Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11.2022 Í FÓKUS SPURNING DAGSINS Hvað er það besta við jólin? Þorvaldur F. Jónsson Samvera með fjölskyldunni. Selma Þorgeirsdóttir Pakkarnir! Ísak Jónsson Að hitta alla fjölskyldumeðlimina. Þórunn Klara Símonardóttir Að vera saman með fjölskyldunni. Ertu mikið jólabarn? Ég er rosalega mikið jólabarn og það hefur aðeins auk- ist með árunum. Ég giftist miklu jólabarni þannig að það var ekki um annað að ræða. Mér finnst jólin mjög skemmtileg hátíð. Í ár verða jólin tekin alla leið enda lágum við með covid öll síðustu jól. Hvað er á döfinni hjá ykkur Gunna á næstunni? Við ætluðum alltaf að vera með stóra afmælistónleika því við áttum 25 ára samstarfsafmæli en covid át þá. Eftir að við vorum búnir að fresta fjórum sinnum gáfumst við upp. En við lofuðum fólki að við myndum gera eitthvað annað og ákváðum því að setja upp jóla- sýningu Gunna og Felix. Við lögðum upp með að búa til klukkutíma langa sýningu ætlaða öllum frá tveggja ára og upp úr. Það verður mikil tónlist, galdrahurð og ýmsar uppákomur. V bak við hana. Jafnvel fékk maður vatnsgusu í andlitið. Og nú ætlum við að endurvekja galdrahurðina og í þetta sinn galdrast út úr henni meðal annars píanó- leikarinn Karl Olgeirsson sem spilar fyrir okkur lifandi tónlist. Hvað mun gerast á sýningunni? Sýningin fjallar um síðasta klukkutímann í aðdraganda jólanna og við munum tala um jólahefðir, jólamat og góð gildi í samfélaginu. Það verður líka mikil spenna því það er jólapakki á leiðinni með póstinum og krakkarnir í salnum munu hjálpa okkur að missa ekki af þegar póstmaðurinn bankar, en hann mun aðeins banka einu sinni vegna mikilla anna. Gunni segist nefnilega vera búinn að finna handa mér bestu jólagjöf allra tíma eftir frekar slakar gjafir síðustu ára. Verðið þið á jólanáttfötum? ef einhver vera kósí að fara á og skella sér FELIX BERGSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Kósí jólastund jög að alið ni ði. H S Þ vað er galdrahurð? ið vorum með galdrahurð í tundinni okkar árið 1994. að leyndist alls konar á Það kemur í ljós! En við gleðjumst m mætir á náttfötum því þetta á ólastund. Svo er auðvitað tilv ýningu hjá okkur á aðventun svo í Jólaþorpið og Hellisger Gunni og Felix bjóða öllum börnum og fylgdarfólki á dásamlega jólastund í Gafl- araleikhúsinu. Þar verður söngur, gleði, kósíheit, jólasiðir, grín og spenna. Sýnt er alla sunnudaga á aðventunni, frá 27. nóvember til 29. desember. Miðar fást á tix.is. Sími 552 2018 info@tasport.is Nánari upplýsingar á eða552 2018 tasport.is Golf og skóli verð frá kr. 247.800Golf og skóli verð frá kr. 277.800 HeilsuferðGolfskóli Heilsu & sjálfsræktarferð Kvenheilsa, sjálfsrækt og gleðimeðMelkorku Á. Kvaran ogHöllu B. Lárusdóttur! 4. – 11. júní 2023 Verð frá 248.800 ámann í tvíbýli. Empordá Golf Frábært golfsvæði við strendur Costa Brava sembýður upp á tvo 18 holu golfvelli, links og skógarvöll. Cluc de Golf Barcelona Einn rótgrónasti og þekktasti golfvöllur Katalóníu héraðsins á Spáni. Hádegismóum 2 110 Reykjavík Sími 569 1100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Prentun Landsprent hf. Forsíðumyndina tók Baldur Arnarson Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Eitt af því sem ég skemmti mér við þessa dagana er að smella á „Minn- ingar“ á Facebook og lesa þar gamla statusa. Þar má lesa algjörlega snilldarvel samdar setningar þar sem upplýsingagildið er gasalegt og hnyttnin ekki síður. Nei, nefnilega alls ekki. Því er einmitt þveröfugt farið! Statusar eins og : … er andvaka! voru algengir. Eða: Var einhver að banka? (Ég hef greinilega ekki nennt til dyra.) Svo voru statusar til að láta vorkenna sér, eins og: úff, var að muna rótarfylling í dag! Til að sýna listhneigð mína lét ég alla vita að ég: bjó til kúrekahatt í morgun. Og annar var hannaður til að sýna vinunum að ég læsi heimspeki, sem ég geri alls ekki nema þarna var ég í kúrs í háskólanum og skrif- aði: er komin upp á kant við Kant. Snilldin ein. Allt hefur þetta verið sérlega gef- andi fyrir fésbókarvini manns, eða hitt þó heldur, en bót í máli að þeir voru líklega bara 35. Ég var sem betur fer ekki ein um að „skemmta“ vinum mínum með drepleiðinlegum færslum í gamla daga. Ég á vinkonu sem hefur einmitt gaman af því að rifja upp þetta geysispennandi líf sem við vildum endilega deila með öllum. Hún skrifaði til dæmis á föstudegi einum árið 2008: ætla í Kolaportið um helgina. Svo bætti hún um betur á mánudeginum og lét alla vita að hún: fór í Kolaportið um helgina. Eitt sinn sló hún um sig á ensku svo erlendir vinir gætu vitað að hún væri: At home working. Mögulega ættum við að efna til samkeppni um leiðinlegustu fésbókar- færslur allra tíma og veita verðlaun í nokkrum flokkum. Flokkurinn Daglegt líf til dæmis væri fínn fyrir: fór í strætó í morgun-færslur. Íþróttaflokkurinn gæti innhaldið snilldarsetningar á borð við: hljóp alla leið út í sjoppu. Einn flokkurinn gæti heitið Ferðir erlendis og þar væru sjálfsagt statusar á borð við: erum í París. Ljúfa lífið! Matarflokkurinn gæti orðið nokkuð stór með statusum á borð við: bjó til geggjaðan pastarétt! Nammi namm. Svo má nú nefnda notkun á Messenger í árdaga fésbókarinnar. Ekki voru allir að kveikja á því strax. Ég sendi til að mynda mömmu skilaboð þar þann 11. október 2012 seint um kvöld og spurði hana hvort hún væri vakandi. Hún svaraði annan júní árið eftir með einu orði: já. Fésbókarfærslur fortíðarinnar Hún skrifaði til dæmis á föstudegi einum árið 2008: ætla í Kolaportið um helgina. Svo bætti hún um betur á mánudeginum og lét alla vita að hún: fór í Kola- portið um helgina Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.