda þótt sá síðastnefndi viti
nú sennilega mest lítið af því öllu saman.
Hvaða varalit ætli Ozzy
karlinn sé með hér?
AFP/Andy Buchanan
Ozzalega smart vörur
Að sjálfsögðu er leðurblökur að finna á varalitnum
hans Ozzys sem Rock And Roll Beauty framleiðir.
Rock And Roll Beauty
Aðdáendur Ozzys Osbournes geta nú
fest kaup á snyrtivörum í hans anda.
„Hjá Þingvallaleiðum h.f. starfar
eini kvenlangferðabílstjórinn hér
á landi, Guðlaug Þórarinsdóttir
að nafni,“ sagði í frétt Morgun-
blaðsins í október 1972. Fram
kom að Guðlaug, sem var gift og
fjögurra barna móðir, hefði
starfað hjá fyrirtækinu í fjögur
ár. Spurð hvers vegna hún hefði
farið út í þessa atvinnugrein
svaraði Guðlaug að aðalástæðan
væri sú að hún hefði ekki haft
nægilega menntun til þess að
vinna við það sem hún hefði
áhuga á. „Annars líkar mér
mjög vel við bílstjórastarfið, því
þetta er mjög spennandi. Ég veit
til dæmis aldrei hvert ferðinni er
heitið né hvers konar farþega ég
á að keyra í það og það skiptið.“
– Hvernig bregðast farþeg-
arnir við að sjá þig við stýrið?
„Það hefur enginn sýnt nein
undrunarmerki ennþá, aftur á
móti eru strákarnir lítið hrifnir
af þessu uppátæki mínu. – Synir
eru alltaf viðkvæmir fyrir svona
löguðu,“ svaraði Guðlaug og
bætti við að hún ætlaði að halda
áfram að starfa sem langferða-
bílstjóri. Eða jafnvel leigubíl-
stjóri, fengi hún leyfi.
– Hvað gerir þú ef springur?
„Það hefur einu sinni komið
fyrir, og þá skipti ég um ein, en
það var anzi erfitt.“
GAMLA FRÉTTIN
Kven-
langferða-
bílstjóri
Guðlaug Þórarinsdóttir fyrir framan langferðabíl sinn haustið 1972.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Árni Stefánsson
forstjóri Húsasmiðjunnar
Snorri Másson
fréttamaður
Tony Hadley
tónlistarmaður